Harpan - 01.12.1937, Page 17

Harpan - 01.12.1937, Page 17
H A R gortar nú kannske fullmikið af þínum mörgu augum. Ég hefi líka augu, og þau svo stór, að sjá má allmikið með þeim. Ég sé, að þú hefir rétt fyrir þér, en ég álít, að sokin sé ekki hjá Körlu einni. Gæti Kaj ekki líka hjálpað til, þótt ekki væri nema að bursta skóna sína og systkina sinna? Hversu margir drengir á hans aldri mega ekki gera slíkt? Og ætli hann gæti ekki verið lítið eitt varkárari með fötin sín. Spyrj- ið alla hnappana, sem slitnað hafa af fötunum hans. Parna liggja nokkrir á borðinu. Mamma hans ætlaði að festa þá á í nótt, en þreytan yfir- bugaði hana. Spyrjið þá, hvemig drengirnir haga sér.“ Hnapparnir höfðu heyrt ræðu skæranna, risu nú upp á rönd og andvörpuðu. ,,Já; því miður höfum við veiið flestir á mörgum sinnum. Pað eru svo fáir, sem gefa sér tíma til að afhneppa okkur gætilega. Detti einhver okkar á götuna, dettur sárfáumi í hug að hirða okkur. Og það er ekkert barnanna hérna, sem athugar það, að við kostum peninga, og að mamma þeirra verður að sauma mörg spor fyrir hvern okkar, er kaupa þarf í þeirra stað, er týnast“. Nú heyrðist lág rödd úr horninu, þar sem kjólar móð- urinnar héngu. Horn á vasa- P A N klút gægðust lítið eitt upp úr vasa. Pað var hann, sem tal- aði: „Eða samkomulagið hjá börnunum. Pá er það ekki á marga fiska,“ sagði hann and- varpandi. „Alltaf eilífar klag- anir og köll til móðurinnar. Veslings konan er líka stund- um í vandræðum með að stilla til friðar. Petta þreytir hana mikið og tefur.“ Fingurbjörgin gat nú ekki þagað lengur og greip fram í fyrir vasaklútnum: „Já, en hver á sökina? Auðvitað Karla! Hún er elzt og ætti að vægja lítið eitt fyr- ir systkinum sinum. Drengirnir eru óstýrilátir, en eru í raun- inni beztu drengir. Nokkur vingjarnleg orð myndu of+ nægja til að stilla til friðar, en KarJa gerir illt verra með því að taka sjálf þátt í deilunum og vera enn orðverri og frek- ari en þeir. Nei; hún er ekki gott barn. Ég læt ekki af þeirri skoðun, livað sem ykkur hin- um þóknast að segja.“ Vasaklúturinn tók nú aftur orðið: „Ég held nú að þú sért ekld alveg laus við öfgar. Að vísu grætur inóðirin oft yfir Körlu. Um það veit enginn betur en ég og bræður mínir, sem þerr- um tár hennar til skiptis. En ég held samt, að Karla sé ekki eins vond og þú telur þér trú 143

x

Harpan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harpan
https://timarit.is/publication/916

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.