Fréttablaðið - 15.12.2012, Blaðsíða 4
15. desember 2012 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
MILLJARÐAR
KRÓNA
10.000 krónur
er hámarksverð gjafa
frá útlöndum sem ekki
þarf að borga toll af. Það
er að segja annarra en
brúðargjafa sem eru
tollfrjálsar svo lengi sem
þær eru „eðlilegar og hæfilegar“.
8.12.2012 ➜ 14.12.2012
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is
og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
7.500
lítrar
af blóði er það magn
sem Blóðbankinn
fær úr 15.000 blóð-
gjöfum á hverju ári.
1.500
nýir heimsforeldrar
voru skráðir í síma-
söfnun UNICEF á
Degi rauða nefsins.er sá fjöldi MANDARÍNA sem hver
Íslendingur borðar að meðaltali í
kringum jólin.
5.000 FÉLÖG
hafa enn ekki skilað inn ársreikningi
vegna ársins 2011.
25%
landsmanna eru án lág-
marksskólphreinsunar.
54% fullorðinna Íslend-inga eiga snjallsíma.
voru úrslitin í leik
toppliðanna í ensku
úrvalsdeildinni,
Manchester United
og Manchester City,
sem mættust á
heimavelli City um
síðustu helgi.3
2
29%
útkalla björgunar-
sveita landsins
á þessu ári voru
vegna göngufólks.
var verðið
sem banda-
ríska lyfja-
fyrirtækið
Amgen greiddi
fyrir Íslenska
erfðagreiningu.
25-30
ÓBYGGÐALEIÐIR
SKRUDDA
www.skrudda.is
Spennandi og
fáfarnar ferðaleiðir
um hálendi Íslands.
Bók sem allir
fjallamenn verða
að hafa í bílnum.
Hinn fullkomni
ferðafélagi!
Á Í SLANDI
DÓMSMÁL Samningur sem sagð-
ur er hafa verið teiknaður upp og
undirritaður á barnum á skemmti-
staðnum Strawberries vorið 2007
er í brennidepli í máli sextugs
manns sem sætir ákæru fyrir að
hafa svikið tæpar fjörutíu milljón-
ir af kreditkortareikningi fjárfest-
isins Magnúsar Ármann. Magnús
þvertekur fyrir að hafa nokkurn
tímann gert slíkan samning og
segir hann falsaðan.
Síðari hluti aðalmeðferðar máls-
ins fór fram í gær. Þá kom Magnús
fyrir dóminn sem þolandi brotsins
og bar vitni.
Samkvæmt ákærunni tók mað-
urinn tæpar fjörutíu milljónir út
af reikningnum í 32 færslum árið
2007. Magnús Ármann tók ekki
eftir neinu fyrr en um haustið og
lét þá bakfæra stóran hluta, þann-
ig að 28 milljónir af tjóninu lentu
á Borgun, sem sá um millifærsl-
urnar, en afgangurinn á honum
sjálfum.
„Ég hafði ekki áhyggjur sem
slíkar af þessu korti,“ sagði Magn-
ús fyrir dómnum í gær, spurður
hvernig stæði á því að hann hefði
ekki tekið eftir því að um fjórar
milljónir hefðu að jafnaði verið
skuldfærðar á hann mánaðarlega.
Það hefðu verið mistök hjá Lands-
bankanum í Lúxemborg að fylgjast
ekki betur með hans málum.
„Þetta var bara sjokk,“ sagði
hann um það þegar hann uppgötv-
aði allt saman.
Sakborningurinn hefur gefið
þær skýringar að Magnús hafi,
með áðurnefndum samningi á
Strawberries, veitt honum heimild
Segir Magnús hafa
gefið ótakmarkað fé
Maðurinn sem ákærður er fyrir að svíkja um 40 milljónir af kreditkorti Magnúsar
Ármann segist hafa samið við hann á barnum á Strawberries um ótakmarkaðan
styrk til handa meðferðarmiðstöð í Taílandi. Magnús kannast ekkert við þetta.
Inn í málið fléttast Jóhann R. Benediktsson, þá-
verandi lögreglustjóri á Suðurnesjum. Magnús
kveðst hafa fengið tölvupóst frá ákærða eftir að
málið komst upp, sem innihélt „ævintýralegar yfir-
lýsingar“– lítt dulbúnar hótanir– um að ef hann drægi
ekki kæru sína til baka yrði hann bendlaður við ýmislegt
vafasamt. Hann sagðist ætla að fá lögreglustjórann
Jóhann með sér til þess verks.
