Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1923, Page 70

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1923, Page 70
IinifM í lMáiííinió<S)m eiEdlaiiniinisic Eftir GutSmund FriSjónsson frá Sandi. Hefii’ þú nokkurn tíma horft inn í blámóðu aldanna? Þú rekur upp furðu-augu, að lík- indum, þegar eg spyr þannig. Þessi móða er ekki í landafræði þinni, og ])ig mun ekki reka minni til, að hafa heyrt hennar getið í ræðu né riti, og þá ekki heldur í daglegu tali. Og í fljótu bragði muntu ekki átta þig á, hvort þessi móða er vatnsfall eða loftkent litbrigði. Þér mun ef til vill leika forvitni á þessu viðundri, sem þú kant að kalla hana og muntu vera fús til að spyrja mig frétta úr þessari átt. Úr því að eg kem til þín með spurningu, verð eg að leysa ofan af skjóðu minni og seðja forvitni þína, ef nokkur er, og benda þér inn í þessa fjarlægu fegurð og þó reyndar nálægu, eft- ir því sem eg orka. Við skulum þá hugsa okkur stað og stund, til að byrja með. Gerum ráð fyrir, að við séum staddir að sumarmálum á hæð einni í land- námi Skalla-Gríms — í Borgar- firði. Veðurlagi er svo háttað, sem bezt getur fallið, þegar suðrænn þey-vindur fellur í faðma við sól- bráð. Niður fjarlægra vatna berst um bygðina og ljósmóða dregur fjöður sína yfir misfellur sveitanna. Hún hefir í faðmi sínum heiðina og hájökulinn. Heiðin verður þá hlaðbúin í skaut niður, og jökull- inn “hjálmgöfugur hilmir, heið- særr” — eins og fornskáldið kvað, meðan því blæddi til ólífis af því höggi, sem konungurinn lét veita skáldinu. Hvítá rennur um bygð- ina, sú hin fagra á að nafni og gagnauðuga laxa fóstra. Álftir syngja á ánni, tigulegar í limaburði, og grágæsir fljúga hið efra, hraust- legar í vængjaburði og rösklegar í róm. Þessum mjallhvítu og stein- gráu hefðarkonum þykir dagurinn góður. Söngtöfrar svananna og flugrisna gæsanna laða til sín at- hyglina og hertaka hana. En þó er annað afl sterkara á þessum stöðvum. Það gerir vart við sig, þó að sjón og heyrn lamist. Það kemur úr fjarlægðinni, innan og ofan úr stöðvum landvættanna — úr Reykholtsdal, þar sem jörðin andar hveragufunni upp í vorloft- ið. Þar er Deildartunguhver í mynni dalsins og bendir þögull inn í dal- inn, þar sem Snorri sagnaritari bjó forðum daga — bjó og býr inni í blámóðu aldanna. Sveitin þessi virðist vera nokk- urskonar lifandi vera. Porfeður vorir töluðu um landvættir, sem vaka mundu yfir hamingju bygðar- laganna, fjarðanna, dalanna. Og sumir spekingar ætla að jörðin sé lífræn, sálugædd vera. Snorri bendir í þessa átt, þegar hann get- ur um eðli jarðarinnar og líkir henni við manninn að eðli. Hann mælir áJ þá leið, að jafngrunt sé að grafa eftir vatni á fjöllum uppi sem \
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.