Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1931, Blaðsíða 134
116
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISPÉLAGS ÍSLENDINGA
Guðrún H. Johnson
Ragnheiður Daviðsson
Dóróthea Pétursson
Þess var getið í framsögninni, að allir
er í nefndinni hefðu átt sæti, hefðu ekki
getað skrifað undir, sökum þess, að sumir
væru utan bæjar.
Rögnv. Pétursson gerði tillögu um, að
forseti skipaði þriggja manna þing-
nefnd. R. E. Kvaran studdi. Samþykt.
Forseti skipaði Kristján Bjarnason, S.
D. B. Stefánsson og Mrs. Guðrúnu H.
Johnson.
Tímaritsmál tekið fyrir. Sig. Vilhjálms-
son gerði tillögu, er R. E. Kvaran studdi,
um fimm manna þingnefnd, er forseti
skipaði. Samþ. Forseti skipaði þessa:
Arna Eggertsson, Ingvar Gíslason, B.
Daviðsson, J. S. Gillis, Sigurbjörgu
Johnson.
Bókasafnsmál tekið fyrir. R. E. Kvar-
an og Sig. Vilhjálmsson gerðu tillögu
um þriggja manna þingnefnd. Samþykt.
Forseti skipaði Ó. S. Thorgeirsson, A.
Sædal og Jódísi Sigurðsson í nefndina.
Forseti las upp bréf frá forseta fé-
lagsins Vínlandsblóm, þar sem kvartað
er yfir þvi, að Free Press hafi skýrt
ranglega frá skógræktarmálum í sam-
bandi við síðasta ársþing Þjóðræknisfé-
lagsins. Mæltist hann til í bréfinu, að
forseti þjóðræknisfélagsins leiðrétti nú
það mishermi.
Forseti gat þess, að sér fyndist ekki
ástæða til leiðréttingar, og tók Arni
Eggertsson í sama streng.
Fundi var frestað til kl. 8 síðdegis.
V * V
Fundur var settur kl. 8 að kvöldi og
var það skemtifundur, ágætlega sóttur.
Samkepni fór fram meðal 6 ung-
menna, er öll höfðu áður hlotið silfur-
pening fyrir íslenzka framsögn, um
gullpening Þjóðræknisfélagsins. Hlaut
Friðrik Kristjánsson verðlaunin fyrir
prýðilegan flutning. Dómarar voru Miss
Aðalbjörg Johnson, dr. Sig. Júl. Jóhann-
esson og Mr. Friðrik Swanson.
Mr. R. H. Ragnar spilaði á píanó og
Mrs. Hope söng, bæði við ágætan orð-
stír. Forseti séra Jónas A. Sigurðsson
flutti kvæði um Skagafjörð, og séra Jó-
hann Bjarnason flutti snjalla ræðu um
metnað þjóða.
v v *
Starfsfundur var settur kl. 10 f. h.
26. febr. Fundargerningur lesinn og sam-
þyktur.
Kjörbréfanefndin lagði fram eftirfar-
andi skýrslu:
Herra forseti!
Kjörbréfanefndin hefir að líkindum
lokið störfum sínum í dag. A öðrum
þingdegi eru aðeins mættir fulltrúar frá
tveim deildum — ‘Brúin” í Selkirk og
‘Tsland” að Brown.
Skrá yfir fulltrúa er sem hér segir:
Deildin “Brúin”: Theódór Sigurðsson fer
með 19 atkv.; Bjarni Dalman 16; Mrs.
Ásta Eiríksson 16; Mrs. Sigurb. Johnson
15 atkv.; alls 66 atkv. — Deildin Island:
Jón J. Húnfjörð fer með 6 atkvæði, Jón
B. Johnson 2 atkvæði; alls 8 atkv.
Þá liggur fyrir þinginu skrá yfir kjör-
genga félaga í deildinni “Frón” hér í
borg.
A þjóðræknisþingi 26. febr. 1931.
ólafur S. Thorgeirsson.
B. Dalman.
Jafnframt þessari skýrslu afhenti
nefndin forseta skrá yfir mikinn fjölda
einstakra utanbæjarmanna, er staddir
voru á þinginu og þátt tóku í fundar-
störfum.
árni Eggertsson og G. F. Friðriksson
lögðu til að nefndarálitið væri samþykt.
Var það gert með öllum atkvæðum.
A. P. Jóhannsson hafði framsögn fyrir
fjármálanefnd. Gat hann þess, að hann
hefði enga skriflega skýrslu að bera
fram um athugasemdir nefndarinnar við
skýrslur embættismanna. Þó vildi hann
benda á einstök atriði til athugunar. T.
d. liti það einkennilega út, er einn liður
í reikningunum væri vextir í Landsbank-
anum 110.56 dollars. En þetta ætti i
raun og veru að nefnast gengihagnaður
og vextir.