Heimilisritið - 01.01.1949, Blaðsíða 19
„Mikið ertu duglegur',
sagði Nancy.
Þótt lesandinn sé ekki nýgiitur, getur hann lært
talsvert af þessari smósögu eftir Thomas Bell.
eitthvað fallegt við mig
ÞAU HÖFÐU verið gift í
rúmt ár, þegar Joel varð það
ljóst, að kvenfólki hættir við að
leggja ofmikið upp úr ást og
rómantík í daglegu lífi. Það var
•bersýnilega ekki nóg, að' menn
stunduðu vel starf sitt, drykkju
ekki og væru ekki á þönum á
eftir öðru kvenfólki. Menn
þyrftu líka að hafa í sér ein-
hverjar rómantískar uppsprett-
ur, sem hægt væri að ausa úr án
afláts. En Joel var ekki sá austur
laginn, og hann duldi það ekki.
„Það krefst þess heldur eng-
inn af þér“, sagði Nancy. „Ef
þú segðir bara eitt og eitt hlý-
legt orð öðru hvoru. En það er
erfiðara að 1 oga út úr þér hrós-
vrði heldur en þótt mað'ur ætti
að draga úr þér tönn“.
Joel stundi, fremur vegna
þessara orða en hins, að svo erf-
itt væri að lyfta útvarpinu svo
að Nancy gæti þurkað rykið
undan því.
HEIMILISRITIÐ
17