Fréttablaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 43
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42
örugglega sestir niður og farnir
að drekka te með þessum mönnum
og skiptast á netföngum.“ Og það
gengur yfirleitt eftir. Ef ég hætti
að mynda í hvert sinn sem mér er
skipað að gera það gæti ég alveg
alveg eins hætt í þessari vinnu.
Ég reyni þó yfirleitt að koma mér
undan áður en hnefarnir eru látnir
tala, yfirleitt við þriðju viðvörun,
þótt það komi því miður stundum
fyrir að ég misreikni mig svolítið.
Oft virkar líka furðuvel við svona
aðstæður að brosa bara fallega. Það
skilst á flestum tungumálum.“
Sannleikurinn fyrsta fórnarlambið
Þú hefur líka verið á mörgum
svæðum sem hafa orðið illa úti í
náttúruhamförum, er það mikið
öðruvísi? „Já. Nú þarf ég að segja
þér smá leyndarmál. Að mörgu
leyti er ekkert auðveldara en að
sinna fréttamennsku á stríðsátaka-
svæðum, svo framarlega sem þú
kemst á staðinn. Um tíma skapast
þar tómarúm og þú getur því valsað
um og haft aðgang að því sem
fréttamenn létu sig ekki einu sinni
dreyma um nokkrum dögum áður.
Gramsað í skúffum hjá forsetanum,
labbað beint inn í fangelsi til að hitta
fanga eða inn á skurð stofur að ræða
við hina særðu. Flestir eru of upp-
teknir við að bjarga sér til að veita
þér mikla athygli. Það eru heims-
viðburðir að gerast hvert sem þú
beinir myndavélinni. Í öðru lagi er
áberandi í styrjöldum hvað menn
eru reiðir og tilbúnir að hella úr
þeim skálum í þá fáu fjölmiðla sem
komnir eru á svæðið. Í hamförum
aftur á móti lokast menn og fyllast
depurð og vilja síður tjá sig. Hins
vegar fylgir stríðsfréttamennsk-
unni alltaf sú hætta að menn mis-
noti fréttamenn, sínum málstað til
framdráttar. Fyrsta fórnarlambið í
öllum styrjöldum er sannleikurinn.
Það verður að vera mjög vakandi
fyrir því.“
Hvað heldurðu að þú haldir þessu
lengi áfram? „Þangað til í kvöld. Ég
held að gamla víkingatrúin dugi
best í þessum bransa. Að lifa fyrir
hvern dag, falla með heiðri, komast
til Valhallar og byrja svo nýtt líf
næsta dag. Það er heimspeki sem
hentar vel í fréttamennskunni.
Maður deyr óbeint á hverju kvöldi
til að byrja nýtt og vonandi betra líf
næsta dag.“
4
1
2
3
5
6
7
89
10
13
14
15
16
17
18
19
20 21 22
23
242526
11
12
1 Srí Lanka 2004-2005
Stríð Tamíltígranna og stjórnarhers
Srí Lanka.
2 Taíland 2005
Átök í frumskógum á landamærun-
um við Búrma á milli stjórnarhers
Búrma og Karen-ættflokksins valda
flótta þeirra síðarnefndu í þúsunda-
tali yfir til Taílands.
3 Nepal 2005
Ferðast um með uppreisnar-
mönnum Maóista í Himalajafjöllum.
4 Kongó 2011
Uppreisnarhermenn ráðast á þorp í
austurhluta Kongó.
8 Egyptaland 2011
Arabíska vorið, átök í höfuðborginni
Kaíró.
9 Líbía 2011
Styrjöld á milli stjórnarhersins og
uppreisnarmanna bæði í vestur- og
austurhluta landsins, höfuðborgin
Trípólí fellur.
10 Sýrland 2012
Styrjöld sýrlenska stjórnarhersins og
uppreisnarmanna.
11 Georgía 2008
Rússneskur her ræðst inn í Georgíu
eftir innrás Georgíuhers í Suður-
Ossetíu.
5 Mið-Afríkulýð-veldið
2007, 2010
Átök skæruliða og heimavarnar-
sveita valda upplausn víða um
landið
2010 – Andspyrnuher Drottins ræðst
á þorp í austurhluta Mið-Afríkulýð-
veldisins, Úgandaher kemur yfir
landamærin og bætir ekki ástandið.
