Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1931, Page 34
16
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
um aðferðum í fræðslumálum, aulc
þess sem bæði bókaútgefendur og
bamaskólakennarar þóttust missa
spón úr aski sínum, kæmi hún til
framkvæmda. Samt mun greinin
hafa ýtt undir stofnun unglinga-
skólanna á síðari ámm, með hinn
ágæta Laugaskóla Þingeyinga í
broddi fylkingar, og mun enginn
efast um þrifnað þann, er alþýðu
stendur af skólum þessum. Enn-
fremur er stofnun Menningarsjóðs
mjög í anda greinarinnar.
Af öðrum greinum um menning-
armál má einkum nefna Samlagn-
ing (í Vöku 1927). Er sú grein
hvöt til íslendinga að vera á verði
gegn öfgum hinnar vestrænu sið-
menningar, gegn “ofríki” talnanna
og ofbeldi tækninnar. í raun og
veru er greinin snjöll varnarræða
fyrir andann gegn efninu, og munu
allir geta fallist á mál höfundar
þar, þótt þá greini á við hann í
einstökum atriðum.
Á síðustu árum hefir hin þjóð-
lega stefna Nordals í menningar-
málum sætt allmiklum andmælum
af hálfu manna, er þykir hún um
of einangra þjóðina frá erlendum
áhrifum. En eins og ljóst er af
framanskráðu, þá eru þessar að-
finslur lítt maklegar í garð Nor-
dals sjálfs. Aftur á móti eru þær
nauðsynleg olnbogaskot til margra
fylgismanna Nordals, sem gleymt
hafa nauðsyn útlendu áhrifanna
fyrir blindri dýrkun þess, sem þeir
halda að sé þjóðlegt. Fer hér, sem
ávalt, að menn skiftást í flokka
um sjónarmiðin, og er ekkert við
því að segja, meðan hvorugir snúa
á aðra, því að þá heldur skipið
réttri stefnu.
En meðan íslendingar hirða
nokkuð um þjóðemi sitt, þá hlýt-
ur sú stefna að vera mörkuð í hin-
um hófsömu orðum Nordals: “að
standa djúpum rótum í fornum
jarðvegi, en vera þó umburðarlynd
og næm á nýjar hugsjónir.” (Völu-
Steinn). Á þessari leið hefir Nor-
dal sjálfur sigrað.
Yfirlit yfir æfi og verk.
Sigurður Nordal er fæddur 14.
sept. 1886 á Eyjólfsstöðum í Vatns-
dal. Foreldrar: Jóhannes Nordal og
Jósefína Sigurðardóttir. Ólst upp
á sama bæ hjá Jónasi bónda Guð-
mundssyni og Steinunni Sigurðar-
dóttur konu hans. Settist í fyrsta
bekk lærða skólans í Reykjavík
árið 1900; útskrifaðist þaðan stú-
dent vorið 1906 með 1. einkunn.
Var skráður í stúdentatölu vlð
Hafnarháskóla haustið 1906, las
norræna málfræði. Próf í for-
spjallsvísindum árið eftir með á-
gætis einkunn; meistaraprófi í
norrænum fræðum í febrúar 1912.
Styrkþegi af sjóði Áma Magnús-
sonar 1913—16; af sjóði Hannesar
Árnasonar 1914—18. Dr. Phil. við
Hafnarháskóla 1914. Las sálar-
fræði og bókmentasögu í Oxford
1917—18. Prófessor í íslenzkri
málfræði og bókmenta9ögu við Há-
skóla íslands frá 1. október 1918.
Flytur þá um veturinn 20 Hannes-
ar Árnasonar fyrirlestra í Rvík.
Rektor Háskólans 1922—23. Boðið
nýstofnað embætti í íslenzkum
fræðum við háskólann í Osló 1923,
boðinu hafnað fyrir tilmæli Al-
þingis.
Sumarið 1925 í fyrirlestraferð
um Norðurlönd, haustmánuðina í