Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1949, Side 18

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1949, Side 18
16 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA hæf kona, að héraðsbrest mátti kalla, þá er hún féll frá; en um hana hefir Gunnar skrifað minn- ingargrein merka og fagra ásamt erfiljóðum undir ljóðahætti. Er hvorttveggja með því fegursta er Gunnar hefir ritað, og er auðséð, að honum hafa hnitið við hjarta örlög hinnar stórbrotnu og góðvilj- uðu frændkonu sinnar. Enn ein mannlýsing er í Árbók- inni: greinin um „Töframanninn“ Halldór Kiljan Laxness fertugan. Er sú grein af glettum rituð, en þó af ósvikinni aðdáun á galdralist Lax- ness, þótt eigi þyki Gunnari hinn kommúnistíski áróður Laxness til bóta. Um Sölku-Völku segir Gunnar: „Það er ekki mörgum skáldum gefið að draga upp mynd af íslensku eðli í ömurleik útkjálkans á borð við Sölku-Völku; en það er hún sem ber söguna uppi . . . og lyftir henni upp úr svaði dægurmálanna og inn í heimsbókmentirnar". Um Bjart í Sumarhúsum: „Úr landnemanum í eigin landi hefir Halldór með hárbeittri rimmugýgi feðratungunnar axað hálftröll, er sómir sér hið besta í forneskju lands- lags og lífskjara. Mun kotkarl sá verða ærið langlífur í landinu, og' mega sumir þeir, er mest býsnast yfir honum . . . vara sig á að minn- ing þeirra sjálfra með þjóðinni verði ekki minni“. Um Ólaf Ljósvíking: „Þeim, sem þetta ritar, er ekki kunnugt um, að til sé sambærileg lýsing á skáldi í álögum umhverfis og erfðakenja, enda hefir Laxness hvergi með ann- ari eins innfjálgi gefið sig innblæstri sínum á vald“. Þetta eru ekki ómerkileg ummæli manns, sem enginn getur vænt kommúnisma, né heldur hins að hann hafi ekki vit á skáldsagnagerð! Og annarsstaðar í Árbókum þess- um áréttar Gunnar álit sitt á Lax- ness með því að segja, að hann þekki engan höfund núlifandi á Norðurlöndum, er fari fram úr Lax- ness.* „Heillin“ segir frá vansköpuðum hænuunga, „Sagan af Valda“ (sam- in fyrir danska útvarpið og lesin í það 1938) er af meiddum svartþrast- arunga, en örlög þessara vesalinga verða Gunnari tilefni til hugleið- inga um gátu mannlífsins. Því hvernig á að koma því saman, að menn skuli vorkenna slíkum vesa- lingum og leggja við þá ást og um- önnun á sama tíma og þeir standa í heimsstyrjöldum, drepa og lim- lesta milljónir bræðra sinna og þurka borgir svo hundruðum skift- ir út af kortinu? En samt, meðan menn geta vorkent vesalingum, þá er ekki alveg vonlaust um fram- tíð þeirra, að ætlun Gunnars. „Þáttur tungunnar“ og „Landið okkar“ eru gullfallegar greinar um tvo sterka þáttu íslensks þjóðernis. Gunnar telur tunguna réttilega aðalgrundvöll hins endurheimta sjálfstæðis íslendinga. En um vernd hennar segir hann meðal annars þetta: „Að lokum skal minnst sérstak- lega á þann þáttinn í vernd tung- sem síst liggur í augum uppi og er <:Þegar þetta er ritaS, er Sjálfstaítt fólk a'S fara sigrurför um SvíþjóS, enda var Laxness einn af þeim, er kom til mála aS fengju Nóbelsver’Slaunin þetta ár, þótt engum væri veitt. En ætli hann hefSi ekki fengiö þau, ef hann hefSi ekki veriS kommúnisti?
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.