Fréttablaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 144
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| SPORT | 116
FÓTBOLTI Manchester United er á toppnum í ensku
úrvalsdeildinni og það getað þeir þakkað gjafmildi
erkifjenda þeirra í Arsenal sem voru tilbúnir að
selja þeim Robin van Persie í haust. Mikilvægi
Robin van Persie fyrir United og mikilvægi
Luis Suarez fyrir Liverpool kemur vel fram
í samantekt Opta-tölfræðiþjónustu ensku
úrvalsdeildarinnar. Luis Suarez er marka-
hæsti leikmaður deildarinnar með 10 mörk
en Van Persie hefur skorað einu marki
minna.
Robin van Persie skoraði sigurmark
Manchester United á móti West Ham í
fyrrakvöld en það var þriðja sigurmark hans
í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Hollend-
ingurinn hefur einnig lagt upp eitt sigurmark fyrir
Chicharito. Van Persie hefur alls skorað í sjö af 9
sigurleikjum United-liðsins.
Luis Suarez hefur ekki skorað í síðustu tveimur
leikjum Liverpool-liðsins og liðið fékk aðeins eitt
stig út úr þeim. Suarez hefur skorað fimm mörk
í þremur sigurleikjum liðsins og Liverpool-liðið
hefur náð í stig í öllum sjö leikjunum þar sem
hann hefur verið meðal markaskorara. Liver-
pool hefur jafnframt aðeins náð að skora 5
mörk í fyrstu 14 umferðunum þar sem Sua-
rez hefur ekki átt beinan þátt í markinu. - óój
Væru í slæmum málum án Van Persie og Suarez
Opta-tölfræðiþjónustan hefur tekið saman merkilega tölfræði um gengi Manchester United og Liverpool
... Robin van Persie
Manchester United væri í 13. sæti deildar-
innar með 16 stig eða 16 stigum á eftir
nágrönnum sínum í Manchester City. United
er eins og er í efsta sæti deildarinnar með
33 stig eftir 14 leiki. Robin
van Persie hefur skorað 9
mörk og gefið 4 stoð-
sendingar í þessum 14
leikjum.
EF MÖRK OG STOÐSENDINGAR VÆRU STROKUÐ ÚT HJÁ ...
➜ Leikir
helgarinnar
LAUGARDAGUR
12.45
West Ham - Chelsea
S2 Sport & HD
15.00
Man. City - Everton
S2 Sport & HD
Liverpool - South.
S2 Sport3
Fulham - Tottenham
S2 Sport4
Arsenal - Swansea
S2 Sport5
West Brom - Stoke
S2 Sport6
17.30
Reading - Man. Utd.
S2 Sport & HD
SUNNUDAGUR
16.00
Norwich -
Sunderl.
S2 Sport
& HD
FÓTBOLTI Atlético situr í öðru sæti
deildarinnar en þremur stigum
munar á liðinu og Barcelona sem
vermir toppsætið. Real Madrid situr
átta stigum á eftir grannliðinu og ell-
efu á eftir Börsungum. Möguleikinn á
að liðið verji Spánarmeistaratitil sinn
er lítill sem enginn.
Atlético hefur ekki unnið deild-
ina síðan tímabilið 1995-1996. Þá
voru nítján ár frá síðasta meistara-
titli félagsins. Sama tímabil vann
liðið spænska konungsbikarinn sem
síðan hefur dvalið í verðlaunaskápum
annarra félaga. Tímabilið sigursæla
stjórnaði argentínskur miðjumaður
ferðinni hjá Atlético. Leikmaðurinn,
Diego Simeone, er í dag knattspyrnu-
stjóri félagsins og nýtur hann skiljan-
lega mikilla vinsælda hjá stuðnings-
mönnum félagsins. Síðan þá hefur
Atlético ekki hafnað fyrir ofan Real
í deildinni.
Falcao gegn Ronaldo
Allra athygli verður á markavélum
liðanna, Cristiano Ronaldo hjá Real,
sem þarfnast ekki frekari kynningar,
og Radamel Falcao hjá Atlético.
Óhætt er að fullyrða að Falcao sé
stærsti bitinn á leikmannamarkaðn-
um í dag sem spilar ekki með einu
„stóru félaganna“ í Evrópu. Síðan
Kólumbíumaðurinn gekk í raðir
portúgalska félagsins Porto frá River
Plate í Argentínu árið 2009 hafa net-
möskvar um alla Evrópu fengið að
finna fyrir spyrnum og sköllum
framherjans.
„Tígurinn“ skoraði tæpt mark að
meðaltali í leik með sigursælu liði
Porto tímabilin tvö í Portúgal. Síð-
asti leikurinn var úrslitaleikur Evr-
ópudeildarinnar vorið 2011 þar sem
Falcao skoraði eina mark leiks-
ins. Markið var hans átjánda í sext-
án leikjum keppninnar. Með réttu
mætti krýna Kólumbíumanninn „kon-
ung Evrópudeildarinnar“ því hann
skoraði tvö marka Atlético Madrid
í úrslitaleiknum í vor þegar félagið
tók bikarinn í sína vörslu. 24 mörk
á fyrsta tímabili í spænsku deild-
inni féllu í skuggann af Lionel Messi
og Ronaldo sem einokuðu forsíður
spænsku blaðanna.
