Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1931, Blaðsíða 126

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1931, Blaðsíða 126
108 TÍMARIT ÞJÓÐRÆIÍNISFÉLAGS ÍSLENDINGA III. Wynyard, Sask. 23. febr. 1931. Til ritara Þjóðræknisfélags Islendinga í Vesturheimi. Kæri herra! Þó þjóðræknisdeildin hér, Fjallkonan, hafi ekki að þessu sinni fulltrúa á þingi félagsins, þá langaði oss samt til þess að senda þinginu og félaginu kveðju og árnaðaróskir. Dauðamerki má það telj- ast, að deildin okkar skuli ekki hafa sent neinn á þingið í þetta sinn, og er þó fremur fjárhagserfiðleikum að kenna, bæði félagsins og einstaklinga, heldur en áhuga- og skeytingarleysi félaga fyrir störfum eða hag félagsins. Erum við að vona, að þetta verði bæði fyrsta og síðasta sinn, sem deildin okkar sendir engan á ársþingið. Allmikill hnekkir var það deildinni, að missa á þessu síðasta ári tvo af okk- ar ágætustu starfsmönnum burtu úr bygðinni. Voru það þeir prestarnir séra Carl J. Olson og Friðrik A. Friðriksson. Höfðu þeir haft á hendi tvö ábyrgðar- mestu störf deildarinnar, forseta- og skrifara-embættin, og höfðu ávalt reynst hinir samvinnuþýðustu og nýtustu fé- lagar. Var nú eðlilegt, að fremur dofn- aði yfir félaginu við burtför þeirra, en ekki dugði að leggja árar í bát. Hafði deildin ærið starf fyrir höndum. Hafði verið samþykt að hafa hér Islendinga- dag að vanda, og jafnvel þótt tilhlýði- legt að hafa hann með meiri hátíðar- brag en vanalega. Var því ráðist á að bjóða dr. J. T. M. Anderson, forsætis- ráðherra Saskatchewanfylkis, að heiðra okkur með nærveru sinni og ræðu. Tók hann þvi boði mjög góðmannlega, og kvað sér vera hin mesta ánægja að þiggja það. Fór það þó öðruvísi en ætl- að var. Kvöldið áður en Islendingadag- urinn skyidi haldinn, fengum við skeyti frá dr. Anderson þess efnis ,að vegna ó- fyrirsjáanlegra atvika, væri sér ómögu- legt að vera með okkur daginn eftir. Hafði hann verið kallaður það sama kvöld til Winnipeg, í mjög áríðandi er- indum. Þótti okkur það súrt í brotið — þó það bætti nokkuð úr skák, að hann bauð að senda í sinn stað hvern þann af ráðherrum sínum, sem við kysum. Þáðum við eðlilega það boð, og varð fyr- ir því vali Hon. Howard McConnell, sveitamálaráðherra fylkisins. Var gerður að erindi hans hinn bezti rómur, og var þetta í fyrsta sinn, sem ræða hefir ver- ið flutt á ensku á íslendingadag hér vestra, þau 22 ár, sem við höfum haldið hér upp á Islendingadag. Þegar manni verður á að líta til baka yfir þau 12 ár, sem deildin okkar hefir verið við lýði, verðum við að játa, að engin stórvirki liggja að baki okkar. Þó finst mér, að ekki hafi verið alveg til ónýtis unnið. Allmargir skemtilegir fund- ir hafa verið haldnir, allmargar opinber- ar samkomur, og mörg ánægjuleg sam- sæti hafa verið haldin. Hefir alt þetta haft menningarlegt gildi. Um tíma gekst deildin fyrir allmerk- um söngæfingum fyrir unglinga. Féll það niður vegna féleysis og vegna á- hugaleysis þeirra, sem börnin áttu. A nú deildin allstórt bókasafn, Ber í því efni að þakka Bókafélagi Kandahar-Is- lendinga fyrir rausn þá, er þeir sýndu deildinni hér, með þvi að gefa henni bókasafn sitt, eftir að það hætti störf- um. Fundi hefir deildin einu sinni á mán- uði. Eru þeir oft hinir ánægjulegustu og á kvenþjóðin eigi lítinn þátt i þvi, með því að hafa jafnan rausnarlegar veit- ingar. Hefir deildin nú á prjónunum, að efna til samkepni meðal barna og unglinga i íslenzkulestri og framsögn á svipaðan hátt og þið eruð að gera í Winnipeg. Vonumst við til að það geti orðið mikil vakning fyrir því menningargildi, sem islenzk tunga hefir í sér fólgið. Vinsamlegast, Jón Jóhannsson, ritari Fjallkonunnar. IV. Þjóðræknisdeildin Harpa í Winnipeg- osis, Man., sendir Þjóðræknisfélaginu innilegar kveðjur ásamt meðfylgjandi skýrslu yfir störf sín árið 1930:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.