Fréttablaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 108
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 80
TEIKNAR ÞÚ
FLOTTAR
MYNDIR?
Sendu okkur myndina þína í pósti til
Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is
Heilabrot
FRÁ EIK
Hin sjö ára
Eik Ægisdóttir,
sem á heima í
Kópavogi, sendi
krakkasíðunni
þessa fallegu
mynd. Frétta-
blaðið hvetur
krakka til að
senda myndir
á krakkar@fret-
tabladid.is.
Freyja Hannesdóttir er nýorðin
sex ára og líka nýflutt til Noregs
með mömmu sinni. Hún er auk
þess nýbyrjuð í skóla svo það
er ljóst að margt hefur breyst á
skömmum tíma í lífi Freyju. Sjálf
er hún hæstánægð með þetta
allt saman, er búin að eignast
góða vini og ætlar að byrja að
æfa handbolta eftir áramót.
Í hvaða borg átt þú heima? Ég
á heima í Stavanger í Noregi.
Hvað heitir skólinn þinn? Skól-
inn minn heitir Kampen Skole.
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast að gera í skólanum? Mér
finnst frímínútur og „ stasjoner“
skemmtilegastar. Þegar við
höfum „stasjoner“ færum við
okkur á milli borða í stofunni og
á hverju borði leysum við mis-
munandi verkefni, annaðhvort í
norsku eða stærðfræði.
Kunnir þú norsku þegar þú
byrjaðir í skólanum? Nei, ég
kunni enga norsku svo ég talaði
bara íslensku og reyndi að tala
hægt. Krakkarnir og kennararnir
skildu mig stundum en ekki
alltaf.
Er erfitt að læra norsku? Nei,
það er gaman að læra norsku.
Jóhanna, sem er íslenskur kenn-
ari, kemur og hjálpar mér með
norskuna einu sinni í viku.
Hvað finnst þér erfiðast við
að búa í Stavanger? Mér finnst
stundum erfitt að búa langt frá
öllum sem ég þekki á Íslandi.
En hvað er þá skemmtilegast?
Að læra að tala norsku!
Finnst krökkunum erfitt að
segja nafnið þitt? Já, þau segja
það aðeins öðruvísi því fólk í
Stavanger segir öðruvísi R en
á Íslandi. Svo kalla sumir mig
Frøya.
Þú áttir afmæli um daginn,
hvernig hélstu upp á það? Ég
bauð stelpunum í bekknum
mínum í afmælispartí í Leo’s
lekeland. Þar er fullt af renni-
brautum, risastórt eldfjall og
trampólín. Við fengum pylsur, ís
og köku.
Sumir kalla mig Frøya
Freyja Hannesdóttir er nýfl utt til Noregs og þar hóf hún skólagöngu í haust.
Hún kunni enga norsku þegar hún fl utti út en hefur gengið vel að læra hana.
SKEMMTILEGAST Í FRÍMÍNÚTUM Freyja kann vel við sig í nýja skólanum, Kampen
Skole í Stavanger í Noregi.
Stærð: 385.252 ferkílómetrar
Fjöldi íbúa: 5.017.500
Höfuðborg: Ósló
Tungumál: Norska
Noregur
1. Hve lengi sefur asninn á næturnar?
2. Hvað er það sem hefur 21 auga en hvorki nef né munn?
3. Hvað á maður að gera þegar maður vill ekki láta trufla hjá sér
nætursvefninn?
4. Hver hefur hatt, en ekkert höfuð, aðeins einn fót, en enga skó?
SVÖR
1. Þangað til hann vaknar. 2. Teningur. 3. Sofa á daginn. 4. Sveppurinn.
Aðventukransarnir
eru eitt af aug-
ljósustu merkjum
þess að aðventan
er gengin í garð.
Þeir eru eitt það
jólalegasta sem
við setjum upp
hjá okkur á jóla-
föstunni og bera
fjögur kerti, en
logandi kertin merkja komu Krists og
aðdragandann að henni.
Fyrsta kertið er Spádómskertið, það
minnir á fyrirheit spámanna Gamla
testamentisins, sem höfðu sagt fyrir
um komu frelsarans.
Annað kertið er Betlehemskertið og
heitir eftir fæðingarbæ Jesú, þar sem
ekkert rúm var fyrir hann.
Þriðja kertið er Hirðakertið, nefnt
eftir hirðingjunum sem fátækir og
ómenntaðir fengu fyrst fregnina góðu
um fæðingu frelsarans.
Fjórða kertið er Englakertið, sem
minnir okkur á englana sem fluttu
fréttina um fæðingu frelsarans.
Kertin í
aðventukransinumTeikningar og texti: Bragi Halldórsson
20
þið svona orðatening?“ spurði Lísaloppa. „Nei,“ sagði
Konráð. „En hann virkar spennandi.“ Konráði fannst allar
nýjar þrautir sem hann hafði ekki séð áður vera spennandi.
„En þið, Kata og Róbert,“ spurði Lísaloppa. „Viljið þið ekki
líka reyna að leysa þennan orðatening?“ Kata horfði
áhugalaus út í bláinn. „Það er varla þess virði, Róbert þykist
vita svarið fyrirfram,“ sagði hún fýld. Róbert ætlaði að fara
að segja eitthvað, en hætti við. Það var ómögulegt að þau
Kata væru alltaf að rífast um gáturnar. „Jæja, við Konráð
leysum þá bara orðateninginn,“ sagði Lísaloppa.
„En hvernig þraut er orðateningur,“ sagði Konráð. „Við
þurfum að raðað þessum stöfum þannig í reitina,“ sagði
Lísaloppa. „Að fram komi orð í allar línur hvort sem lesið er
lóðrétt eða lárétt. Fyrsta orðið er nafn einnar af dætrum
Ægis, næsta orð þýðir illt umtal, svo karlmannsnafn og loks
nafn dýrs.
á
a
r
s
á
a
r
s
a
i
b
n
a
f
i
n