Harpan - 01.12.1937, Page 58

Harpan - 01.12.1937, Page 58
H A A N R ið loga hjá henni, því að hún var steinblind. Engillinn horfði lengi á hana, og sá, hvað hún var að hugsa. Hún hugsaði um það, er hún var ung stúlka og gladdi sig við öll jólaljósin. Svo hugsaði hún um það, er hún var fullorðin kona og átti svolítinn, ljóshærð- an dreng, sem henni þótti miklu vænna um en sjálfa sig. Hún hafði unnið fyrir honum,og vak- að yfir honum, þegar hann var veikur. Hann var nú orðinn stór og myndarlegur maður — og húsbóndinn á þessu heimili. Og þessi gamla kona hugsaði alveg eins og barn. — Allt gamalt fólk gerir það. Og engillinn sá stór tár koma fram í blindu aug- un. Hann fór að glugganum, þar sem börnin léku sér inni. Hann horfði á þau fast og lengi. Allt í einu stóð upp lítil stúlka, sem hét Þóra, í höfuðið á gömlu konunni blindu, sem var amma hennar. „Ösköp er þetta skrítið,“ sagði hún við börnin. „Mér heyrðist ein- hver hvísla að mér: „Mundu eftir henni ömmu þinni!“ Ög mér sýndist ég sjá mynd af ömmu minni um leið, og mér sýndist hún vera að gráta. Ég ætla að fara upp á loft og vita, hvernig henni líður.“ Síðan fór Þóra litla upp til ömmu sinnar og öll börn- in á eftir henni. „Hvað eigum við að gera þér til skemmtunar á jól- unum, amma?“ spurði Þóra. Gamla konan rétti fram höndina þunna, magra og titrandi og alla 184 P með bláum rákum, þreifaði á Þóru litlu og sagði: „Ég veit ekki barnið mitt. Ég held mér þætti skemmtilegast, ef þið væruð hérna hjá mér svolitla stund og töluðuð við mig eða lékuð ykkur hérna inni. Mér þykir svo skemmtilegt að hlusta á glaðværð barnanna.“ Og Þóra gamla kyssti á handar- bak nöfnu sinnar. Og það var eins og einhver hvíslaði því að öllum börnunum, að þau skyldu fara þangað upp með gullin sín, og eftir fáar mínútur var herbergi gömlu konunnar orðið fullt af jólaglingri og barnagleði. Og hún hafði ekki lengi lifað eins skemmtileg jól. Svo fór jólaengillinn bæ frá bæ og hús úr húsi og hafði áhrif á hugsanir fólksins. Svo hélt jólaengillinn áfram. Og þegar hann var að fara yfir stóra, fjölfarna götu í einni borg- inni, þá sá hann hvar tveir menn sátu úti í kuldanum og voru að borða. — Þeir höfðu verið þar að grafa skurð og voru langt frá heimilum sínum. Þeir ætluðu samt heim um kveldið og voru nú að hvíla sig áður en þeir lögðu af stað. Þeir höfðu haft með sér brauðbita og kalt te í flösku og hresstu sig á því á meðan þeir hvíldu sig. Það var auðséð að mennirnir voru þreyttir og þeim var kalt. Það er ekki notalegt að sitja úti í frosti og drekka kalt te þegar maður er svéittur og þreytt- ur eftir vinnu allan daginn. Það

x

Harpan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harpan
https://timarit.is/publication/916

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.