Harpan - 01.12.1937, Side 3

Harpan - 01.12.1937, Side 3
 1. árg. Reykjavík 1937 9.—12. blað VETUR GENGUR í GARÐ Meðal þeirra, er berjast um völdin í veröldinni, eru dagur og nótt. Þau elta og eyða hvort öðru eftir megni. Á hverjum sólarhring fara þau hér um og dveljast með okkur, þar til sér til hins. Þá er lagt af stað, því að saman geta þau aldrei unað. Þau bæði elta og flýja hvort annað óaflátanlega. Hve lengi þau dveljast með okkur, hvort um sig, fer aðallega eftir árstíðum. Dagurinn er sonur sól- ar og samrýmdastur sumrinu, en nóttin er dóttir dauðans og unir bezt í veldi vetrar. Það er skammt á dag liðið, en skuggarnir eru þó orðnir óralang- ir. Þeir læðast, eins og kötturinn, hljóðvana, og áður en varir hafa þeir teygt arma sína yfir bæi og dreifðar byggðir. í spor þeirra fylgir forboði deyjandi dags — rökkrið. — Dagurinn er orðinn óþægilega stuttur starfandi manni og hálf kaldranalegur. Á gróðursælar byggðir er kom- inn ískyggilegur feigðarfölvi. Fuglasöngurinn daprast og hljóðnar með degi hverjum. Fleygir vinir vorir, þeir, sem fæddir eru sumrinu og sólunni, þola eigi vængjasúg ,,Norðra“ og hverfa nú aftur til suðrænna stranda. Þeir, sem trygglyndast- ir eru og tregastir við oss að skilja, verða tíðum að gjalda tryggð sína með dauða. Háfjallagróðurinn virðist þó kæra sig kollóttan um forboða vetrarins. Hann er fæddur upp við harðræði og gróðursettur þar, sem sá sterki einn heldur velli. Skýin eru dökk og drungaleg og hóta hörðu. Geigvænn gnýr heyr- ist öðru hvoru frá fjallabrúnum og skörðum. Blíðlegt hjal bár- unnar við ströndina heyrist stöð- ugt þyngra og þyngra, líkt og hafið sé að taka á sig illra anda álagaham. — Sójin skín ekki jafn hlýtt og bjart sem fyr óg felur sig stundum dögum saman að skýja- baki. — Fiðrildin, sem flugu blóm af blómi og uku á litskrúð og líf sumarsins, eru löngu horfin. Þau eru aðeins hásumars börn. 129

x

Harpan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harpan
https://timarit.is/publication/916

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.