Fréttablaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 120
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 92MENNING
Blásarakvintett Reykjavíkur og félagar halda sína árlegu tónleika
undir heitinu „Kvöldlokkur á jólaföstu“ í Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 4. desember klukkan 20.
Að venju er boðið upp á klassískar blásaraserenöður, fagrar og lokk-
andi, eins og heiti tónleikanna gefur til kynna.
Það eru tónskáldin Mozart, Beethoven og Gounod sem leggja til
kvöldlokkur að þessu sinni. Í lokin leika þeir félagar hina fögru mót-
ettu Mozarts „Ave verum corpus“.
Lokkandi blásara-serenöður
Árvissir tónleikar Blásarakvintetts Reykjavíkur.
KVÖLDLOKKUR Blásarakvintett Reykjavíkur í Fríkirkju Reykjavíkur.
Jennifer Egan hefur sent frá sér nokkrar
skáldsögur og smásögur sem vakið hafa
athygli en það er hennar nýjasta skáldsaga
A Visit from the Goon Squad, sem nefnist
Nútíminn er trunta í íslenskri þýðingu Arn-
ars Matthíassonar, sem hefur fært henni
frægð utan heimalandsins Bandaríkjanna.
Hún hlaut Pulitzer-verðlaun fyrir hana
árið 2011 en sagan hefur verið þýdd víða
og fengið góða dóma. Nútíminn er trunta
er safn þrettán sagna sem segja frá fólki
sem allt tengist tónlistariðnaðinum á ein-
hvern hátt. Egan segir það hafa verið gaml-
an draum hjá sér að skrifa um tónlistar-
bransann.
Rannsakaði tónlistariðnaðinn
„Ég var heilluð af þessum geira en vissi
samt ekkert um hann. Lengi var ég á hött-
unum eftir því að fá úthlutað því verkefni
hjá New York Times að skrifa um eitthvað
sem tengdist tónlist, en ég hef stundum
skrifað greinar fyrir blaðið. En það gerð-
ist ekki, kannski út af því að ég kom ekki
með neinar góðar tillögur sjálf,“ segir Egan
og hlær. „Þannig að það hlaut bara að koma
að því að ég skrifaði skáldverk sem tengd-
ist tónlist. En ég byrjaði ekki á þessu verki
með það í huga að það kæmi út í bók. Ég
vinn þannig að ég skipulegg ekkert fyrir
fram og veit ekki endilega hvað ég er að
gera þegar ég byrja að skrifa. Þannig var
með þessa bók, ég byrjaði á einni sögu og
hélt ég væri að skrifa til að skemmta sjálfri
mér. Síðar komst ég að þeirri niðurstöðu
að skrifa meira og halda áfram að spinna
þræði um persónurnar.“
Til þess að umhverfi söguhetjanna yrði
sannfærandi lagðist Egan í miklar rann-
sóknir á tónlistariðnaðinum. „Ég komst að
því að stafræna byltingin, öll tölvuvæðing
tónlistargeirans, hafði miklu víðtækari og
dýpri áhrif en ég í rauninni hafði gert mér
grein fyrir. Og áhrifin eru ekki jákvæð eins
og vonast var eftir í árdaga netsins þegar
menn gerðu sér svo háleitar hugmyndir um
að það myndi auðvelda óþekktum flytjend-
um að koma sér á framfæri og lifa af tón-
list. Það sem gerst hefur hins vegar er að
ólöglegt niðurhal á tónlist hefur gert það
erfiðara fyrir tónlistarmenn, þess vegna
fara tónlistarmenn í svona margar tón-
leikaferðir,“ segir Egan sem tengir sögu-
hetjur sagna sinna við tónlistariðnaðinn
með margvíslegum hætti. Og hún notar
hann til að endurspegla áhrif tímans, sem
segja má að sé hitt umfjöllunarefni bókar-
innar. „Tími skiptir máli í öllum bókum,
en þær fjalla ekki allar um tímann. Þessi
gerir það. Hún er að mörgu leyti viðbrögð
við meistaraverki Proust, Í leit að glötuð-
um tíma. Mig langaði til að fjalla um tíma
og breytingar eins og hann gerir en færa
umfjöllunarefnið yfir á nútímann.“
Hver saga með sinn stíl
Sögurnar eru svo tengdar saman á hugvits-
samlegan hátt þannig að þrátt fyrir fjöl-
margar persónur og tímaflakk verður loka-
útgáfan að heilsteyptu verki. „Fyrirmyndin
að byggingu verksins eru konseptplötur eins
og við þekkjum frá áttunda áratugnum, þar
sem plata segir sögu og myndar heild, þó
lögin á henni séu ólík. Þess vegna reyndi
ég að skrifa hvern hluta verksins í stíl, sem
líktist á engan hátt þeirri sem kom á undan.
Þannig á bókin alls ekki að vera eins og smá-
sagnasöfn þar sem sögurnar tengjast bæði
í efni og stíl. Ég reyndi að gera þær eins
ólíkar og hægt er,“ segir Egan sem meðal
annars skrifar einn hlutann eins og Power
Point-glærusýningu og annan eins og tíma-
ritsgrein.
