Fréttablaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 102
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 74
Talið niður með jóladagatali
Undanfarin ár hafa jóladagatöl Sjónvarpsins og Stöðvar 2 stytt yngstu kynslóðinni biðina fram að jólum. Frá 1. desember ár hvert er talið
niður til jóla í stuttum þáttum sem sýndir eru daglega. Sagan er mismunandi hverju sinni þó sum dagatölin hafi verið endursýnd nokkrum
sinnum. Tinna Rós Steinsdóttir tók saman dagatölin sem hafa verið sýnd hér á landi allt frá því þau fyrstu komu á skjáinn árið 1988.
2005 Galdrabókin
Íslenskt jóladagatal
þar sem notast er við
leikbrúður. Alexander
finnur galdrabók
sem flytur hann inn
í annan heim. Þar
lendir hann alls konar
spennandi ævintýrum
í félagsskap gamallar
uglu og talandi kattar.
Endursýnt 2010.
„Við opnum dagatalið í upphafi hvers þáttar og út kemur
skrítið og skemmtilegt orð sem börnin hafa líklegast heyrt
en vita ekki endilega hvað þýðir. Til dæmis kátína, mistil-
teinn, fararskjóti, kærleikur og hlýja. Í þættinum förum við
í saumana á þessum orðum og merkingu þeirra og þá upp-
hefjast alls kyns ævintýri,“ segir Hrefna Hallgrímsdóttir, sem
krakkarnir þekkja eflaust betur undir nafninu Skrítla.
Skoppa og Skrítla sjá um jóladagatal Stöðvar 2 þetta
árið en um er að ræða glænýtt og alíslenskt dagatal.
„Tökum lauk í síðustu viku svo þetta er eins ferskt og þetta
getur orðið. Hver þáttur er um sjö mínútur, sem er aðeins
lengra en upphaflega var lagt upp með. Þetta var bara svo
skemmtilegt og ríkt af efni að það var ekki hægt að hafa þá
styttri,“ segir Hrefna og hlær. Sjálf skrifaði hún handritið að
dagatalinu, eins og annað efni Skoppu og Skrítlu.
Um 250 aukaleikarar koma við sögu í dagatalinu og eru
þar á meðal Krúttakórinn í Langholtskirkju, börn úr Ísaks-
skóla, af Laufásborg, úr Sönglist og víðar. „Við erum búnar
að fara út um allt og fá til liðs við okkur alls konar hópa
og fólk. Langflestir aukaleikaranna eru börn, en svo koma
hundur og köttur við hjá okkur og auðvitað urðum við að fá
lánaða jólasveina líka. Svo förum við aldrei langt án Lúsíu,
þó hún hafi ekki haft mikinn tíma fyrir okkur. Hún tekur sér
alltaf langt og gott jólafrí því hún þarf að lesa svo mikið,“
segir Hrefna. „Snjóleysið gerði okkur aðeins erfitt að finna
Snæfinn snjókall en blessunarlega rákumst við svo á hann í
Bláfjöllum,“ segir hún.
Útgangspunktur dagatalsins er kærleikur og vinátta,
eins og í öðru efni Skoppu og Skrítlu. „Það er auðvitað
bein tenging frá þeim boðskap í jólin svo það er eiginlega
ótrúlegt að okkur hafi ekki dottið í hug að gera eitthvað
jólatengt fyrr,“ segir Hrefna að lokum.
JÓLADAGATÖL RÚV JÓLADAGATÖL STÖÐVAR 2
1988 The Story of Santa Clause Fyrsta jóladagatalið
sem Stöð 2 sýndi var þetta ameríska dagatal fyrir 24
árum síðan. Endursýnt 1990 og 2002.
2004 Jesús og Jósefína
Þýddir danskir þættir
sem fjalla um hina 12
ára gömlu Jósefínu
og vin hennar Óskar.
