Fréttablaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 134
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 106
JÓLATÓNLISTARHÁTÍÐ
HALLGRÍMSKIRKJU 2012
Miðasala í Hallgrímskirkju, s. 510 1000, opið alla daga kl. 9 - 17
listvinafelag.is - hallgrimskirkja.is
LISTVINAFÉLAG HALLGRÍMSKIRKJU 31. STARFSÁR
2. des, 1. sunnudagur í aðventu kl. 17
Sigurður Sævarsson:
JÓLAÓRATÓRÍA
Frumflutningur
Ný jólaóratóría með latneskum texta
SCHOLA CANTORUM
CAPUT HÓPURINN
Guðspjallamaður:
Jóhann Smári Sævarsson bassi
María: Kirstin Erna Blöndal sópran
Stjórnandi: Hörður Áskelsson
Aðgangseyrir 3.900 kr./listvinir og nemendur 2.000 kr.
5. desember, miðvikudagur kl.12-12.30
Aðventa
hádegistónleikar með Schola cantorum.
Schola cantorum syngur íslenska og
evrópska aðventutónlist.
Stjórnandi: Hörður Áskelsson
Miðaverð: 1.500 kr./listvinir 1.000 kr.
16. desember, mánudagur kl. 17
Orgelið og jólin
Björn Steinar Sólbergssonflytur
orgelverk eftir Carter, Guilmant, Messiaen
(úr La Nativité) o. fl.
Miðaverð: 1.500 kr./listvinir 1.000 kr.
19. desember, miðvikudagur kl. 12-12.30
Jólin
Hádegistónleikar með Schola cantorum
Schola cantorum syngur íslenska og
evrópska jólatónlist.
Stjórnandi: Hörður Áskelsson
Miðaverð: 1.500 kr./listvinir 1.000 kr.
Hátíðarhljómar við áramót
Hátíðartónlist fyrir trompeta, orgel og pákur.
Trompetleikararnir Ásgeir H. Steingrímsson,
Eiríkur Örn Pálsson og Einar St. Jónsson, Björn
Steinar Sólbergsson orgelleikari og Eggert
Pálsson pákuleikari flytja verk m.a. eftir Vivaldi,
Purcell, Widor og Albinoni.
Aðgangseyrir: 3.000 kr./2.500 kr./listvinir: 1.500 kr.
31. desember, gamlársdagur kl. 17
APP VIKUNNAR
Skýringar
App fyrir Apple-tæki App fyrir Android-tæki App fyrir Windows væntanlegt
L úðrasveitin Svanur hefur þann sið að hitt-ast nokkrum sinnum á ári til að snæða saman þýskar pylsur með súr-
káli og drekka bæverskt eðalöl.
Margir meðlimir sveitarinnar
búa svo vel að eiga bæverska
þjóðbúninga, eftir reglubundnar
ferðir til Þýskalands.
Nú heldur Svanurinn aðventu-
tónleika í Langholtskirkju 3.
desember klukkan 20. Sigríður
Thorlacius syngur þar þjóðleg
íslensk jólalög í bland við erlend
lög í íslenskum hátíðarbúningi.
Þá verður frumfluttur Jólafor-
leikur eftir Sigurð Inga Snorra-
son, sem sameinar þekkt íslensk
jólalög í einn allsherjar inngang
að jólum.
En hér er súrkálsuppskrift
sveitarinnar, komin frá Finn-
boga túbuleikara.
Súrkál Svans
að hætti
bæverskra
Lúðrasveitin Svanur sem heldur aðventutónleika á
mánudaginn í Langholtskirkju hefur ást á öllu sem
þýskt er, þar á meðal súrkáli.
LÚÐRASVEITIN SVANUR Félagarnir búa svo vel að eiga bæverska þjóðbúninga.
SÚRKÁL Fer vel með góðum pylsum og
krydduðum kjötréttum.
MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
Súrkál
1 kg súrkál (til dæmis Krautboy í 500 g
pokum, fæst m.a. í Fjarðarkaupum)
1 stór laukur
1 grænt epli
100 g beikon (mæli með beikoninu frá
Pylsumeistaranum, Hrísateigi – það er
hægt að fá það í stykkjum eða þykkum
sneiðum)
150-200 ml eplasafi (eða sætt hvítvín á
tyllidögum)
15-20 einiber
1-2 msk. kúmen
Smjörklípa til steikingar
Beikonið er skorið í bita (5-7 mm á
kant) og brúnað í þykkbotna potti
í nokkrar mínútur. Það er svo veitt
upp úr og geymt. Laukurinn er
skorinn frekar fínt og látinn krauma
í beikonfeitinni í nokkrar mínútur og
þess gætt að allar skófir leysist upp.
Því næst er súrkálinu og einiberjun-
um bætt út í, öllu blandað vel saman
og látið malla í um 20 mínútur. Ef
lítill vökvi er í pottinum má bleyta í
með hluta eplasafans. Eplið er kjarn-
hreinsað, skorið í bita og bætt út í
pottinn ásamt eplasafa og kúmeni og
þetta látið malla í aðrar 20 mínútur.
Þá er beikoninu bætt aftur út í og
herlegheitin smökkuð til; kúmeni,
einiberjum, eplasafa, pipar eða salti
bætt við eftir smekk, einnig má
bæta svínasoðsteningi út í ef þarf.
Loks er súrkálið látið malla í um 10
mínútur til viðbótar áður en það er
borið fram, til dæmis með pylsum,
svínasteik eða svínaskönkum.
Súrkálið er ekki síðra upphitað og
því er hentugt að útbúa það kvöldið
áður en á að borða það eða fyrr um
daginn. Við upphitun gæti þurft að
bæta við meiri vökva (eplasafa, vatni,
hvítvíni). -gun
Strætó bs. hefur tekið í gagnið nýtt app sem á að auðvelda farþegum að komast
leiðar sinnar. Í appinu er meðal annars hægt að finna bestu og stystu leiðina á
áfangastað, sjá staðsetningu vagna í rauntíma, leita eftir brottförum vagna frá
ákveðnum biðstöðvum og margt fleira.
Farþegar geta enn fremur vistað þær biðstöðvar sem þeir nota mest og þá birtir
appið á skýran hátt hvaða vagnar eiga leið um þær biðstöðvar og hversu langt er
í næsta vagn.
Appið er til fyrir fyrir Android og iPhone síma og innan skamms er væntanleg
útgáfa fyrir Windows Mobile síma.
Í tilkynningu frá Strætó bs. segir að fyrirhugað sé að þróa og efla appið enn frekar
og farþegar geti þá jafnvel keypt fargjöld með snjallsímanum.
Strætó
Save the Children á Íslandi