Fréttablaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 112
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 84
Lækhóran – listin að höfða til allra
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðssonar
Skemmtikrafturinn Egill Einarsson hefur undan-farið ár verið fórnarlamb einhverra svívirði-
legustu ofsókna sem átt hafa sér stað hér á landi.
Femínistar, eða ætti maður kannski að segja fem-
ínasistar, hafa fellt grímuna og heimta blóð. Ekki fer
á milli mála að þar leikur sært stolt lykilhlutverk. Í
gervi alteregósins Gillzenegger hefur Egill á liðnum
misserum dregið þessa öfgasellu sundur og saman í
póstmódernísku háði í anda Hugleiks Dagssonar.
EGILL hefur vissulega misstigið sig í gegnum tíðina,
til dæmis í gamalli bloggfærslu þar sem gálgahúm-
orinn fór yfir strikið. Það er til marks um heiftina að
þrátt fyrir að hafa fjarlægt umrædda færslu og beðist
ítrekað afsökunar nota femínistar hvert tækifæri til
að rifja hana upp og núa honum henni um nasir.
Í LJÓSI þessa þurfa viðbrögðin við því þegar
stúlka kærði Egil fyrir nauðgun ekki að koma
á óvart. Heykvíslalýðurinn hafði þar fengið
staðfestingu fyrir sannfæringu sinni. Skiptir
þá engu máli að þrátt fyrir að hafa rannsakað
málið í drep sá saksóknari ekki fót fyrir ákæru.
Femínistar linna ekki látum fyrr en maðurinn
hefur verið svo gott sem hrakinn úr mannlegu
samfélagi.
ÞAÐ er ekki lengur hægt að líða að svona
öfl skáki í skjóli réttlætiskenndar
sinnar og grafi undan tjáningar-
frelsinu. Það er löngu orðið tíma-
bært að spyrna fæti við þessari
hrollvekjandi helstefnu.
Eineltisseggurinn Egill „Gillzenegger“ Einarsson er þekktur fyrir framlag sitt til klámvæðingar,
staðalímynda og botnlausrar kvenfyrirlitn ingar.
„Grín“ hans endurspeglar fasíska lífssýn þar sem
þeir sem eru „öðruvísi“ eru álitnir úrhrök. Þeir sem
andæfa fá að finna fyrir því. Um það vitnar blogg-
færsla þar sem Egill hótaði að láta nauðga fjórum
nafngreindum femínistum sem höfðu gagnrýnt hann.
Í LJÓSI forsögunnar þurfti því ekki að koma á óvart
þegar Egill var kærður fyrir nauðgun í fyrra. Það var
í raun aðeins tímaspursmál. Eftir mikið volk í kerfinu
var ákveðið að gefa ekki út ákæru í málinu. Það þýðir
hins vegar ekki að hann sé saklaus, einungis að ekki
þóttu nógu miklar líkur á því að ákæra myndi leiða til
sakfellingar. Þetta mál telst því óupplýst.
OG ENN finnst Agli hann eiga erindi upp á
dekk og fjölmiðlar spila með. Á dögunum
var hann í drottningarviðtali hjá vinsælu
unglingablaði og hélt þar áfram að drulla
yfir femínista og aðra sem hafa vogað sér
að gagnrýna hann, enda ganga hugmyndir
hans um tjáningarfrelsi aðeins í eina átt.
Egill er óforbetranlegur mannhatari og
ekki bara slæm fyrirmynd fyrir óharðn-
aða unglinga heldur beinlínis hættuleg.
ÞAÐ er ekki lengur hægt að líða að svona
öfl skáki í skjóli tjáningarfrelsisins og
misnoti það til að breiða út mannfyrir-
litningu sína. Það er löngu orðið tíma-
bært að spyrna fæti við þessari hroll-
vekjandi helstefnu.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
MYNDASÖGUR
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. hagga, 6. spil, 8. meðal, 9. viðmót,
11. tveir eins, 12. afspurn, 14. gistihús,
16. kvað, 17. bjálki, 18. skörp brún, 20.
klaki, 21. pottréttur.
LÓÐRÉTT
1. létu, 3. gangþófi, 4. sumbl, 5.
þróttur, 7. sáttir, 10. arinn, 13. sigað,
15. dó, 16. ílát, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. bifa, 6. ás, 8. lyf, 9. fas, 11.
ll, 12. umtal, 14. hótel, 16. ku, 17. tré,
18. egg, 20. ís, 21. ragú.
LÓÐRÉTT: 1. gáfu, 3. il, 4. fyllerí, 5. afl,
7. samhuga, 10. stó, 13. att, 15. lést,
16. ker, 19. gg.
Og í íþróttunum förum
við beint á læknavakt-
ina til að fá nýjustu
fréttir af hnémeiðslum
miðjuhrottans Þorleifs
Þorvalds!
Og Þor-
leifur...
hvernig
eru hné-
meiðslin?
Það er ekki alvarlegt!
Það hringlar í því
eins og sparigrís en
það hefur það alltaf
gert!
Þýðir þetta
að þú náir
leiknum næsta
fimmtudag
við Dynamo-
laukhringi?
Ef ég fæ
mótorinn
í gang þá
getur ekkert
stoppað mig!
Jæja, gúrkutíð í
íþróttunum
í sumar!
Frábært,
getum við
þá skipt um
stöð?
Þú getur
grínast
með það!
Engin sólgleraugu?
Hvað varð um nýju
„slæmu“ ímyndina,
Hektor?
Ég er bara
aðeins að
tóna hana
niður.
Ég vil
virka
hættulegur…
…en ég vil líka
halda í „Lindu-
buff-persónu-
leikann“ minn.
Lindub...
Harður að utan en
mjúkur og seigur
að innan.
Hver hefði trúað því
að ég rækist á þig
hérna, Benni?
Þetta er svo
sannarlega lítill
hundur.
Það tókst!
Jibbí!!
Gemmér
fimm!
Nei, bíddu...
ég er alveg að
verða búinn!
Reyndar dugar eitt
„vel gert“.
Góa og Fjarðarkaup
kynna með stolti
www.jolagestir.is
Miðasala á Miði.is
og í síma 540 9800
Miðasala á
aukatónlei
ka
í fullum ga
ngi!