Fréttablaðið - 15.12.2012, Blaðsíða 150
15. desember 2012 LAUGARDAGUR| SPORT | 110
Þrjár örvhentar skyttur duttu út fyrir ÓL í Barcelona 1992
HANDBOLTI Alexander Peters-
son verður væntanlega ekki með
íslenska landsliðinu í næsta mán-
uði þegar heimsmeistarakeppnin
fer fram á Spáni vegna þrálátra
meiðsla á öxl. Þetta er þriðji byrj-
unarliðsmaðurinn sem heltist úr
lestinni en jafnframt þriðja örv-
henta skyttan sem verður ekki í
boði fyrir þjálfarann Aron Krist-
jánsson.
Áður hafði landsliðsfyrirliðinn
og sá markahæsti frá upphafi,
Ólafur Stefánsson, lagt landsliðs-
skóna á hilluna og þá er Rúnar
Kárason, spútnikleikmaðurinn á
EM í Serbíu, enn að koma til baka
eftir krossbandsslit.
Sú staða sem er komin upp minn-
ir dálítið á aðdraganda Ólympíu-
leikanna fyrir rúmum tuttugu
árum, þegar íslenska liðið fékk
óvæntan þáttökurétt á leikunum í
Barcelona.
Íslenska liðið missti þrjá heims-
klassa örvhenta leikmenn á mán-
uðunum fyrir mótið, fyrst reynslu-
boltana Kristján Arason og Sigurð
Val Sveinsson og svo loks Bjarka
Sigurðsson skömmu fyrir mót.
Þjálfarinn Þorbergur Aðal-
steinsson ákvað að veðja á rétt-
hentan mann og Júlíus Jónasson
skilaði þeirri stöðu með miklum
glæsibrag.
Landsliðsþjálfarinn Aron Krist-
jánsson hefur þegar biðlað til
Ólafs Stefánssonar um að taka
aftur fram skóna en eins og er
Ásgeir Örn Hallgrímsson eina
örvhenta skytta liðsins.
Íslenska landsliðið átti frá-
bært mót í Barcelona og náði því
í fyrsta sinn í sögunni að spila
um verðlaun á stórmóti. Liðið
tapaði reyndar tveimur síðustu
leikjum sínum, í undanúrslitum
á móti Samveldinu og í leiknum
um 3. sætið við Frakka, en
strákarnir náðu þá að leysa það
einstaklega vel að spila án örv-
hentrar skyttu. Nú er bara
að vona að það gangi
jafnvel að leysa þetta
á Spáni í janúar.
ooj@frettabladid.is
Skortur á örvhentum skyttum
Íslenska landsliðið í handbolta er komið í svipaða stöðu og í aðdraganda Ólympíuleikanna í Barcelona 1992. Þá missti liðið líka þrjár
örvhentar skyttur fyrir mótið og endaði á því að spila með rétthentan mann hægra megin, reyndar með mjög góðum árangri.
BJARKI SIGURÐSSON
Bjarki hafði lengstum spilað í hægra
horninu með landsliðinu en eftir forföll
Kristjáns og Sigurðar ákvað Þorbergur að
veðja á Bjarka í skyttustöðunni. Það fór
hins vegar aldrei svo að Bjarki gæti leyst þá
af. Bjarki meiddist á hné í upphafi leiks við
Spán á æfingamóti um sumarið og gat ekki
spilað með liðinu á leikunum.
SIGURÐUR VALUR SVEINSSON
Hafði verið í skugga Kristjáns í tíð Bogdans
Kowalczyk en fór á kostum í b-keppninni í
Austurríki fyrr um árið þar sem hann skorað
25 mörk og átti fjölmargar stoðsendingar.
Hann ákvað að láta laga liðband í þumalfingri
eftir tímabilið en þegar hann fór undir hnífinn
leit ekki út fyrir að íslenska landsliðið yrði
með á Ólympíuleikunum í Barcelona.
KRISTJÁN ARASON
Markahæsti leikmaður landsliðsins frá upphafi
var þarna kominn á lokakafla ferilsins og far-
inn að þjálfa FH. Kristján var með lands liðinu
í b-keppninni í Austurríki fyrr um veturinn en
spilaði þá aðallega í vörninni. Hann átti við
þrálát meiðsli í öxl að stríða og ákvað að fara
í skurðaðgerð í kjölfarið á tímabilinu þar sem
FH-ingar urðu Íslandsmeistarar og bikarmeist-
arar undir hans stjórn.
HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ S: 414 1740 • EYRARVEGI 21 SELFOSSI S: 480 3700 • GARÐARSBRAUT 18A HÚSAVÍK S: 464 1600 • GLERÁRGÖTU 30 AKUREYRI S: 460 3380 • KAUPVANGI 6 EGILSSTÖÐUM S: 414 1735 • SUÐURLANDSBRAUT 26 REYKJAVÍK S: 569 1500
ht.is
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
NÝTT SENSEO KAFFI OG NÝTT KAKÓ
EKKI ÞARF LENGUR AUKA KAKÓ HÖLDU
FRÁBÆRT ÚRVAL AF LJÚFFENGU GÆÐA KAFFI
ER FÁANLEGT FYRIR SENSEO VÉLARNAR
SENSEO
CLASSIC KAFFI OG
TVÖ SENSEO GLÖS FYLGJA
ALEXANDER
PETERSSON
Hefur gengið illa
að ná sér góðum
af þrálátum
axlarmeiðsl um.