Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1931, Side 27

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1931, Side 27
SIGURÐUR NORDAL 9 hinu megin leikur tilfinninga og hugar, svölun hamingjuþrárinnar, lífsnautnin. En það er til marks um styrk Nordals, að þrátt fyrir hina miklu þenslu sálarinnar á þessum árum, fer hann ekki í mola, heldur ber hver grein sálarlífsins um sig þroskaða ávexti. Hann gefur út Orkneyingasögu eftir öllum kúnstarinnar reglum og semur doktorsritgerð sína um Ólafs sögu helga. Mig minnir hann segði einliverntíma við mig, að all- ur vandinn við að semja slíka rit- gerð væri fólginn í nægum tíma og nógri þolinmæði. En ritgerðin er meira en tími og þolinmæði sam- anlögð. Hún er Grettistak greind- ar og hugkvæmni, enda hratt hún úr stíflum fyrir heilu flóði af rit- gerðum um konungasögurnar. Og menn lesi dóm B. M. Ólsen í Skírni (1915) til að sjá, hvert álit fræði- mennirnir höfðu á hinum unga vísindamanni. Þá er að líta á andstæðuna: skáldskapinn. Hann er ekki mikill að vöxtunum, það sem séð verður; enginn veit hvað lent hefir í papp- írskörfunni, eða liggja kann í skrif- borðsskúffum höfundar. Tvö kvæði, tvær smásögur, og nokkur brot, — þetta var alt og sumt, sem tímaritin höfðu flutt mönnum áður en “Fornar ástir” komu út. Þar bættist mönnum tvær smásögur með nýabragði; aðra þeirra telur Árni Pálsson “eina hina meistaralegustu smásögu, sem sam- in hafi verið á vora tungu”. Langtum merkilegust eru þó ljóðabrotin í óbundnu máli, sem höfundur kallar “Hel”. Merkilegust bæði að efni og formi. Með forminu markar h'öfundur nýtt spor í ís- lenzkum bókmentum, þótt fáir hafi enn gerst til þess að fylgja honum (Jón Thoroddsen yngri). Og þess er vert að minnast hér — af því að höfundur hefir á síðari árum mætt aðkasti nokkru frá sumum mönnum fyrir innilokunarstefnu í íslenzkum menningarmálum — að með þessari bók veitir hann straumum samtíma-menningar Ev- rópu inn í landið og hlaut þá ámæli sumra fyrir, ef trúa má Árna Páls- syni (í Skírni 1920): “Eg hefi heyrt menn kasta því fram, að þessi bók væri óíslenzk. Sá dómur er ekki viturlegur, en hitt er satt, að bókin er óvenjuleg og nýstárleg. Hún er hugsuð og samin á suðurvegum, og yfir beztu köfl- um hennar leikur hreinn og sval- andi andblær erlendrar menningar. En óíslenzk verður hún ekki fyrir það. íslenzk menning og erlend eru af einni rót runnar og af erlendri menning höfum vér altaf auðgast og hljótum vér altaf að auðgast. . . Hér kemur utan- úr heimi íslenzkur rithöfundur, sem hefir kunnað að læra og þess vegna kann frá mörgu að segja. Nálega hver setning í bók hans er mótuð af sjálfstæðri per- sónulegri hugsun og þar að auki rituð af varkárni og nákvæmri al- úð við íslenzkuna. Engin sú hugsun, sem íslendingur getur hugsað og sagt á móðurmáli sínu, er óís- lenzkuleg.’’ Eg get ekki stilt mig um að benda á höfunda þá, er Nordal kveðst hafa átt sálufélag við með- an hann samdi Hel: “Ef eg á að telja þá höfunda, sem eg var hrifn-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.