Fréttablaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 4
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
24.11.2012 ➜ 30.11.2012
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
1.000.000
Farþegar með Strætó bs.
voru yfi r milljón í október.
800 Geitastofninn á Íslandi telur 800 dýr 95
börn fæddust fyrstu 10
mánuði ársins á Heilbrigð-
isstofnun Suðurnesja.
LÖGREGLUMÁL
Ökumenn til fyrirmyndar
Næstum allir ökumenn voru til
fyrirmyndar þegar lögreglan var við
hraðamælingar á Selásbraut í Reykjavík
í vikunni, að því er fram kemur á vef
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Af
60 ökutækjum sem hraði var mældur
hjá voru bara tvö yfir 30 kílómetra
hámarkshraða í götunni.
SKÓLAMÁL Foreldraráð grunn-
skólabarna í Hafnarfirði segir
fyrirhugaða hækkun á gjald-
skrá hádegismatar nemenda vera
áhyggjuefni. Áætlað er að hækk-
unin verði 4 prósent frá 1. ágúst á
næsta ári. Máltíðin mun þá kosta
416 krónur í stað 400 króna.
„Máltíðirnar hækkuðu líka í
ágúst á þessu ári og hafa hækkað
um 60 prósent á þremur eða fjór-
um árum,“ segir Jóhanna Svein-
björg Traustadóttir, áheyrnar-
fulltrúi foreldranna í fræðsluráði
bæjarins. Jóhanna segir þessar
hækkanir, auk hækkana á leik-
skólagjöldum og fargjöldum
strætisvagna, koma illa niður á
efnaminni barnafjölskyldum. - gar
Hafnfirskar barnafjölskyldur:
Dýrari máltíðir
þungar í skauti
LEIÐRÉTT
Fram kom í blaði gærdagsins að dans-
sýning færi fram við Friðarsúlu Yoko
Ono í Viðey á sunnudag. Hið rétta er að
sýningin er í dag og hefst klukkan tvö.
LÆKJARSKÓLI Hækka á matinn í
grunnskólum Hafnarfjarðar um 4%.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DANMÖRK Hérasótt, sem eins og
nafnið gefur til kynna, leggst
helst á héra en hefur líka smit-
ast í fólk, hefur skotið upp á Sjá-
landi. Þetta er í fyrsta sinn í níu
ár sem sóttin hefur komið upp í
Danmörku.
Í frétt Berlingske segir að þó
sóttin geti dregið einstök dýr til
dauða sé ekki um að ræða
mikla hættu fyrir
stofninn.
Smitist pestin
í fólk, við sam-
neyti við dýr
eða við át
þeirra, er ekki
um lífshættu-
legan sjúkdóm
að ræða, en þó er
viðbúið að sjúk-
lingar finni fyrir
flensueinkennum og
eitlabólgu. - þj
Nagdýrapest í Danmörku:
Hérasótt skýtur
upp á Sjálandi
DÓMSMÁL Íslenska ríkið hefur
verið dæmt til að greiða rúm-
lega þrítugum manni 400 þúsund
krónur í bætur fyrir einnar viku
gæsluvarðhald sem hann sat í
vegna fíkniefnamáls í janúar
2010.
Þýskur maður hafði verið
handtekinn með 3,7 kíló af flúor-
amfetamíni í fórum sínum og
bent á Íslendinginn. Báðir sátu í
varðhaldi og voru ákærðir fyrir
innflutninginn. Þeir voru hins
vegar sýknaðir þar sem flúor-
amfetamín var ekki á lista yfir
bönnuð fíkniefni.
Maðurinn fór fram á eina
milljón en dómari taldi 400 þús-
und krónur hæfilegar bætur. - sh
Dæmdar bætur frá ríkinu:
Varðhaldsvistin
kostaði 400.000
Línubáturinn Jónína Brynja
ÍS 22 er ónýtur eft ir strand
við Straumnes. Báturinn
hafði aðeins farið 15 róðra.
22 MÖRK Í
29 LEIKJUM
Alfreð Finnbogason hef-
ur skorað yfi r tíu mörk
í tveimur deildum á
árinu. Hann hefur
verið í baráttu um
markakóngstitil
í bæði norsku og
hollensku deildinni.
Hann er í þriðja
sæti í baráttunni
um gullskó Evrópu
þar sem hann keppir
m.a. við Lionel Messi.
TÍU
listamenn frá Ís-
landi tilnefndir til
Norrænu tónlistar-
verðlaunanna.
Tvær risavindmyllur
verða settar upp við
Búrfellsvirkjun á veg-
um Landsvirkjunar.
Að minnsta kosti þrír
BORGARÍSJAKAR eru
nú við norðvestanverðar
Íslands strendur.
íslenskra unglinga
hafa aldrei prófað
vímugjafa, hvorki löglega né
ólöglega, samkvæmt evrópskri
rannsókn.
40%
Lil
„Þetta er mannbætandi texti.“
~ÍSAK HARÐARSON
ÓLI ÁGÚS TAR
•
Litlatré
ljóðrænt að tjáningu, myndnotkun
og orðavali, er einn samfelldur
óður til lífsins, óður til ástarinnar,
óður til náttúrunnar, óður til
Borgarfjarðar — en jafnframt
slóttug lýsing á sárri einsemd og
þeim vanda mannsins að finna
sér merkingu á ævikvöldinu.
