Harpan


Harpan - 01.12.1937, Blaðsíða 16

Harpan - 01.12.1937, Blaðsíða 16
H A R nafni. Rödd með hörðum málmhljóm sagði: „Nei; mér virðist ekki að neinn geti borið í bætifláka fyrir jafn latt og slæmt barn eins og Karla er, og nú vitið þið mína skoðun.“ Ha! — Hvað í ösköpunum var þetta? Gat það verið, að fingurbjörg mömmu hennar væri búin að fá mál? Pað leit út fyrir það. Hún hafði klifr- að upp á langa stoppnál í sauinapúðanum og horfði það- an yfir ýmsa aðra hluti á saumaborðinu, sem allir virt- ust vera sprell-lifandi. — Pað sýndist Körlu að minsta kosti. „Pú hefðir heldur átt að segja hugsunarlaus en vond,“ skutu gleraugu mömmu henn- ar inn í. „Karla er ekki vont barn; hún hefir bara ekki hugsun á því, sem liggur henni næst — að hjálpa mömmu sinni. I gegnum glerin mín er ég réttsýnni en þið hin. Hún er vel gefin, en löt og hirðu- laus. En vond. — Nei, það er Karla ekki.“ Fingurbjörgin hristi sig gremjulega, svo að söng í; er hún slóst í nálina. „Jæja; svo að hún er ekki vond?“ sagði hún hæðnis- lega. „En mætti ég biðja hæstvirt gleraugun að minnast þess, að hversu skarpa sjón sem þau kunna að hafa, er tunglsgeislarnir leika um þau, 142 P A N þá hafa þau þó ekki nema tvö augu. En ég hefi afíur á móti óteljandi augu og get séð allt miklu betur en þið. Og ég stend við þá staðhæfingu mína, að Karla er vond stúlka. Hvernig gæti hún öðru vísi horft á það, að móðir hennar þrælar frá morgni fram á nótt? Væri það ekki sánngjarnt, að þessi stóra stelpa færi á fætur á morgnana og hitaði kaffið handa mömmu sinni, sem er rétt almennilega sofnuð, þegar hún verður að rísa úr rekkju aftur til að þræla. Og hvað væri eðlilegra, en að Karla hjálpaði bræðrum sínum til að klæðast, áður en þeir fara í skólann, í stað þess að liggja sjálf í bælinu fram á síðasta augnablik og láta mömmu sína, dauðþreytta, dekra við sig eins og prinsessu. Á mamma hennar að gera allt ein? Ef þessi stóra, lata stelpa hjálpaði henni á daginn, gæti hún setið meir við saumana og þyrfti ekki að vinna líka um nætur. Og sjáið þið ekki, hve föl og veikluleg móðirin er? Það er áreiðanlegt, að hún kembir ekki hærurnar. — Og hvað verður um börnin, þegar hún er fallin frá?“ Fingurbjörgin var nú búin að tala sig heita og varð að stanza, en þá tóku skærin til máls. „Heiðraða fingurbjörg; þú
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Harpan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harpan
https://timarit.is/publication/916

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.