Harpan

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Harpan - 01.12.1937, Qupperneq 39

Harpan - 01.12.1937, Qupperneq 39
H A R A N sót, þar sem þéttbýli er. Pað vant- ar þau sölt, sem jarðvatnið hefir, og er bragðvont og ólystugt til drykkjar, en ágætt til þvotta, þar eð það er ómengað af kalki. Bezta neyzluvatnið er upp- sprettuvatnið. I því eru uppleyst ýms sölt — ólífræn efni — svo sem járn, brennisteinn, sódi, salt, kalk. Stundum er svo mikið af þessum efnum, að bragðið er beiskt — ölkeldur. Vatn er ávalt blandað loft- kenndum efnum. I uppsprettum er oftast lítið eitt af kolsýru, og gerir hún vatnið bragðbetra. Sé í vatninu mjög mikið af kalki — hart vatn — er erfitt að þvo úr því, þar eð kalkið samein- ast sápunni. Hún freyðir því ekki og leysir ekki upp óhreinindi. Bæta má þetta með því að setja nægan sóda í vatnið. — Hann bindur kalkið. Brunnvatn getur verið ágætt, en þó því aðeins, að yfirborðs- vatn geti ekki síazt í það. Brunn veggir verða því að vera vatns- heldir. Mikils hreinlætis þarf að gæta með brunnfötur. Með þeim geta borizt sóttkveikjur ogóhrein- indi frá mönnum og dýrum í vatnið. Brunnar þurfa því að vera lokaðir og vatninu dælt úr þeim. Reynið að tryggja ykkur gott neyzluvatn með vönduðum frá- gangi vatnsbóla. — Gott vatn er heilsusamlegast allra drykkja. P Grjól er nú í Gnípulóft þjóðsaga. Bóndinn á Tindum í Svínadal hafði orðið seinn til með að slá túnið sitt. „Sá gamli“ bauð nú bónda að slá fyrir hann túnið á einni nóttu, gegn því, að bóndi gæfi honum sál sína. En bóndi skyldi vera laus við allar skyldur, ef „Sá gamli“ hefði ekki lokið slættinum um sólaruppkomu. Gekk bóndi að þessum skilyrðum, en var svo forsjáll, að setja bibl- íu í tóft eina í túninu, sem hét Gníputóft. „Sá gamli“ tók nú til óspilltra málanna og gekk verkið greiðlega, þar til hann kom/ í tóft- ina, þá beit ekkert hjá honum ljárinn, og var hann enn að hjakka þar, er sól kom upp. Kvað hann þá þessa vísu: Grjót er nú í Gníputóft, glymur járn í steinum, þótt túnið sé á Tindum mjótt, þá tefur það fyrir einum. Var bóndi nú laus allra mála, en „Sá gamli“ hafði ekkert upp úr krafsinu. Vignir Ársælsson 12 ára, seridi blaðinu. Til umhugsunar. 1. Dragðu 15 frá 15 þannig, að eftir verði 90. 2. Taktu 2 af 12 þannig, að eftir verði 2. 163
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Harpan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harpan
https://timarit.is/publication/916

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.