Egan segir gaman að bókin hafi hlotið
svona mikla útbreiðslu eins og raunin er.
„Það er alveg frábært og kom mér á óvart.
Ég er mjög þakklát og lít svo á að ég sé mjög
heppin að hafa fengið að upplifa þessa vel-
gengni,“ segir Egan. sigridur@frettabladid.is
Saga sem fj allar um tíma og tónlist
Skáldsaga bandaríska rithöfundarins Jennifer Egan, A Visit from the Goon Squad, hefur sópað til sín verðlaunum, en hún hlaut meðal
annars hin virtu Pulitzer-verðlaun árið 2011. Konseptplötur eru fyrirmynd bókarinnar sem kom nýverið út í íslenskri þýðingu.
JENNIFER EGAN Segir velgengni bókarinnar Nútíminn er trunta hafa komið sér ánægjulega á óvart.
ÓPERUFERÐ TIL NEW YORK
20.–25. FEBRÚAR 2013
í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Verdis og Wagners
Farið verður á eftirfarandi sýningar í Metropolitan-óperunni:
Parsifal eftir Richard Wagner. Stjórnandi er Daniele Gatti og í
aðalhlutverkum eru Jonas Kaufmann, Katarina Dalayman, Peter
Mattei, Evgeny Nikitin og René Pape.
Don Carlo eftir Giuseppe Verdi. Stjórnandi er Lorin Maazel og í
aðalhlutverkum eru Ramón Vargas, Barbara Frittoli, Anna Smirnova,
Dmitri Hvorostovsky, Ferruccio Furlanetto og Eric Halfvarson.
Carmen eftir Georges Bizet. Stjórnandi er Michele Mariotti og í
aðalhlutverkum eru Anita Rachvelishvili, Nikolai Schukoff, Ekaterina
Scherbachenko og Teddy Tahu Rhodes.
Enn fremur verður boðið upp á aðra menningartengda viðburði.
Fararstjórar eru Tómas H. Heiðar, formaður Vinafélags Íslensku
óperunnar og Edda Jónasdóttir, leiðsögumaður.
Edda Jónasdóttir veitir nánari upplýsingar og annast skráningu.
Vinsamlegast sendið tölvupóst á edda@eric.is
eða hringið í síma 848 3890.
Vinafélag Íslensku óperunnar stendur fyrir
New York
Jennifer Egan býr ásamt fjölskyldu sinni
í New York en hún er alin upp í San
Francisco. Hún
situr við skriftir þessa
dagana og er með
tvö verk í smíðum.
„Mig langar að skrifa
sögulega skáldsögu
sem gerist í New York
á 4. og 5. áratugnum
og er nú að lesa mér
til um það tímabil.
Einnig langar mig að
skrifa aðra bók sem tengist söguhetjunum
í Nútíminn er trunta en hún á hvorki að
fjalla um tónlist né tíma. Ég held að það
gæti orðið spennandi.“
Áhrifavaldar
Egan segir erfitt að
benda á áhrifavalda
á verk sín. „Ég held
að aðrir sjái það
betur en ég. En ég á
mér auðvitað eftir-
lætishöfunda sem
hafa haft þau áhrif á
mig að mig langaði
til þess að gerast
rithöfundur. Shake-
speare til dæmis og
Proust. Síðan ligg ég núna í bókum eftir
Edith Wharton, House of Mirth er til dæmis
frábær. Wharton tekst að skrifa um New
York á máta sem er nútímalegur enn í dag.“
Frægi kærastinn
Egan og Steve Jobs voru par á níunda
áratugnum og hann setti upp fyrstu tölvuna
sem hún eignaðist, Macintosh. „Við héldum
sambandi alla tíð og mér þótti mjög vænt
um hann. Ég hef reynt að aðskilja mínar
minningar af honum frá þeim sem eru
orðnar almannaeign. Það er mjög skrítið
að hafa átt í persónulegu sam-
bandi við einhvern sem kyn-
slóðir álíta sig hafa verið
í persónulegu sam-
bandi við. Þegar ég
horfi á alla í kringum
mig sem eiga iPhone þá
finnst mér þetta allt
svo furðulegt, áhrif
hans voru svo mikil.“
Tvær hliðar
Bókin A Visit from the
Goon Squad tekur heiti
sitt úr lagi David Bowie,
„Fashion“, en í því er
hendingin „We are the
Goon Squad and we‘re
coming to town.“ Goon
Squad þýðir bókstaflega
sveit ofbeldisseggja en
auk lagavísunarinnar er
titillinn vísun í áhrifamátt tímans. Á íslensku
heitir bókin Nútíminn er trunta sem er heiti
lags Þursaflokksins. Bókinni er skipt í tvo
hluta A og B eins og plata hefur A-hlið og
B-hlið. Hlutar hennar eru þrettán og var mark-
mið Egan að hver þeirra segði sjálfstæða sögu
en saman mynduðu hlutarnir heild.