Magnús hafði samband við Jóhann vegna
þessa tölvuskeytis, sem aftur talaði við
sakborninginn og fékk hann til að játa sök í
tölvupósti til Magnúsar. Hann hefur síðan sagt
játninguna marklausa og dregið hana til baka.
Lögreglustjóri blandast í málið
til að taka fjórar milljónir á mán-
uði út af reikningnum, sem styrk
til handa meðferðarmiðstöð sem
ákærði væri að koma upp í Taí-
landi. Litlum sögum fer hins vegar
af þeirri miðstöð og Magnús segir
þetta alls saman vera lygi.
Sækjandi málsins fór fram á
eins til eins og hálfs árs fangelsi
yfir manninum en verjandi hans,
Sveinn Andri Sveinsson, krafðist
þess að refsingin yrði skilorðs-
bundin ef til hennar kæmi, meðal
annars vegna þess hversu mjög
málið hefði tafist. Það var kært
í nóvember 2007 og ákæra ekki
gefin út fyrr en tæpum fimm árum
síðar. stigur@frettabladid.is
SLYS Sjómaðurinn sem féll fyrir
borð af togaranum Múlabergi út
af Skagafirði er talinn látinn.
Hann hét Gunnar Gunnarsson,
fæddur 1962. Hann bjó á Dalvík
og lætur eftir sig sambýliskonu
og tvær stjúpdætur.
Skipverjar á togaranum Múla-
bergi tóku eftir því á þriðjudags-
kvöld að Gunnar væri fallinn
fyrir borð. Varðskipið Þór, björg-
unarþyrla og nærliggjandi skip
tóku þátt í leit að honum.
Fjölskylda Gunnars vill koma
á framfæri þakklæti til allra sem
tóku þátt í leitinni. - gb
Leit ekki haldið áfram:
Sjómaðurinn
talinn látinn
SÝRLAND, AP Þótt uppreisnarmenn í Sýrlandi herji nú á höfuðborgina
Damaskus og hafi náð miklum árangri undanfarið gætu átökin dreg-
ist mjög á langinn, því her Bashar al Assads forseta er enn öflugur.
Stjórnarherinn einn hefur auk þess möguleika á flughernaði.
Vestræn ríki og arabalönd sem lýst hafa yfir stuðningi við uppreisn-
armenn hafa samt ekki viljað útvega þeim vopn eða hernaðaraðstoð af
ótta við að innan þeirra komist öfl herskárra íslamista til valda. - gb
Her Bashars al Assads Sýrlandsforseta í vörn:
Uppreisnarlið herjar á Damaskus
UPPREISNARMENN Á VÉLHJÓLI Þrátt fyrir sigurgöngu uppreisnarliðsins býr stjórn
Assads enn yfir öflugum her. NORDICPHOTOS/AFP
Veðurspá
Mánudagur
8-18 m/s, hægara syðst.
BÚIST VIÐ STORMI SA-til og allra syðst á landinu í dag. Úrkoma A- og S-lands í dag
en þurrt að kalla V-til. Á morgun veður él eða slydda NA-til en bjart V-lands og allra
syðst.
-1°
10
m/s
0°
13
m/s
-1°
7
m/s
3°
13
m/s
Á morgun
10-20 m/s, hvassast SA-til.
Gildistími korta er um hádegi
1°
-1°
2°
2°
0°
Alicante
Basel
Berlín
19°
2°
4°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
4°
6°
4°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
3°
3°
22°
London
Mallorca
New York
11°
19°
7°
Orlando
Ósló
París
25°
1°
11°
San Francisco
Stokkhólmur
13°
2°
1°
8
m/s
4°
11
m/s
1°
5
m/s
2°
10
m/s
-2°
6
m/s
-1°
10
m/s
-7°
8
m/s
-2°
1°
-1°
1°
0°
Snjólaug Ólafsdóttir
veðurfréttamaður
MAGNÚS
ÁRMANN
Bar vitni sem
þolandi brots í
gær.
NOREGUR Norska krónan hefur
styrkst verulega síðustu misseri
með uppgangi í efnahagslífinu
þar í landi.
Ekki sér enn fyrir endann á því,
samkvæmt því sem Bloomberg
hefur eftir Ian Stannard, sérfræð-
ingi hjá Merrill Lynch-bankanum.
Um þessar mundir jafngildir
ein evra um 7,3 norskum krón-
um, en Stannard segir að á næsta
ári geti hlutfallið farið undir sjö
krónur í fyrsta sinn.
Þessi hækkun mun þó kynda
undir verðbólgu í Noregi og auka
þörfina á stýrivaxtahækkun. - þj
Allt á uppleið eystra:
Norska krónan
hækkar enn