Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1931, Page 122

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1931, Page 122
104 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA skipa — sem marga af öðrum þjóðflokk- um — um ágæti íslenzkrar menningar, hví þá að styðja hér ekki beinlínis að varðveizlu ættararfsins ? Vitanlega fór mikill hluti árs í heim- ferðar-undirbúning og til heimferðar- innar. Þá féll og yfir óvenjuleg óáran, svo að fátt af starfi manna hefir fært út kvíarnar. En undantekning mun það, að hinir yngri, er heimsóttu Island í sumar er leið, hafi ekki snúið hingað íslenzkari og þjóðræknari. Má vera að enn séu þeir ekki meðlimir félagsins. En í framtíðinni hlýtur ást þeirra til Islands að auka útbreiðslu félags vors og skilning á starfi þess. 1 útbreiðslu erindum vitjaði Jón J. Bíldfell í haust og vetur nokkurra bygða i nafni Þjóðræknisfélagsins. Ekki er mér fullkunnugt um árangur þeirra ferða. En þær heimsóknir veit eg að hafa aukið vinsældir félagsins. Deildir þess hafa ekki sent mér skýrsl- ur, nema ein þeirra, deildin “Island” að Brown, Man. Þar hefir starfið enn geng- ið ágætlega, Islendingahópurinn þar ná- lega allur með starfinu, og hefir með- limum heldur fjölgað á árinu. En deild- irnar gera vafalaust þinginu grein fyrir högum sínum. I gegnum mínar hendur hafa á árinu milli 60 og 70 meðlima gengið í félagið. A þingi í fyrra gat eg um málaleitun “Vísis” félags Islendinga I Chicago, um inngöngu í Þjóðræknisfélagið. Ekki gat þó orðið af þeirri einingu, þvi miður. Síðan er kunnugt um islenzk lestrarfélög, er hafa í huga sameiningu við félag vort. Er slík sameining eðlileg og æski- leg. Verður það eitt af verkefnum þessa þings, að hjálpa þeirri stjórn, er fram- vegis fer með mál félagsins, að koma slíkri eining í framkvæmd, annaðhvort með lagaheimild eða þingsályktan. Fræðslumálið, annað höfuðmál vort, er ofið inn í alt vort starf. Sérstök kensla á sér stað, sem að undanförnu, á sviði sönglistarinnar. Islenzkukensla fer fram fyrir börn og unglinga í Winni- peg og Selkirk. I Selkirk taka þátt í þeim lærdómi 80—90 ungmenni. Auk þess hefi eg vikulega lesið íslenzku með smáhóp fullorðins fólks og kanadiskum æskumanni, er hjá mér var í fyrra. Fyrir heimferðarmálinu mun Heim- ferðarnefndin gera þinginu skil. Það á ekki við að eg fjölyrði um þá nefnd. En eg vona að þingið meti starf hennar, og kannist við, hve byrði sú er hún bar, var örðug viðfangs og hve vel leiðang- urinn heim tókst. Síðasti árgangur Tímaritsins, er á- reiðanlega aðal þrekvirki félags vors á árinu. Það er merkið, . sem vér getum borið og bent á án kinnroða. Um bókasafn félagsins get eg þess, að um húsnæði fyrir það var samið við ólaf S. Thorgeirsson. Smám saman er það mál að færast í lag. Safninu bætast bækur, og í sumar var mér lofað af öt- ulum manni i opinberri stöðu, að hlynna að bókasafni félagsins með beinni lög- gjöf frá Alþingi. iþróttamálið, samvinnan við ísland og þátttaka í þjóðlegum sýningum hér vestra, ætti að koma til greina á þessu þingi, þótt eigi séu þau mál talin á aug- lýstri dagskrá. Forsætisráðherra Manitobafylkis, John Bracken, bauð forseta þátttöku í hátíða- ráðstöfun fylkisins. Þótti mér vel við eiga sú viðurkenning á þessum félags- skap Islendinga, af einum æðsta valds- manni þessa fylkis. I fjarveru minni gegndi varaforseti félagsins, séra Rún- ólfur Marteinsson, þeirri kvöð. Auk þess hefir varaforsetinn einatt gegnt fundar- stjórn i fjarveru minni, og ávalt hefir Jóns Bjamasonar skóli staðið oss opinn til fundarhalda. Fyrir slíkt er sjálfsagt að þakka. Samkvæmt ráðstöfun síðasta þings var félagið löggilt og lög þess prentuð á árinu. Að nýafstöðnu síðasta þingi, féll til jarðar merkur og ágætur starfsmaður félagsins, Halldór S. Bardal. Var hann um langt skeið embættismaður þess og á síðasta þingi gerður heiðursfélagi. Dó hann skömmu eftir þinglok og er þvi nafns hans hvergi getið í skrá heiðurs- félaga. Fól stjórnarnefndin mér að minn- ast fráfalls hans við nánustu ættingja hins látna, og gerði eg það með bréfi, dags. 27. marz síðastliðinn. Efalaust féllu frá á árinu fleiri félag- ar, þótt eigi sé unt að geta nafna þeirra hér. En allra þeirra, er arfinum íslenzka
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.