Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1931, Síða 131
ÁRSÞING
113
hefði leyft innflutning á þeim tollfrítt.
Sum rúmin sagði hann að væri nú þegar
farið að nota í skólanum á Laugavatni.
Séra Jónas A. Sigurðsson kvaðst vilja
bæta því við, að jafnframt fjármálahlið-
inni væri önnur til, er að endurminning-
unum lyti, er yrði aldrei fullborguð. Spít-
alavistin hefði verið trygging gegn því,
að nokkur hefði þurft að vera húsnæð-
islaus. Sagðist hann vona, að öll misklíð
legðist nú niður, og skoraði á þá, sem
viðstaddir voru, og eigi væru meðlimir
Þjóðræknisfélagsins, að ganga í það.
Næst tók til máls Mr. Þorgils Ás-
mundsson. Kvaðst hann standa í þakk-
lætisskuld við íslenzku þjóðina, fyrir við-
tökurnar heima, og Heimfararnefndina,
fyrir undirbúningsstarf hennar. Kvaðst.
hann vilja bjóða nefndinni sinn skerf af
afslættinum, til hvers sem hún vildi
nota hann.
Mr. Christian Siverts bar fram tillögu
þess efnis, að fundurinn votti Heimfar-
arnefndinni þakklæti sitt og traust, og
að aðgerðir nefndarinnar viðvíkjandi
kaupum á húsgögnum til afnota fyrir
Vestur-Islendinga í Landsspítalanum, og
útgjöldum í sambandi við það, séu sam-
þyktar. Tillagan var studd af Þorgilsi
Ásmundssyni og samþykt í einu hljóði.
Mr. Sigmundur Laxdal talaði nokkur
orð um starf Heimfararnefndarinnar, og
lauk lofsorði á það. Lagði hann til að
nefndinni væri gefin full heimild til að
nota afsláttinn eins og henni þóknaðist
og þætti með þurfa.
Mr. Árni Eggertsson studdi tillöguna
°S gaf um leið nokkrar skýringar við-
víkjandi sölulaunum og lagaákvæðum
I sambandi við þau.
Hr. Þorsteinn Gíslason las og einnig
tillögu, sem var sama efnis og tillaga
Laxdals.
Var svo gengið til atkvæða um tillögu
Laxdals og Á. Eggertssonar og var hún
samþykt í einu hljóði.
Gerði þá Sigm. Laxdal tillögu, sern
var studd af séra Jónasi A. Sigurðssyni,
úm að fundi væri slitið, og var hún
samþykt.
Pundi slitið.
Guðm. Arnason,
ritari.
Um kostnaðinn I sambandi við verú
hátíðagesta þeirra, er á vegum heim-
fararnefndarinnar fóru á hátíðina, get
eg verið fáorður, því féhirðir nefndar-
innar leggur fram ítarlega skýrslu um
útgjöld og tekjur nefndarinnar. Það er
nóg fyrir mig að segja aðeins frá aðal-
útgjaldaupphæðinni á Islandi, sem nam
$9,046.31, og þess að þegar við fórum,
voru allir húsmunirnir, þeir sem keyptir
höfðu verið í spítalann, afhentir stjórn
Islands að gjöf og nam sú upphæð
$4,500.40.
Um starf nefndarinnar hér vestra
eftir að heimfararmálið klofnaði, er það
að segja að hún hélt áfram stefnu
sinni og starfi eins og ekkert hefði í
skorist, enda var engin ástæða til
breytinga frá hennar sjónarmiði. Aðal-
augnamið hennar frá byrjun var að gera
ferðina sem veglegasta, og þeirri stefnu
hélt hún út í gegn. En klofningurinn
gerði verkið erfiðara og dýrara eins og
bent hefir verið á. Ferðalög í fjarliggj-
andi bygðir urðu nefndarmenn að takast
á hendur, til þess að halda samböndum
og eyða misskilningi, sem tíðum vill
eiga sér stað, ekki sízt þar sem við
keppinauta er að etja, eins og hér átti
sér stað. En aðalatriðið er, að árangur-
inn af starfinu varð sæmilegur, þvi hóp-
urinn ,sem heim fór á vegum Heimfarar-
nefndarinnar, var undir kringumstæðun-
um, mjög myndarlegur, um 368 manns.
Um ferðina heim, viðtökurnar í Reykja-
vík, hátíðina og kveðjur, er haldið var
vestur aftur, tala eg ekki hér, heldur vísa
til ritgerðar um það efni í þessa árs
Tímarit félagsins, þar sem all itarlega er
frá þvi skýrt.
Eins og féhirðir nefndarinnar mun
skýra frá, þá er ekki hægt fyrir nefndina
að gefa fullnaðarreikningsskil á þessu
þingi, það eru enn ókláraðar smásakir
við C. P. R. félagið og eins ólokið út-
gjöldum í nokkrum tilfellum. En í öll-
um aðalatriðum er reikningum lokið, og
þeir yfirskoðaðir. Dálítinn afgang kem-
ur nefndin til að hafa með höndum, eftir
að öllum útgjöldum er lokið, og hefir hún
ákveðið að þeim afgangi skuli varið sem
hér segir, eftir að þjóðræknisfélaginu er
greitt til baka hvert cent, sem það hefir
látið nefndinni i té.