Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1954, Side 120

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1954, Side 120
102 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA Glenboro skrifaöi 31. okt. s.l., í tilefni af fráfalli hans: „Hann kom fullorBinn frá Islandi, og hann baröist drengilega til mennta og frama. Hann hefir unnitS stórt dagsverk; hann var fjölhæfur drengskap- armaður og þjóörækinn". Þjóöræknis- félagiö saknar séra Egils úr hópi starfs- manna sinna og vottar ekkju hans og sonum innilega samúö. Annar fyrrverandi meölimur stjórnar- nefndar félagsins, hr. Ásmundur Pétur Jóhannsson, lézt einnig síöla á árinu. Hann var, sem kunnugt er, einn af stofn- endum félagsins, embættismaöur þess um fjöida ára og einn hinn ötulasti styrktar- maöur þess á allan hátt. Forseti hefir skrifað fáein minningarorö um þennan ágæta starfsmann í Tímarit félagsins, sem nú er nýprentað. Skal því ekki fjölyrt um hann hér umfram það að segja, að Ás- mundar mun minnst eins lengi og þetta félag vort er við liði. Hann var bygginga- meistari í meira en einu tilliti. Hann lagði drjúgan skerf I byggingu þessa félags, og var um allt hinn mesti sæmdarmaður. Þjóðræknisfélagið þakkar störf hans og mun jafnan halda minningu hans í heiðri. Þá var að Þjóðræknisfélaginu harmur kveðinn við hið óvænta fráfall Herra Sigurgeirs Sigurðssonar, biskups yfir Is- landi og forseta Þjóðræknisfélags Islend- inga I Reykjavik; var hann einnig heiðurs- meðlimur félags vors. Þrátt fyrir fjarlægð- ina var hann oss jafnan nálægur í anda og hann hafði vakandi áhuga á störfum vorum. Heimsólcn hans til vor I tilefni af 25 ára afmæli þessa félags verður oss flestum, sem kynntumst honum, ógleym- anleg. Fjölmargir Vestur-íslendingar, sem heimsóttu ættjörðina f biskupstið hans, nutu margvíslegrar fyrirgreiðslu og gest- risni á hinu glæsilega heimili hans og frú Guðrúnar að Gimli í Reykjavík. Sem for- seti Þjóðræknisfélags íslendinga, og sem heiðursmeðlimur vor, stóð hann I nánu sambandi við oss hér vestra og sendi oss kveðjur og uppörfunarorð við ýmis tæki- færi. Forseti sendi fjölskyldu hans sam- úðarskeyti f tilefni af fráfalli hans; þingið mun þakka honum störf hans og biður ástvinum hans blessunar. Aðrir meðlimir félagsins, sem látist hafa á árinu, og forseta er kunnugt um, eru þessir: Jóhannes Sveinsson, Inglewood, Cal.; Sigurður Sigurðsson, Calgary; Finn- bogi Hjálmarsson, Vancouver; Magnús Brandson, Winnipeg; Trausti ísfeld, Sel- kirk; Ágúst Magnússon, Lundar; Kristján Kristjánsson, Eyford, N.D.; Mrs. Kristján G. Kristjánsson, Eyford, N.D.; Jóhannes Pétursson, Winnipeg; Þorlákur Nelson, Lundar: Jón Sigurðsson, Gimli; Eggert Devy, Ósum; Guðmundur Þorsteinsson, Winnipeg; Þorsteinn Sveinsson, Winnipeg; Valdimar Jóhannesson, Árborg; Guðjón Friðriksson, Selkirk; Mrs. G. S. Paulson og Mrs. B. Mýrdal, Argylebyggð; Jóhann Kárason, Guðrfður Eiríksson, Hannes Kristjánsson og María Frederick, Seattle. Ungfrú Margrét Pétursson, vara-féhirðir félagsins, sem tók sæti I stjórnarnefndinni á síðasta þingi, veiktist s.l. sumar og hefir verið frá störfum urn all-langt skeið. Hún var ötul, ósérhlífin og mjög samvizkusöm I nefndarstörfum sínum sem öðrurn verk- um. Þingið óskar henni heilsubótar og langra lífdaga. Tveir meðlimir stjórnarnefndar voru fjarverandi um skeið, þeir prófessor í'inn- bogi Guðmundsson, vara-skrifari, og vara- fjármálaritari, ólafur Hallsson, kaupmað- ur. Fjarvera þeirra reyndist þó nefndinni og félaginu ávinningur, fremur en áfall. Þeir voru, sem kunnugt er, í íslandsferð og rálcu þeir þar ýmisleg erindi fyrir fé- lagið, svo sem síðar mun vikið að. Vér erum ekki saman komin hér til þess eins að telja harma vora, eða til þess að núa höndum saman I örvæntingu og uppgjöf. Vonbrigði steðja að félags- samtökum sem einstökum mönnum, vinir berast burt á straumi tímans, en lífið og starfið kalla sem fyrr. Lítil eru þá geð guma ef nú skal heykjast, og lítil virðing er minningu horfinna starfsmanna sýnd með uppgjafarnöldri og bölsýni. Hvað hefir þá gerzt? 1 stuttu máli hefir það gerzt, að félag þetta er enn til eftir 35 ára starf, og að það heldur enn f horfinu. Ef til vill er það furðuverkið mesta, eða svo mun þeim sennilega þykja, sem í upphafi spáðu þessu félagi bráðum dauða. Félagið hefir haldið í horfinu, sagði ég. En hvert er þá við- horfið ? Það er tvíþætt og þeir þættir svo samantvinnaðir, að oft er erfitt að gera greinarmun á þeim. Annars vegar horfum vér til austurs, — til Islands; hins vegar horfum vér á umhverfi sjálfra vor. Sambandið við ísland er þessu félagi lífsnauðsyn. Ef það rofnar, er oss hætta búin. Þessu sambandi er haldið við með ýmsu móti, með gagnkvæmum heim- sóknum, með bókum og blöðum, og með útvarpi og myndum. Allt þetta hefir komið mjög til greina á umliðnu ári. öllum er enn í fersku minni hópferðin mikla, sem prófessor Finnbogi Guðmunds- son efndi til og veitti forstöðu á s.l. sumri- Með þeirri ferð má vonandi segja að haíi orðið þáttaskipti í samfélagi heimaþjóðar- innar og Vestur-íslendinga. Aldrei hefir jafn stór hópur manna farið til íslands á jafn skömmum tíma. Viðtökur voru hinar ágætustu, og ferðin öll frábærlega hress- andi og fróðleg, að sögn þeirra, sem tóku þátt f henni, en það voru I allt 38 manns, 28 frá Canada og 10 víðsvegar að ár Bandaríkjunum. Mjög er það æskílegt, að framhald geti orðið á slfkum hópferðum,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.