Harpan

Dato
  • forrige måneddecember 1937næste måned
    mationtofr
    293012345
    6789101112
    13141516171819
    20212223242526
    272829303112
    3456789
Eksemplar

Harpan - 01.12.1937, Side 60

Harpan - 01.12.1937, Side 60
H A A N R ætti gott síúlkan sú, s.em fengi þessa fallegu brúðu. En það er ekki hægt að hugsa sér, hvað hún varð hissa og hvað hún varð glöð þcgar hún heyrði, að jólakarlinn, sem útbýtti gjöfunum af trénu, kallaði „Bogga í Garði!‘' og hélt uppi fallegu brúðunni. Henni lá við að halda, að ]>að væri einhver önnur stúlka, sem héti s'ama nafni, og hún ætlaði ekki að þoraaðtaka við brúðunni, en þó fór hún cg sótti hana. Og jólakarlinn klap, - aði á kollinn á henni og brosti blíðlega. „Sólskin“. NO ER GYÐA A GULUM KJÓL Nú er Gyða á gulum kjól og svo geislandi glöð sem sól. Líka er hatturinn hennar Ijós, skreyttur fjöðrum og fríðri rós. Festi hangir um hálsinn ný, þar er glóandi gullið í. Sokkar bleikir og brúnir skór. Óðum vex hún og verður stór. porst. Gíslason STAKA Ef við verðum alltaf góð og ekki stríðuin neinum, gimsteinum í sálarsjóð söfnum, tandurhreinum. S. G. P ÓLI SKANS Óli skans, Óli skans, ógnar vesalingur, Vala hans, Vala hans veit nú hvað hún syngur. Óli, Óli, Óli skans. Vissulega vildu fáir vera í sporum hans. ÓIi er mjór, ÖIi er mjór. Óii er líkur fisi. Vala er stór, Vala er scór. Vala er eins og risi. Óli, Óli, Óli skans. Sjá hve þú ert sauðarlegur, segir konan hans. Þú ert naut, þú ert naut. Þannig hóf hún tölu. Óli gaut, Óli gaut augunum til Völu. Óli, Óli, Óli skans. Ákafiega önuglynd er eiginkonan hans. ÓIi hlaut, Óli hlaut auman neynsluskóla. Vala braut, Vala braut viðbeinið í Óla. Óli, Óli, ÓIi skans. Voðalegur vargur er hún Vala, konan hans. Stefán Jónsson. — Ekki vil ég láta brenna mig, sagði Kerlingin. Ég vil láta grafa mig, eins og ég er vön. 186

x

Harpan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harpan
https://timarit.is/publication/916

Link til dette eksemplar: 9-12. tölublað (01.12.1937)
https://timarit.is/issue/357682

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

9-12. tölublað (01.12.1937)

Handlinger: