Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1954, Page 48

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1954, Page 48
30 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA bók endar á annál, er nær til ársins 1394. Ég ætla að birta hér það, sem segir í annálnum frá árinu 1382: Kom til íslands Andrés Sveinsson hirðstjóri, skipaður af kóng Ólafi. Item bréf Urbani papa kom til Nor- egs og upp lesið að hverri kirkju og Robertus, er kallaðist papa, boðaður bannsettur. Kosinn síra Hákon ívars- son til erkibiskups af öllum kórs- bræðrum og ætlaði í burt til papa og komst eigi lengra en í Þýðversku- land. Þar frétti hann, að vígður var til erkibiskups á papagarði danskur leikmaður, er Nikulás hét. Forgekk skip staðarins í Skálholti. Komst af fólkið á báti til Grænlands með miklum jarteiknum. Kenndist Jón kjagi þrjú morð og var kviksettur síðan. Varð endilegur vegur á Kisamálum, og vann Sýslu-Oddur. Efldust flokkar og friðleysi. Ástandið er ekki gott. íslendingar hafa lotið Noregskonungum á aðra öld og hafa nú enn fengið nýjan konung og nýjan hirðstjóra. Úti í álfunni gengur á ýmsu, einn páfinn bannfærir annan, og leikmaður er skipaður erkibiskup í Noregi þvert ofan í vilja allra kórsbræðra. Og ekki tekur betra við, þegar til ís- lands kemur, því að þar virðast einkunnarorðin vera: flokkadrátt- ur og friðleysi. En forn stórhugur og ást á bókum lifir þó enn í land- inu, og er Flateyjarbók glæsilegasta dæmi þess. Skal því nú skýrt örlítið frá útgerð hennar. Jón hét maður Hákonarson, fædd- ur árið 1350. Var hann sjöundi maður frá Hvamm-Sturlu, föður Snorra. Langalangafi Jóns var Svarthöfði Dufgusson, er mjög kemur við sögu Sturlunga og talinn er einn helzti heimildarmaður að Þórðar sögu kakala. Er Jóni því ættgengt að hafa yndi af sögum og bókum. Ekki er vitað með vissu, hvar Jón bjó 1382, er hann hóf að láta rita Flateyjarbók, en kunnugt, að hann keypti Víðidalstungu 1385 og kann að hafa verið kominn þangað áður. Hafði afi Jóns búið þar lengi og síðan föðurbróðir hans, og af honum keypti hann jörðina. Annars skiptir þetta ekki miklu máli. Aðalatriðið er framtak Jóns, og er það því merkilegra sem hann er aðeins 32 ára, þegar hann ræður sr. Jón Þórð- arson til verksins, en svo hét annar aðalritari Flateyjarbókar samkvæmt formála hennar. Síðar tók sr. Magnús Þórhallsson við verki sr. Jóns og lauk bókinni, auk þess sem hann lýsti hana alla, þ. e. skreytti hana myndum og dró upphafsstafi. Sú Flateyjarbók, er vér nú höf- um, er nokkru stærri en sú, er skrifuð var fyrir Jón, því að hún var aukin á síðari hluta 15. aldar. Þegar Magnús Þórhallsson skildi við hana, var hún 202 blöð, en varð með viðbótinni alls 225 blöð eða 450 blaðsíður. Þurfti í bókina alla hvorki meira né minna en 113 kálfskinn, en 2 blöð fengust úr hverju skinni. Flateyjarbók er einna bezt varð- veitt hinna fornu handrita og á sér merkilega sögu, er Sigurður Nordal hefur rakið á mjög skemmtilegan hátt í formála fyrir 1. bindi 2. út- gáfu Flateyjarbókar (Reykjavík 1944—’45). Lýsir hann þar bæði til- orðningu hennar og afdrifum, og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.