Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1923, Blaðsíða 160
i2(i
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
Varaski’ifari: Ásgeir I. Blöndal
(endurkosinn í einu hljóði).
Fyrir féhirði var stungið upp á Á.
P. Jóhannssyni. En liann skorað-
ist undan. Var þá stungið upp á
mörgum, en allir afsökuðu sig. Eft-
ir nokkrar umræður og ítrekaða
beiðni alls þingsins, lét Á. P. Jó-
hannsson tilleiðast að taka kosn-
ingu.
Varaféhirðir Jónas Jóhannesson
(gagnsóknarlaust).
Fjármálaritari: Fred Swanson
endurkosinn í einu hljóði).
Vara-fjm.ritari.: Klemens Jónas-
snn (gagnsóknarlaust).
Skjalavörður: Finnur Johnson
(endurkosinn í einu hljóði).
Yfirskoðunarmenn voru kosnir:
Halldór Bardal.
Hannes Pétursson.
Að afstöðnum kosningum var
fráfarandi nefnd greitt þakklætis-
atkvæði með því að allir stóðu á
fætur. Forseti ætlaði þá að víkja
úr sæti, en fyrir tilmæli nýkjörna
forsetans, sat hann í forsetasæti til
þingloka.
Þá bar Fred Swanson fram við-
aukatillögur við 3. kafla laganna.
Hina fyrri um að meðlimum heima-
deilda sé heimilað að gefa erind-
rekum umboð á atkvæðum sínum
á ársþingi. Hin síðari, að einstök-
um meðlimum sé leyfilegt að gefa
öðrum gildum meðlimum skriflegt
umboð á atkvæði sínu á ársþingi.
Tillögur þessar eru lagðar fyrir
næsta ársþing til endanlegra úr-
slita.
Þá var lagt fram nefndarálit frá
íslandssögunefndinni, en í henni
voru: dr. G. J. Gíslason, Á. P. Jó-
hannsson og séra A. E. Kristjáns-
son. Lögðu þeir til að stjórnar-
nefndinni sé falin öll framkvæmd i
því máli, og sé lienni falið að leita
upplýsinga um gildi bókarinnar, og
ef hún sé álitin vel þess virði, að
gefa hana út, þá vindi hún að því
braðan bug að koma því í fram-
kvæmd. Var nefndarálitið samþykt
eftir allmiklar umræður, og nefnd-
inni til aðstoðar í þessu máli kosn-
ir: Dr. G. J. Gíslason, séra Rögnv.
Pétursson og séra Hans B. Thor-
grímsen.
Lesbókarnefndin las upp álit sitt.
í þeirri nefnd voru: séra Guðm.
Árnason, Finnur Johnson og séra
Ragnar E. Kvaran. Brýnir hún
þörfina fyrir slíka bók og leggur til
að kosin sé þriggja manna milli-
þinganefnd til að starfa í sambandi
við stjórnarnefndina að útgáfu
slíkrar bókar. Var nefndarálitið
samþykt og í nefndina kosnir:
Séra Ragnar E. Kvaran.
Gísli Jónsson og
séra Rögnv. Pétursson.
í söngfélagsnefndinni voru þeir:
Séra Ragnar E. Kvaran, Ásgeir I.
Blöndal og J. J. Bíldfell. Lagði hún
til, að stjórnarnefndinni sé falið að
gera tilraun til að stofna söngfélag
meðal íslendinga í Winnipeg. Enn-
fremur, að séra Kvaran sé beðinn
að leitast fyrir um sönglög útgefin
hjá tónskáldum á íslandi. Að nefnd-
inni sé heimilt að verja alt að 200
dölum úr félagssjóði þessu fyrir-
tæki til styrktar. Þá var og bent
á, að eigi væri með öllu ómögulegt,
að hrinda af stað íslenzkum hljóð-
færaflokki, ef félaginu þætti til-
tækilegt að styrkja það á einhvern
liátt.
Urðu um þetta nefndarálit all-