Fréttablaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 65
JÓL Í HÖRPU
Stórsveit Reykjavíkur verður með jólatónleika í
Eldborgarsal Hörpu á morgun kl. 16.00. Dagskráin
verður sérlega glæsileg. Meðal þeirra sem koma
fram eru Diddú, Kristjana Stefánsdóttir, Helgi
Björnsson, og Gáttaþefur (Ómar Ragnarsson).
FLOTT
Íris Arna Geirsdóttir,
heimsmeistari í Model
Fitness.
Jón Hjaltalín, eigandi Ginger, vann áður sem einkaþjálfari, keppti í fitness og útbjó matarpakka fyrir
viðskiptavini sína. Viðtökurnar urðu svo
góðar að hann ákvað að opna veitinga-
stað. Staðirnir eru nú orðnir tveir, í Síðu-
múla 17 og í verslun 10-11 í Lágmúlanum,
auk þess sem margir réttir frá Ginger
fást í verslunum 10-11. „Markmið okkar
er að bjóða upp á hollari og bragðbetri
mat sem hentar öllum, allt frá krökkum
til keppnisfólks í líkamsrækt,“ segir Jón.
„Við kappkostum að hafa mikið úrval og
vinnum aðeins með fyrsta flokks hráefni
sem er ferskara en fólk á að venjast.“
Stór hópur viðskiptavina Gingers er
líkamsræktar- og fitness-fólk. „Þetta er
fólk sem er mjög meðvitað um hvað það
borðar. Það þarf að fá mat sem gefur því
orku, úthald, hreysti og útgeislun en á
sama tíma þarf hann að vera fitulítill og
góður á bragðið,“ segir Jón.
Úrvalið er gott. Við erum með grill-
aðan kjúkling með sætum kartöflum og
fersku salati eða orkumiklu kjúklinga-
súpuna. Með þessu er gott að drekka
ferska safa, til dæmis nýpressaða epla-
og engifersafann okkar sem er press-
aður daglega, en hann er vatnslosandi
og stútfullur af vítamíni. Þá bjóðum við
fyrirtækjum einnig að kaupa hjá okkur
veislubakka.“
Meðal fastra viðskiptavina hjá Ginger
er Íris Arna Geirsdóttir, heims meistari
í Model Fitness. Aðspurð segir Íris
mataræðið leggja mikilvægan grunn að
hennar árangri. „Allur tíminn sem fer í
æfingarnar og allt erfiðið sem ég legg á
mig við að lyfta væri til lítils ef matar-
æðið væri ekki í lagi,“ segir Íris.
En það er ekki bara keppnisfólkið sem
þarf að huga að mataræðinu heldur líka
við hin. Þegar Jón er spurður um ráð til
þeirra sem eru að hreyfa sig og passa
línurnar þá segir hann mikilvægast að
halda góðri æfingarútínu og passa upp á
matinn.
„Nú fer í hönd tími freistinga. Með
jólahátíðinni koma jólahlaðborð, jóla-
boð, salt og sykur. Ef menn missa sig
strax í nóvember þá eru þeir að taka
næstum tvo mánuði í sukk og skemma
allt það sem þeir voru búnir að vinna sér
inn í ræktinni,“ segir Jón.
GÓÐUR MATUR
OG BETRA FORM
GINGER KYNNIR Gott mataræði er ekki aðeins lykilatriði til að ná árangri í
líkamsrækt heldur bætir það heilsuna almennt. Sú staðreynd varð kveikjan
að veitingastöðunum Ginger sem sérhæfa sig í hollum og ferskum mat.
GÓÐUR MATUR
Jón Hjaltalín, eigandi
Ginger, var áður
einkaþjálfari.
MYND/ADDI
GINGER
Njóttu þess að lifa
heilbrigðum lífs-
stíl með Ginger
í Lágmúla og
Síðumúla.
Ginger er opið
alla daga í 10-11
í Lágmúlanum og
alla virka daga í
Síðumúla 17.
LOGY ehf.
Lyngháls 10 • sími 661 2580
(húsið við hlið Heiðrúnar,
ÁTVR að neðanverðu)
Farðu ekki
í jólaköttinn
Fallegur fatnaður
á frábæru verði.
Stærðir s-xxxl.
Skart , leggings,
töskur o.f.l
Óvænt tilboð í gangi.
ÞITT TÆKIFÆRI ER
UM HELGINA
laugardag 1.des kl 13-17
sunnudag 2. des kl 13-15
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Vertu vinur á Facebook
Skoðið laxdal.is/kjólar
Se
nd
um
frí
tt
ww
w.
lin
de
sig
n.i
s