Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1954, Page 96

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1954, Page 96
78 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA einnig leið sína niður að legstað þeirra hjóna, en jarðneskum leifum þeirra var búinn staður í klettahlíð á ströndinni fyrir neðan heimili þeirra. Því næst var ekið til „Gamle- haugen“, heimilis Christian Michel- sen forsætisráðherra, en það er mjög ríkmannlegt höfðingjasetur, því að hann var auðugur athafnamaður. En sinn mikla virðingarsess í sögu Noregs skipar hann fyrir það, hve viturlega og farsællega honum fórst úr hendi stjórnarforustan, er leiðir skildu með Svíum og Norðmönnum árið 1905. Er heimili hins mikilhæfa stjórnmálaskörungs nú ríkiseign og aðsetur norsku konungsfjölskyld- unnar, er hún heimsækir Björgvin. Síðast var í umræddri hópferð skoðuð Fantoft stafakirkja, en hún er ein af hinum sérstæðu norsku tré- kirkjum af því tagi, og hefir verið fenginn staður í umhverfi, sem sam- ræmist ágætlega gerð hennar og svip. Björgvin er sú af stærri borgum Noregs, þar sem hið gamla og hið nýja mætist um margt á hvað eftir- tektarverðastan hátt; þar eru enn borgarhverfi með miðaldasvip um húsa- og gatnagerð, samhliða bygg- ingum með nýjasta sniði og breiðum nútíðarstrætum. í Haugasundi og Stafangri Héldum við nú áfram ferð okkar með skipi suður með Noregsströnd- um og var Haugasund næsti áfanga- staður okkar, og er þá komið í Rygjafylki, en af Rogalandi og Ögðum fluttist fjöldi ríkra manna til íslands, er urðu þar héraðshöfð- ingjar; meðal þeirra var Geirmund- ur heljarskinn og frændlið hans, en hann var slíkur höfðingi, að hann bar konungsnafn. í Haugasundi er Haraldur kon- ungur hárfagri grafinn og reistu Norðmenn á haugi hans minnisvarða mikinn árið 1872, á þúsund ára af- mæli Hafursfjarðarorustu, að því er venja var að telja; en sú orusta markaði lokasigur Haralds konungs yfir andstæðingum hans og þá um leið sameiningu Noregs í eina ríkis- heild. Grípa íslending einkennilegar til- finningar, er hann stendur við minn- isvarða hins gamla konungs, og hug- leiðir, hvern grundvallar þátt hann átti í landnámi íslands frá Noregi. Úti fyrir Haugasundi er eyjan Körmt, þar hafði Haraldur hárfagri konungsbú mikið að Ögvaldsnesi, sem nú nefnist Alvaldsnes á norsk- unni, og dvaldi hann þar oft á seinni stjórnarárum sínum. Nálægt hinum forna konungsgarði reisti Hákon Hákonarsson (Hakon IV) síðar Ólafskirkju; hrörnaði hún, er aldir liðu, en hefir nýlega verið endur- bætt, og var 700 ára afmæli hennar hátíðlegt haldið 1950. Við hjónin gerðum okkur sérstaka ferð út að Ögvaldsnesi. Skoðuðum við kirkjuna, og þótti hún merkilegt hús; einnig kom okkur saman um, að vel hefði Haraldur hárfagri valið þar stað konungsbúi sínu, því að þaðan sér vítt yfir, og því auðvelt að fylgjast með mannaferðum. Frá Haugasundi fórum við með samnefndu strandferðaskipi til Staf- angurs, og er það aðeins nokkurra klukkustunda ferð. Farið er þvert
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.