Fréttablaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 118
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 90
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN ÞORGRÍMSDÓTTIR
Höfðabrekku 16, Húsavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
miðvikudaginn 28. nóvember.
Halldór Ingólfsson
Þuríður Halldórsdóttir Ólafur E. Benediktsson
Ingunn Halldórsdóttir Einar Halldór Einarsson
Halldór Elís Ólafsson
Guðbjörg Ólafsdóttir
Guðrún Einarsdóttir
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
INGIBJÖRG ÓLADÓTTIR
lést á Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi
sunnudaginn 18. nóvember. Útför hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum
auðsýnda samúð.
Álfdís Gunnarsdóttir Þorsteinn Ingimundarson
Gunnar Hjörtur Gunnarsson Jónína I. Melsteð
Óli Gunnarsson Ingibjörg S. Gísladóttir
Ingi Þórir Gunnarsson Ragnheiður Jósúadóttir
Bjarni Einar Gunnarsson Valgerður Olga Lárusdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
PÉTURS AXELSSONAR
Túngötu 22, Grenivík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Grenilundi
fyrir góða umönnun.
Erla Friðbjörnsdóttir
Anna Pétursdóttir Kristinn Skúlason
Birgir Pétursson Aðalheiður Jóhannsdóttir
Sigurbjörg Helga Pétursdóttir Jón Bragi Skírnisson
Friðbjörn Axel Pétursson
Jón Ásgeir Pétursson Elín Berglind Skúladóttir
Guðrún Hildur Pétursdóttir Helgi Teitur Helgason
afa- og langafabörn.
Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför
okkar ástkæru
INGIBJARGAR JÓHANNSDÓTTUR
frá Klauf, Eyjafjarðarsveit.
Sérstakar þakkir færum við frábæru
starfsfólki Einihlíðar á dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri fyrir hlýja og kærleiksríka umönnun.
Geir Guðmundsson Heiðbjört Eiríksdóttir
Hólmfríður Guðmundsdóttir Jón Eggertsson
Guðný Ósk Agnarsdóttir
Leifur Guðmundsson Þórdís Karlsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir Haukur Geir Guðnason
og aðrir afkomendur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÞORSTEINN EINARSSON
Funalind 7,
lést á heimili sínu þann 25. nóvember sl.
Útförin fer fram mánudaginn 3. desember
klukkan 13 frá Digraneskirkju.
Halldóra Hálfdánardóttir
Hálfdán Guðmundsson
Siggeir Þorsteinsson
Einar Þorsteinsson Linda Björk Bragadóttir
Elín Ósk Þorsteinsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna
andláts og útfarar elskulegrar móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
ODDNÝJAR LAXDAL JÓNSDÓTTUR
Skálagerði 6, Akureyri.
Sérstaklega þökkum við starfsfólki
heimahlynningar Akureyrar.
Jón Laxdal Halldórsson Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
Ólafur Halldórsson Gígja Gunnarsdóttir
Halldór Halldórsson Halldóra B. Skúladóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
SELMA JÓHANNA SAMÚELSDÓTTIR
frá Steinstúni,
lést 29. nóvember á Höfða, hjúkrunar- og
dvalarheimili, Akranesi. Minningarathöfn
verður í Akraneskirkju fimmtudaginn
6. desember klukkan 14. Útförin fer fram frá
Árneskirkju í Trékyllisvík laugardaginn 8. desember kl. 14.
Ágúst Gíslason
Gísli Ágústsson Jóhanna Kristín Teitsdóttir
Samúel Ágústsson Anna Berglind Einarsdóttir
Guðlaugur Agnar Ágústsson Ragnheiður Edda Hafsteinsdóttir
Ingibjörg Ágústsdóttir Már Einarsson
Arnar Hallgrímur Ágústsson Steinunn Ólöf Benediktsdóttir
og ömmubörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar okkar
ástkæru eiginkonu, móður, stjúpmóður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR S. PÁLSDÓTTUR
lyfjatæknis, Norðurbakka 11a,
áður Hverfisgötu 46, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heima-
hlynningar Landspítalans og líknardeildar Landspítalans í
Kópavogi fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Halldór Sigurðsson
Ásgeir Halldórsson Anita Anna Jónsdóttir
Ragnar Guðlaugsson Lára Birgisdóttir
Hallfríður Sigurðardóttir Robert Petersson
Páll Sigurðsson
Emil A. Sigurðsson Valda Brokane
Jófríður A. Halldórsdóttir Sigurður Jónsson
Sigurður Halldórsson Ester Arnarsdóttir
Hilmar Halldórsson Kolbrún Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Af einlægu hjarta sendum við þakkir
öllum þeim sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát okkar ástkæru móður,
tengdamóður, ömmu, langömmu og
langlangömmu,
GUÐMUNDU SUMARLIÐADÓTTUR
Faxabraut 13, Reykjanesbæ,
sem lést 11. nóvember sl. Sérstakar þakkir
sendum við starfsfólki á Hjúkrunarheimilinu Hlévangi fyrir
framúrskarandi þjónustu við móður okkar. Ykkar umhyggja og
góðvild verður seint fullþökkuð.
