Fréttablaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 37
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 36
Hlakka til að deila
út fatapökkum
Steinunn Björgvinsdóttir, oftast kölluð Steina, starfar sem barnaverndar-
fulltrúi hjá UNICEF í Zaatari-flóttamannabúðunum nyrst í Jórdaníu. Þar
hefur veturinn nú gengið í garð með tilheyrandi næturfrosti.
AÐEINS AÐ SKOLA SANDINN AF Í Zaatari-flóttamannabúðunum búa nú í kringum tuttugu og fimm þúsund manns, yfir helmingurinn börn yngri en átján ára.
Flestir íbúarnir búa í tjöld-um og það segir sig sjálft að þegar hitinn er kom-inn niður fyrir frost-mark á nóttunni er kalt að sofa bara með teppi,“
segir Steinunn Björgvinsdóttir,
barnaverndarfulltrúi hjá UNICEF,
um vetrarkuldann sem farinn er
að segja til sín í Zaatari-flótta-
mannabúðunum við landamæri
Sýrlands og Jórdaníu og búast má
við að vari fram í mars. Hún segir
UNICEF þess vegna hafa útvegað
yfir þrjú þúsund fatapakka fyrir
ungbörn. Pakkarnir innihalda
allt sem þarf til að halda á þeim
hita yfir veturinn, föt til skipt-
anna, hlýja sokka og húfur, teppi
og burðarrúm fyrir þau yngstu.
„Við munum byrja að deila þess-
um pökkum út í næstu viku og
ég hlakka mikið til. Það er erfitt
að horfa upp á lítil börn sem eiga
bágt, og foreldrarnir geta lítið gert
til að útvega það sem þarf.“
Skólinn kominn í hús
Fyrir nokkrum dögum komu
gámahús á flóttamannasvæðið við
landamærin, sem hluti af
íbúunum getur flutt inn í
á næstunni, að sögn Stein-
unnar. Önnur góð frétt er
að fyrir viku gat skólinn,
sem starfræktur hefur
verið á svæðinu í einn
mánuð, flutt úr tjöldum
inn í hús sem Barein, lítið
ríki við Persaflóann, gaf
jórdönskum yfirvöld-
um. „Að komast í hús er
bylting fyrir þau tæp-
lega fjögur þúsund börn
á aldrinum sex til sex-
tán ára sem ganga þarna í skóla á
hverjum einasta degi,“ segir hún.
Steinunn stýrir sjö manna
teymi og fer reglulega í flótta-
mannabúðirnar til að fylgjast með
ástandinu. „Það sem ég og mitt
fólk gerum er að þjálfa þá sem
vinna með börnunum,“ lýsir hún.
„UNICEF á Íslandi hefur safnað
framlögum til aðgerða UNICEF
í Sýrlandi og nágrannaríkjunum
með sérstakri neyðarsöfnun sem
enn er í gangi. Framlög heimsfor-
eldra á Íslandi hafa líka runnið til
verkefnisins. Okkar hlutverk hér
úti er að sjá til þess að þeir sem
vinna með börnunum hafi feng-
ið þá þjálfun sem þeir þurfa á
að halda og að veita þeim hjálp.
Það getur verið í gegnum félags-
aðstoð, sálfræðiaðstoð eða í skól-
unum sem við rekum. En ég sit
ekki sjálf á hverjum degi inni í
tjaldi með börnunum. Þó get ég
aðeins talað arabísku og hef því
möguleika á að hafa einföld sam-
skipti við þau.“
Með eigin smárekstur
Steinunn segir að frá því að flótta-
mannabúðirnar voru opnaðar í
lok júlí síðastliðnum hafi yfir 60
þúsund flóttamenn farið þar í
gegn. Sumir hafi farið áfram inn
í Jórdaníu og sest að í borgum og
bæjum í norðanverðu landinu,
aðrir hafi snúið til baka til Sýr-
lands. „En fjöldinn í flóttamanna-
búðunum hefur haldist í kringum
25 þúsund í nokkuð langan tíma
og yfir helmingur þess hóps eru
börn yngri en 18 ára,“ upplýsir
hún.
Hvernig skyldi svo lífið vera
í flóttamannabúðunum og hvað
er fólk að sýsla? „UNICEF hefur
reynt að virkja fólk og skapa störf
í búðunum. Samtökin hafa ráðið
fólk til að sjá um alla sorphirðu
og þrif og viðhald á hreinlætis-
aðstöðu. Þau hafa líka ráðið kring-
um sextíu sýrlenska kennara við
skólana ásamt því að hafa sjálf-
boðaliða á öllum barnvænu svæð-
unum sem komið hefur verið upp.
Sameinuðu þjóðirnar sjá um allan
mat og ráða fólk til vinnu við að
elda og deila út matarpökkum.
Það er líka yndislegt að sjá að
fólk er sjálft að opna eigin smá-
rekstur. Það er að búa til mat úr
kjúklingabaunum, selja notuð föt,
ávexti og grænmeti og sumir eru
komnir með saumavélar og taka
að sér fatasaum og viðgerðir.“ En
hafa þá aðrir íbúar peninga til að
borga fyrir eitthvað? „Já, fólk-
ið hefur reynt að grípa með sér
það sem það gat þegar það lagði
á flótta, þó það fé dugi auðvitað
ekki um eilífð.“
Alvöru jól
Steinunn er fædd og uppalin
í hinum friðsæla bæ Stykkis-
hólmi en hleypti heimdraganum
snemma. „Ég fór ung að heiman
til að mennta mig og hef ekki átt
heima fyrir vestan síðan ég var
18 ára,“ segir Steinunn, sem nam
alþjóðlega félagsráðgjöf í Dan-
mörku og tók meistaragráðu í
þróunarfræði frá háskólanum í
Manchester. Síðan hefur hún sér-
hæft sig í sálfélagslegum verkefn-
um og búið í Amman í Jórdaníu
frá árinu 2009, ásamt frönskum
eiginmanni sínum. Hann starfar
líka fyrir UNICEF, fyrir Svæðis-
skrifstofu UNICEF fyrir Norður-
Afríku og Mið-Austurlönd. Fyrir
tæpum tveimur árum eignuðust
þau son sem byrjaður er í leik-
skóla og unir hag sínum vel. Hvar
ætlar svo þessi litla fjölskylda að
halda heilög jól?
„Við ætlum að koma heim
til Íslands og það verður voða
gaman. Alvöru jól með hangikjöti
og öllu.“
ÞAÐ ER LEIKUR AÐ LÆRA Mikil gleði fylgdi því að fá nýtt skólahús í
flóttamannabúðirnar, það var gjöf frá smáríkinu Barein.
AÐ STÖRFUM Steinunn Björgvinsdóttir hefur starfað fyrir UNICEF frá því í apríl í
vor, áður var hún hjá frjálsum félagasamtökum sem heita Terre des hommes.
Dagur rauða nefsins verður haldinn hátíðlegur næsta föstu-
dag, 7. desember. Meginmarkmiðið er að gleðja landsmenn
og bjóða fólki á Íslandi að gerast heimsforeldrar UNICEF.
Mánaðarleg framlög heimsforeldra renna til lífsnauðsynlegra
verkefna UNICEF í þágu barna um allan heim. Framlögunum
er ráðstafað eftir því hvar þörfin er mest hverju sinni og hafa
meðal annars runnið til neyðaraðgerða UNICEF í Sýrlandi,
Jórdaníu og nágrannaríkjunum.
Dagur rauða nefsins
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is