6 Pakistan 2010
Bandaríkjamenn gera loftárásir
á búðir talíbana við norðvestur-
landamærin. Þeir svara með hryðju-
verkum og mannránum.
7 Túnis 2011
Arabíska vorið, barist í höfuð-
borginni Túnis.
12 Serbía 1992
Serbar berjast við Króata og Bosníu-
menn.
13 Kósóvó 2012
Átök blossa upp á landamærum
Kósóvó og Serbíu.
14 Kólumbía 1985
Barist í miðborg Bogotá, 115 falla.
2010 – FARC-skæruliðar ráðast á
þorp við landamæri Ekvador.
15 Malí 2012
Íslamistar og Túaregar taka norður-
hluta landsins í vopnuðum átökum.
16 Tógó2005
Í kjölfar umdeildra forsetakosninga
brjótast út átök, hundruð falla og
þúsundir flýja land.
17 Bretland1975
Fjórða þorskastríðið. Fréttaritari
RÚV sendur yfir víglínuna … til
Lundúna.
18 Gasa2011
Sprengjum skotið yfir landamærin
til Ísrael, sem svarað er um hæl.
19 Líbanon 2006
Hezbollah og Ísraelsher berjast í
suðurhluta Líbanon.
20 Írak 2003
Bandarískur og breskur her ræðst
inn í Írak.
23 Sómalía2011, 2012
2012 Al Shabab, íslamísk skæruliða-
samtök tengd Al Kaída, berjast við
Kenýaher í suðurhluta landsins.
2012– vegna aukins alþjóðlegs
eftirlits við strönd Sómalíu færa
sjóræningjar sig upp á skaftið í mið-
hluta landsins með mannránum og
vopnuðum árásum.
21 Afganistan2001, 2006, 2011
2001 Kabúl fellur. 2006– átök í
Mazar-i-Sharif. 2011– talíbanar
ráðast á herstöð Bandaríkjahers í
Kandahar.
22 Kasmír2005
Skærur Indverja og Pakistana á
landamærum ríkjanna í Pakistan.
24 Jemen 2005, 2006, 2007, 2008
Stjórnarher Jemen berst við upp-
reisnarmenn í norður- og suður-
hluta landsins.
25 Súdan 2004, 2011
2004 Janjaweed, arabískar hersveitir á
hestbaki, berjast við uppreisnarmenn
og afríska íbúa í Darfúr.
2011– stjórnarher Súdans berst við
hermenn Suður-Súdans á landamær-
um ríkjanna eftir sjálfstæðisyfirlýs-
ingu Suður-Súdans.
26 Tsjad 2007
Stríðið í Darfúr berst yfir landa-
mærin til Tsjad.
FRÉTTABLAÐIÐ/JÓNAS
Sviss
INNRÁSIN Í KABÚL Beðið eftir innrásinni í Kabúl með hermönnum Norðurbanda-
lagsins í Afganistan 2001. „Þarna vorum við í hringiðu heimsviðburðanna einangr-
aðir í Kabúl og komum ekki frá okkur efni nema í dropatali í borg sem erfitt var að
komast um vegna vegatálma og útgöngubanns.”
Í Miðafríkulýðveldinu 2010. Með brosandi stúlkum í Kabúl 2010. Á gamla markaðnum í Aleppo 2012. Í Búrkina Fasó 2012.
Í Evrópu
TF1, FR2, FR3, M6 (Frakkland);
ZDF, ARD, ORF (Þýskaland);
BBC, Channel 4, London
International Television, Herald
Tribune Television (England);
TSR, SF, TSI (Sviss)
RAI, TVE, NRK, SR, NOS, DR, SVT,
Euronews.
SÞ: Flóttamannafulltrúi Samein-
uðu þjóðanna, Alþjóða heilbrigð-
ismálastofnunin (WHO),UNESCO,
Alþjóða fræðslumálaskrifstofan
(International Bureau of Educa-
tion), UNAids, ICRC, MSF
Norður-Ameríka
Discovery, ABC, CNN (BNA);
CBC, CTV (Kanada);
Televista (Mexíkó)
Asía
NHK, TBS, Kansai ( Japan)
➜ Sjónvarpsstöðvar og
stofnanir sem Jón
hefur unnið fyrir