Chelsea-leikurinn
Þegar liðsmenn Chelsea gengu til
búningsherbergja með skottið á milli
lappanna í Ofurbikarnum í haust var
aðeins eitt nafn á vörum sparkspek-
inga. Falcao hafði skorað þrennu í
fyrri hálfleik gegn sjálfum Evrópu-
meisturunum og úrslitin ráðin.
„Draumur sonar míns er að spila
með Real Madrid,“ sagði faðir Falcao
í viðtali við kólumbíska útvarpsstöð
sem vakti mikla athygli. Ólíklegt
má telja að af vistaskiptunum verði
enda heiðursmannasamkomulag milli
félaganna.
Þó má fastlega reikna með því
að Falcao söðli um fyrr en
síðar. Í samningi Falcao
kemur fram að Kólumb-
íumaðurinn megi yfirgefa
félagið berist tilboð upp á
60 milljónir evra eða tæpa
tíu milljarða króna. Það er helm-
ingi hærri upphæð en Atlético keypti
kappann á sumarið 2011.
Chelsea er talinn líklegur áfanga-
staður Falcao en liðið gæti boðið fyrr-
um leikmann Atlético, Fernando Tor-
res, í skiptum. Ólíklegt er að áhugi
liðanna minnki eftir leikinn í kvöld
enda líkurnar meiri en minni að
Falcao verði á skotskónum.
kolbeinntumi@365.is
Litli bróðir í Madríd minnir á sig
Atlético heimsækir Real í slagnum um Madrídarborg í kvöld. Diego Simeone hefur náð frábærum árangri á innan við ári sem stjóri Atlético
en þrettán ár eru síðan Atlético lagði Real að velli. Nú er lag en Atlético er aldrei þessu vant aðalkeppinautur Barcelona í toppbaráttunni.
➜ Staðan eftir 13 leiki
1 Barcelona 37 stig
2 Atlético 34 stig
3 Real Madrid 26 stig
➜ Markahæstu menn
1 Lionel Messi 19 mörk
2 Cristiano Ronaldo 12 mörk
3 Radamel Falcao 11 mörk
Fylkir (2004-05, 2012)
45 leikir
16 mörk
Valur (2013-?)
?
KR (2006-2010)
90 leikir
50 mörk
Víkingur (2011)
14 leikir
7 mörk
Þróttur (1998, 2003)
19 leikir
10 mörk
FÓTBOLTI Björgólfur Takefusa gekk í gær
frá tveggja ára samningi við Valsmenn
og mun spila með liðinu í Pepsi-deildinni
næsta sumar. Valur er fimmta Reykjavík-
urfélag Björgólfs á ferlinum og enn frem-
ur fjórða félagið sem hann spilar með í
Pepsi-deildinni á síðustu fjórum sumrum.
Björgólfur er á 32. aldursári og hefur
skorað 83 mörk í 168 leikjum í efstu deild.
Hann er aðeins einn af ellefu mönnum sem
hafa brotið 80 marka múrinn og vantar
fjögur mörk til þess að komast upp fyrir
Hörð Magnússon og þar með upp í sjötta sætið.
„Ég er ótrúlega ánægður að þetta skyldi ganga eftir. Að sama skapi er
erfitt að fara úr Víkinni. Eftir að ég hitti mennina í kringum klúbbinn og
Magga Gylfa þá varð ég alltaf spenntari fyrir verkefninu. Ég held að það
séu mjög skemmtilegir tímar fram undan hjá Val,“ sagði Björgólfur við
Hjört Hjartarson í útvarpsþættinum Boltanum á X-inu 977 í gær þar sem
kom fyrst fram að hann væri á leiðinni á Hlíðarenda.
Björgólfur hefur verið samningsbundinn Víkingum undanfarin tvö ár en
liðið féll úr deildinni 2011 og Björgólfur var í láni hjá Fylki í sumar. - óój
Björgólfur Takefusa Valur fi mmta Reykjavíkurfélagið hans á ferlinum
Sé Diego Simeone ekki þegar kominn í guðatölu hjá stuðningsmönnum liðs-
ins verður hann það takist liðinu að leggja stóra bróður á Santiago Bernabéu-
leikvanginum í Madríd í kvöld. Atlético hefur ekki lagt Real að velli í þrettán
ár. Þá unnu hinir rauðu og hvítu 3-1 sigur á Bernabéu. Síðan þá hefur Real
unnið átján leiki en fimm sinnum hafa liðin skilið jöfn. Bið undirokaðra
stuðningsmanna Atlético eftir sigri er því orðin löng og erfið.
Til marks um hve langt er síðan skoraði Jimmy Floyd Hasselbaink tvö
af mörkum gestanna en Hollendingurinn átti síðar eftir að mynda
banvænt framlínupar með Eiði Smára Guðjohnsen hjá Chelsea.
Iker Casillas, sem hafði ekki spilað með aðalliði Real á þessum
tíma, sat á bekknum. Síðan hefur spænski markvörðurinn
staðið vaktina 645 sinnum með Real og 143 sinnum fyrir
land og þjóð.
Þrettán ár frá síðasta sigri Atlético
... Luis Suarez
Liverpool væri í 19. og næstsíð-
asta sæti deildarinnar með 6 stig
eða sex stigum frá öruggu sæti.
Liverpool er eins og er í 12. sæti
deildarinnar með 16 stig eftir 14
leiki. Luis Suarez hefur skorað 10
mörk og gefið 2 stoðsendingar í
þessum 14 leikjum.