Þau finna tímavél sem
fer með þau aftur
til ársins 12 þar sem
þau hitta Jesú, sem er
þá jafn gamall þeim.
Saman lenda þremenn-
ingarnir í alls kyns
ævintýrum. Endursýnt
2005, 2007 og 2008.
2012 Jólapakki RÚV Rúv býður upp á nýjung í ár og verður með
jólapakka fyrir börn. Fimm mismunandi þáttaröðum verður pakkað
saman undir heitið Jóladagatal RÚV 2012. Endursýnd verða dagatölin
Hvar er Völundur frá árinu 1996 (endursýnt aftur 2002) og Jól í
Snædal frá árinu 2010, en bæði eru þau 24 þátta dagatöl. Þar fyrir
utan verða sýndir tíu þættir af Turnvörðunum og sjö af Vöffluhjarta,
þrír jólaþættir af Geymslunni og fjórir af Stundinni okkar.
2011 Pagten
2010 Jól í Snædal Talsett
norskt jóladagatal, 24
þættir. Við fylgjumst með
jólaævintýrum og jólaundir-
búningi Hlyns og vina hans
í Snædal. Endursýnt 2012.
2008 Dýrmundur
2005 Töfrakúlan
2001 Leyndardómar jólasveinsins
1997 Klængur sniðugi
Endursýnt 2003 og 2009.
1996 Hvar er Völundur?
Íslenskt jóladagatal, 24
þættir. Gunni og Felix
safna í poka öllu því
góða sem á vegi þeirra
verður handa Völundi
gamla, sem býr til allar
góðu gjafirnar. Endursýnt
2002 og 2012.
1994 Jól á leið til jarðar Brúðuleikrit þar sem fylgst
er með smáenglunum Pú og Pa. Þeir fá það hlutverk
að koma körfu sem inniheldur jólahátíðina til jarðar.
Vandamálið er þó það að hinn illi Öngull gerir hvað
sem hann getur til að ná körfunni og sökkva henni í
svarthol geimsins þangað sem enginn getur fundið
hana aftur. Endursýnt 1999 og 2007.
1993 Jul i Mumindalen
þýddir, sænskir þættir.
1992 Tveir á báti Íslenskir þættir eftir
Kristínu Atladóttur. Séra Jón festist úti á
miðjum sjó snemma í desember þegar
báturinn hans verður bensínlaus. Þar
hittir hann fyrir ísbjörn og verður þeim
vel til vina. Endursýnt 2000.
1991 Stjörnustrákur Íslenskir þættir eftir Sigrúnu Eldjárn sem fjalla um
stúlkuna Ísafold sem einn daginn rekst á geimverustrákinn Bláma. Hann
er strandaglópur á jörðinni því geimskipið hans bilaði og nú þarf hann að
finna varahlut sem er falinn í fjársjóðskistu hér á jörðinni. Ísafold ákveður
að hjálpa Bláma að finna fjársjóðskistuna, en þau fá samkeppni frá full-
orðinni konu sem vill eignast þennan fjársjóð sjálf. Endursýnt 1998 og 2006.
1990 Á baðkari til Betlehem
Íslenskir þættir þar sem
Hafliði og Stína, bæði átta
ára gömul, leggja upp í
ævintýraferð til Betlehem til
að færa Jesúbarninu gjafir.
Þau ferðast um í fljúgandi
baðkeri og lenda í ýmsum
hindrunum og erfiðleikum á
leiðinni. Klemmi, vondur fugl,
virðist elta þau á röndum og
reyna sitt besta til að gera
þeim erfitt fyrir. Kjartan
Bjargmundsson og Sigrún
Waage leika krakkana en Inga
Hildur Haraldsdóttir brá sér í
öll aukahlutverkin. Endursýnt
1995 og 2004.
1988 Jólin nálgast í Kærabæ
eftir Iðunni Steinsdóttur
2012 Skoppa
og Skrítla
Skoppa og Skrítla skoða
skrítin og skemmtileg orð