Fréttablaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 100
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 72
PIPA
R
\
TBW
A
SÍA
123
4
0
8
„Thriller inniheldur svo gott sem full-
komna blöndu af diskói, poppi, fönki og
rokki sem er formúla sem Jackson hristi
saman á hinni stórkostlegu Off the wall,
sem út kom þremur árum áður,“ segir
Arnar Eggert Thoroddsen poppfræðingur.
„Jackson sannaði að það er hægt að búa til
skothelda poppplötu, með lögum sem öll
heimsbyggðin tengdi við, án þess að glopra
niður heilindum. Lögin eru ekki ódýr, þetta
eru haganlega samsett, úthugsuð og frábærlega útsett og
upp tekin lög (og þar kemur Quincy Jones upptökustjóri
til skjalanna). Með plötunni bjó Jackson til ný viðmið hvað
heimsfrægð og merkingu hennar áhrærir og aðrir tónlistar-
menn – sérstaklega þeir sem gera út á sömu mið – litu til
Jackson sem fyrirmyndar, þó að sú mynd hafi reyndar látið
á sjá hin síðustu ár.“
Réttur maður á réttum stað Risasmellir plötunnar nægðu
svo til að fleyta henni í þessa rosasölu, segir Arnar Eggert.
„Bensínið klárast svolítið fljótt þegar kemur á seinni hlið
hennar. En það er ómögulegt að segja; þættir eins og metn-
aður, uppbygging, hugmyndafræði, „plögg“-úrvinnsla og það
að Jackson hafi verið réttur maður á réttum stað á réttum
tíma unnu allir saman að þessum ótrúlegu sölutölum.“
Hvert er uppáhaldslagið þitt af plötunni? „Human
Nature“ (Ég er poppfræðingur og ber því skylda til að koma
með „óvænt“ útspil).
Bjó til ný viðmið
„Thriller var fyrir margar sakir tímamótaverk:
Platan er til dæmis sú fyrsta plata með banda-
rískum listamanni af afrískum uppruna sem
nær langt út fyrir þá kima sem tónlist þeirra
hafði heyrt til (soul, R&B, funk…). Thriller
inniheldur „mainstream“ popp sem skírskotaði
til fjöldans svo um munaði, fólk á öllum aldri
í öllum heimsálfum hlustaði og heillaðist.“
segir Berglind María Tómasdóttir, tónlistar-
maður og doktorsnemi í San Diego. Berglind,
sem hefur lagst í rannsóknir á ferli Jacksons vegna þess að hún
kennir námskeið um hann í San Diego-háskóla, bendir á að
Jackson hafi verið fyrsti listamaðurinn af afrískum uppruna sem
fór í almenna spilun á MTV sem fram að Billie Jean sérhæfði
sig í (hvítu) rokki. „Hljómar ansi rasískt í dag, en svona var veru-
leikinn snemma á 9. áratugnum. MTV gat sem sagt ekki horft
fram hjá Jackson, hann var einfaldlega orðinn of vinsæll. Á sama
tíma má ekki gleyma að hann blandaði saman tónlistarstílum
á mjög nýstárlegan hátt, tónlistin varð á einhvern hátt hvorki
svört né hvít, heldur hvort tveggja, á sama tíma. Dæmi er lag
eins og Beat It rokksmellur með dansívafi og gítarsólói að hætti
Eddie Van Halen.“
Umbylti framsetningu tónlistar Berglind bendir á að Michael
Jackson hafi verið brautryðjandi í gerð tónlistarmyndbanda.
