Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1923, Side 50

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1923, Side 50
16 TÍMARIT TJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA tína villialdin til matar eða forða lagði, vitaskuld, af eftir því sem aldinarækt fór í vöxt og samgöng- ur jukust milli landa, og er nú úrelt eins og berjatínsla og grasaferðir á íslandi, en máltækið vekur upp tímana þá, er þetta var ein af hin- um þarflegu iðjum. Hnýsa. Draga hnýsur, að blunda lauslega í sæti sínu, svo að kolli kippi í samt lag hvert sinn er hann hnígur niður, lánuð líking af gangi hnýsuhvals; líka sagt draga ýsur, líklega afbökun. Hraðberg. .Hafa e-ð á hrað’ bergi, hafa til taks, (um það, sem maður kann vel), líka sagt að það liggi á hraðbergi fyrir honum. Hraðberg heitir skorpan, er sezt framan á tennur mönnum. H u r ð. Það skall hurð nærri hælum, er oft viðkvæðið, þá er maður sleppur óhappalaust og ó- skemdur frá því, er við lá að öðru- vísi færi. Það er ekki komið af skellihurðum þeim, sem nú tíðkast, því meinlaust er að þær skelli á hæla, heldur hurðar-fyrirkomulag- inu forna, þegar hurðin gekk upp og ofan fyrir dyr. Þá var viðbúið að hún myndi taka af það, sem næmi, ef liún skylli á hæla. Hurðarás. Reiða (reisa) sér hurðarás um öxl, ráðast í það. sem maður er ekki maður til, um megn, ofvaxið. “Hurðarás,” segir próf. Finnur, “var bjálki (stokkur) yfir útidyrum og hefir verið langur, digur og þungur og þurft mikla krafta til að bera hann eða lyfta (eiginl. voru tveir hurðarásar jafn- hátt og lítiö bil á milli, þvers frá langvegg til langveggjar; talshátt- urinn er norskur að uppruna.” Ekki veit eg hvaðan hann hefir það, að hurðarásarnir hafi verið langir, digrir og þungir og “lítið bil á milli”, né heldur hvernig hann gerir sér grein fyrir því, að öðrum eins stórtrjám og hann lýsir, hefir verið komið fyrir þvers í rjáfrinu ofarlega yfir útidyrum. En hvað sem því líður, er það víst, að mál- tækið lýsir engum stórtrjám. Það talar ekki nema um stöðu ássins. Um öxl er fornt mál og bregður þó fyrir enn í daglegri ræðu, þ. e. í öxl, öxlarhátt. Gái maður nú að hurð- artilhöguninni fornu, liggur það f augum uppi að máltækið er að lýsa því, sem ekki nær neiuu lagi; því ásinn, settur axlarhátt, er oflágur til að opna dyrnar. Hurð- arásarnir voru þvertrén, sem bundu saman brúnásana á hinum meiri stoðum, sitt hvoru megin við dyrastafgólfið. Hurðin var dregin frá dyrum upp á skíðið eða dróttina á streng um dyrastafnsþvertréð„ hurðarásinn eiginlega. Hurðarás- ana varð því að reiða upp í rjáfrið hurðarhæð yfir dróttina að minsta kosti, svo að hægt væri að draga hurðina á strengnum frá dyrum. Að reiða hurðarásinn um öxl er, vitaskuld, ekki torveldara en reiða liann hærra; en setja liann þar, gegnir engu lagi, því þá er ekki hægt að opna hurðina. Eiginlega á þá máltækið við, að gera eitt- hvað, sem ekki gegnir tilgangi; en náið er nef augum; þegar mönn- um fyrndist hurðarásinn og tilhög- unin öll saman á hurðinni, þá færð- ist ómögulegleikinn, sem var af- leiðing verksins, yfir á sjálft verk- ið, og því er það kallað að reisa sér hurðarás um öxl, sem manni þykir
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.