Jósebína Gunnlaugsdóttir
Gunnlaugur Gunnlaugsson Kristjana Sigurðardóttir
Hafdís Gunnlaugsdóttir Róbert Svafarsson
Karl Hólm Gunnlaugsson Sigurveig Þorsteinsdóttir
Sævar Gunnlaugsson Selma Kristjánsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
„Viltu senda kveðju inn í framtíðina? Í
þessa bók getur þú með eigin orðum á
íslensku eða hvaða því tungumáli sem
þér best hentar sett inn orð, setningar,
ljóð, minningar, hugleiðingar, teikning-
ar eða hvað sem þér dettur í hug sem
tengist John Lennon og arfleifð hans.
Þegar bókin er fullskrifuð verður hún
varðveitt og opnuð 9. október árið 2040
þegar 100 ár verða liðin frá fæðingu
Lennons.“
Svohljóðandi er textinn á titilsíðu
minningarbókar um John Lennon sem
liggur frammi í aðalsafni Borgarbóka-
safnsins frá deginum í dag til dánar-
dægurs hans, 8. desember – og svo
aftur að ári.
„Okkur datt í hug að setja upp
svona bók við hlið minningarhylk-
is sem við fengum til varðveislu til
ársins 2040 og liggur hér frammi
nú til 8. desember,“ segir Sigurður
Jakob Vigfússon, verkefnisstjóri í
tón- og mynddeild Borgarbókasafns-
ins við Tryggvagötu. Hann segir fjöl-
breytt úrval bóka og diska með og um
Lennon til útláns í deildinni auk þess
sem kvikmyndir tengdar honum verði
sýndar í Kamesinu í dag og á morg-
un klukkan 15 og fleiri í næstu viku.
„Þetta er allt gert fyrir þá sem vilja
eiga stund með Lennon og hugsa til
hans.“ gun@frettabladid.is
Allir geta lagt til efni
í bók um Lennon
Í Borgarbókasafninu, aðalsafni við Tryggvagötu, er bók sem gestir geta fært í hugleiðingar
sínar, teikningar eða hvað annað sem tengist John Lennon.
VERKEFNISSTJÓRINN „Þetta er allt gert fyrir þá sem vilja eiga stund með Lennon og hugsa til hans,“ segir Sigurður J. Vigfússon í Borgar-
bókasafninu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Tréleikföng og aðrir handunnir
munir verða á jólamarkaði Ásgarðs
1. desember milli klukkan 12 og 17.
Auk handverksins verða ljúffengar
veitingar á boðstólum, kaffi, súkkul-
aði og kökur, gegn vægu gjaldi.
Markaðurinn er haldinn í húsa-
kynnum Ásgarðs að Álafossvegi 14
og 24 í Mosfellsbæ. Góðir gestir sem
kunna að syngja og spila koma þang-
að í heimsókn og skemmta öðrum
gestum með nokkrum lögum.
Jólamarkaður í Ásgarði
Árlegur jólamarkaður Ásgarðs í Mosfellsbæ verður haldinn
í dag, laugardaginn 1. desember.
PALLBÍLL Enginn er svikinn af svona trukki
úr smiðju hagleiksfólksins í Ásgarði.
MERKISATBURÐIR
1640 Portúgal endurheimtir sjálfstæði
sitt frá Spáni.
1918 Ísland verður frjálst og fullvalda
ríki við gildistöku sambandslagasamn-
ings Íslands og Danmerkur.
1930 Togarinn Apríl ferst í óveðri með 18
mönnum.
1972 Áhugamenn um verndun
Bernhöfts torfunnar ganga blysför um
miðbæ Reykjavíkur til að vekja
athygli á
málstað
sínum.
1994 Þjóð-
arbók-
hlaðan er
opnuð í
Reykjavík.