„Með MJ varð myndbandið að ámóta mikilvægum miðli og
tónlistin sjálf, þannig umbylti hann framsetningu popptón-
listarinnar. Áhrifa hans sem flytjanda gætir líka enn í dag, maður
þarf ekki annað en að kíkja á kóreógrafíu hjá poppstjörnum
nútímans. Áður en hann kom til sögunnar nægði á vissan hátt
að vera góður söngvari, í dag þykir það sjálfsögð krafa að popp-
arar séu jafnvígir á söng og dans.“
Fullkomin tímasetning Tímasetning útgáfu Thriller skýrir
söluna að nokkru leyti segir Berglind. „Það er nánast hægt að
útiloka að popptónlistarmaður gæti slegið í gegn í dag með
sama hætti, til þess er landslagið í tónlistarbransanum og neysla
tónlistar of breytt. Á þessum tíma, fyrri hluta 9. áratugarins var
hægt að búa til heilan heim í kringum einn tónlistarmann. Svo
dæmi sé tekið rauk salan á Thriller upp eftir að Michael Jackson
kom fram í frægum afmælissjónvarpsþætti Motown-útgáfunnar
um vorið 1983, þar sem hann frumsýndi tunglganginn „The
Moonwalk“. En framganga MJ í þættinum er gott dæmi um
hvar styrkleiki hans lá alla tíð, frá upphafi til enda: Á sviði fyrir
framan nógu marga áhorfendur.“
Hvert er uppáhaldslagið þitt á plötunni? „Wanna Be Startin‘
Somethin‘ sem er eitt af fjórum lögum á Thriller eftir Michael
sjálfan. Lagið varð til nokkrum árum fyrr, í aðdraganda Off the
Wall, enda mikill dans- og diskósmellur líkt og sú plata er stútfull
af. Hvílík byrjun á plötu! Lagið var gjarnan fyrsta lag á tónleikum
Jacksons enda vel til þess fallið. Textinn er mátulega aggressífur
og paranojaður, en þannig þykir mér Michael Jackson einna
bestur – lagið má sumsé flokka með fjölda laga hans sem fela
í sér ádeilu á fjölmiðla og aðgangsharða aðdáendur (einkum
kvenkyns). Dæmi um slík lög eru til dæmis Beat it, Billie Jean,
They don´t care about us og þar fram eftir götunum.“
Tónlist sem var hvorki of svört né hvít
Fullkomin blanda
Thriller, meistaraverk Michaels Jackson og mest selda plata allra tíma,
er þrjátíu ára. Frábær lög, nýstárleg blanda tónlistarstíla og vel heppnuð
tímasetning útgáfu plötunnar skýra ævintýralega velgengni verksins.
Brynjar Guðnason
brynjarg@frettabladid.is
ENGIN TÓNLEIKAFERÐ
Þrátt fyrir velgengni Thriller fór MJ aldrei í tónleikaferðalag til að fylgja
plötunni eftir. Hins vegar fór hann ásamt bræðrum sínum á Victory túrinn árið
1984, en samnefnd plata bræðranna kom út sama ár. Þrátt fyrir nafngiftina
léku þeir ekki eitt einasta lag af plötunni á tónleikunum, og auðvitað kom fólk
fyrst og fremst til að sjá MJ og Moonwalkið.
1. Wanna be startin'
somethin'
2. Baby be mine
3. The girl is mine
4. Thriller
5. Beat it
6. Billie Jean
7. Human nature
8. P.Y.T. (Pretty young
thing)
9. The lady in my
life
Lögin á plötunni
VÖLDU 9 LÖG
Fjögur af níu lögum plötunnar eru
eftir Michael Jackson: The Girl is
mine, Billie Jean, Beat it og Wanna
be startin‘ somethin‘. Þrjú voru samin
af Rod Temperton en hann lagði til
rúmlega þrjátíu lög til að velja úr. Sam-
tals völdu Jackson og Quincy Jones,
upptökustjóri plötunnar, úr hundr-
uðum laga eftir fjölda lagahöfunda.
14 MÍNÚTNA
MYNDBAND
Tónlistarmyndbandið við Billie
Jean varð fyrsta lagið eftir svartan
tónlistarmann til þess að fá mikla
spilun á sjónvarpsstöðinni MTV.
Stöðin spilaði í þá daga ekki mikið
af tónlist eftir svarta tónlistarmenn.
Myndbandið skapaði ekki eingöngu
tækifæri fyrir aðra svarta listamenn
heldur gerði það Jackson mögulegt
að sýna fjórtán mínútna myndband
við Thriller á MTV, sem varð svo
vinsælt að stöðin þurfti að sýna það
tvisvar á klukkustund þegar mest lét.
ÓNÁKVÆMAR
SÖLUTÖLUR
Thriller hefur selst í 65-110 milljónum
eintaka á heimsvísu (það er erfitt að
festa fingur á nákvæma sölutölu).
Næstu hljóðversplötur á eftir Thriller á
listanum eru:
MCCARTNEY OG JACKSON Jackson
er hér í hljóðveri með bítlinum Paul
McCartney sem söng með honum lagið
The girl is mine á plötunni.
2. Back in black (AC/DC) 50 millj.
3. The dark side of the moon (Pink Floyd)
50 millj.
4. Bad (Michael Jackson) 45 millj.
5. Bat out of hell (Meat Loaf) 43 millj.
6. Rumours (Fleetwood Mac) 40 millj.