Harpan - 01.12.1937, Side 36

Harpan - 01.12.1937, Side 36
H A R þessi vöndur var ekki úr venju- legum blómum, er tína mátti í görðum eða úti í skógi. Hann var búinn til úr skínandi steinum, eins og þeim, er skreyttu höll dverganna og kórónu konungs- ins. Móðir þeirra tók eitt lítið blóm úr vendinum, fór með það til gull- smiðsins og spurði, hve mikils virði það væri. Henni til mikillar undrunar sagði hann henni, að blómið væri búið til úr dýrustu gimsteinum, og hann borgaði henni svo mikið fyrir það, að hún gat lifað af því heilt ár eða lengur. Smám sainan seldu þau alla steinana og keyptu stóran búgarð handa Háraldi og lögðu fyrir stóra fúlgu af peningum í heim- anmund handa Láru, er hún gifti sig. Þið getið ímyndað ykkur, hve mikla athygli þetta vakti í þorp- inu. Allir vildu verða jafn auð- ugir og hamingjusamir og Har- aldur. Drengir úr þorpinu tóku sér náttstað undir næstum hverju tré í skóginum. Hópar af mönnum rannsökuðu klettabeltin, til þess að finna innganginn^ í ríki dverganna — en árangurslaust. Haraldur var sá eini, sem feng- ið hafði að sjá það. Rað fekk ekkert mannlegt auga að líta framar. Lausl. þýtt. M. M. P A N 9. Hvað sagði kóngur við Har- ald? 10. Hverju svaraði Haraldur kóngi? 11. Hverju svaraði kóngur Har- aldi? 12. Hvað sá Haraldur í fjárhirzlu kóngs? 13. Lýsið veizlubúnaði og réttum. 14. Hverjir skipuðu hljómsveit dverganna? 15. Lýsið dvergunum og dverga- meyjunum í táansinum. 16. Hvað gerði Haraldur að dans- inum loknum? 17. Meðan kóngur var að sækja borgunina — þá . . .? 18. Hvar vaknaði Haraldur, og hvernig varð honum við? 19. Segðu frá samtali Haralds og móður hans, er hann kom heim. 20. Hvað sáu þau, er gluggahler- arnir voru opnaðir? 21. Úr hverju var blómvöndurinn búinn ? 22. Hvað fengu þau fyrir hann? 23. Hvað gerðu þorpsbúar, er þeir fréttu heppni Haralds? 24. Lesið nú söguna frá byrjun og reynið að endursegja hana með ykkar eigin orðum. Verkefni IV. Anna, Auður, Áki, Baldur, Barði, Báran, Birgir, Bragi, Dröfn, Hlíf, Hrímnir, Hulda, Líf, Nanna, Sjöfn, Ægir. 162

x

Harpan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harpan
https://timarit.is/publication/916

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.