„Þetta er mannbætandi texti.“
~Ísak Harðarson
www.tindur.is
www.facebook.com/litlatre
Óvenjuleg bók —
og ógleymanleg
ORKUMÁL Aðstoðarforstjóri Lands-
nets segir að fyrirhuguð hækkun á
flutningsgjaldskrá félagsins, sem
tekur gildi um áramótin, sé í fullu
samræmi við lög. Hún miðist við
að arðsemi félagsins verði innan
leyfðra marka og leiði til þess að
fyrirtækið geti rækt hlutverk sitt,
í samræmi við þarfir samfélags-
ins. Ákvörðunin verði fyrst kærð
að lokinni umfjöllun Orkustofnun-
ar sem hefur málið til umfjöllunar.
Samál, Samtök álframleið-
enda, hafa kært hækkunina til
úrskurðar nefndar um raforku-
mál. Þorsteinn Víglundsson fram-
kvæmdastjóri sagði hana vera brot
á því ákvæði raforkulaga að tekjur
verði að vera í samræmi við þann
kostnað sem felst í þjónustunni, að
teknu tilliti til arðsemi.
„Samkvæmt breytingunum
á gjaldskránni er hækkunin til
dreifiveitnanna níu prósent en
þegar tekið hefur verið tillit til
hlutfalls flutnings í rafmagns-
verði til almennings leiðir þetta til
um eins prósents hækkunar á raf-
magnsverði til neytenda. Gjaldskrá
Landsnets til dreifiveitna hefur
verið óbreytt frá 2009 og þrátt
fyrir umrædda hækkun gjald-
skrárinnar er hún sjö prósentum
undir hækkun almennrar verð-
lagsþróunar frá þeim tíma,“ segir
Guðmundur.
Hvað stórnotendur varðar segir
hann að gjaldskrá til þeirra hafi
verið lækkuð í tvígang; 1. janúar
2010 um 7 prósent og 1. júní 2011
um 5 prósent. Það hafi verið gert
vegna áhrifa frá gengishruni krón-
Hækka gjaldskrána
vegna framkvæmda
Landsnet vísar því á bug að gjaldskrárhækkun brjóti í bága við lög. Hækkunin haldi
ekki í við verðlagsþróun. Eigið fé fyrirtækisins er 18 prósent og þarf að styrkja það til
að hægt sé að fjármagna nauðsynlegar framkvæmdir sem séu fyrirhugaðar.
Eigið fé Landsnets er 18 prósent og Guðmundur segir að ef það styrkist
ekki á næstunni geti fyrirtækið ekki fjármagnað nauðsynlegar framkvæmdir
á eigin forsendum. „Ljóst er að á næstu árum er nauðsynlegt að ráðast í
verulegar fjárfestingar í flutningskerfi raforku, meðal annars til að bæta úr
þeim veikleikum sem komið hafa í ljós á undanförnum misserum á flutnings-
kerfinu og til að mæta kröfum um uppbyggingu atvinnulífs á landinu öllu.
Má í því sambandi benda á brýna þörf fyrir aukna flutningsgetu til Suður-
nesja, Eyjafjarðar, Norðaustur- og Austurlands til að geta fullnýtt afkastagetu
fyrirtækis á Akureyri og hugsanlegri stækkun þess, uppbyggingu á Norð-
austurlandi og óskum um að nýta raforku í stað olíu í fiskimjölsverksmiðjum
á Austurlandi.“
Eykur eigið fé fyrirtækisins
RAFMAGN Talsmenn Landsnets segja að hækkunin haldi ekki í við verðlagsþróun.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
unnar. Þær lækkanir hafi verið
afar óheppilegar og ekki endur-
speglað stöðu fyrirtækisins á
þeim tíma. Meðalflutningskostn-
aður stórnotenda sem var 5,4 USD/
MWh í febrúar 2008 verður 5,7
USD/MWh frá 1. janúar 2013 gangi
gjaldskrárhækkunin eftir.
„Lagt er til að flutningsgjald-
skrá til stórnotenda hækki um
20 prósent frá gjaldskránni eins
og hún var eftir framangreindar
lækkanir. Hækkun á gjaldskránni
í Bandaríkjadölum frá 2008 er því
tæpt prósentustig sem er um 4 pró-
sentustigum undir þróun verðlags í
Bandaríkjunum á sama tíma.“
kolbeinn@frettabladid.is
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Mánudagur
5-10 m/s en 8-13 NA-til.
HELGARVEÐRIÐ Vaxandi suðaustanátt og slydda eða snjókoma um landið sunnan-
og vestanvert er líður á daginn og verður víða hvasst síðdegis og í kvöld. Hægari vindur
og úrkomulaust norðaustanlands.
-2°
10
m/s
0°
11
m/s
1°
12
m/s
5°
12
m/s
Á morgun
8-13 m/s, hvassara syðst.
Gildistími korta er um hádegi
2°
-2°
0°
0°
-2°
Alicante
Basel
Berlín
13°
8°
2°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
1°
2°
0°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
0°
0°
21°
London
Mallorca
New York
5°
15°
10°
Orlando
Ósló
París
24°
-7°
5°
San Francisco
Stokkhólmur
17°
-2°
-2°
5
m/s
1°
5
m/s
-6°
3
m/s
-1°
4
m/s
-8°
5
m/s
-4°
7
m/s
-8°
7
m/s
2°
0°
2°
-2°
-4°