Heimilisritið - 01.01.1949, Qupperneq 21
gera óst og rómantík að þunga-
miðju alls í veröldinni. Og þeg-
ar stúlka giftist.svo og kemst að'
því að hjónabandið er ekki allt-
af eintómt tunglsljós, finnst
henni hún hafa verið prettuð og
kennir í brjósti um sjálfa sig“.
„Eg kenni alls ekki í brjósti
um sjálfa mig. Mig langar bara
til að mér sé veitt svolítil viður-
kenning“. Hún lyfti brúnum yf-
irlætislega, eins og Joel var van-
ur að gera, gretti sig og sagði:
„Verra gæti það verið! Það er
það mesta sem þú segir. Verra
gæti það verið, og svo klapparðu
mér á rassinn!“
„Jó, en ég klappa ekki hverri
stelpu sem er á rassinn“, sagði
Joel og glotti. Hann fór út til
að tæma ryksuguna; hún var
iítið eitt notuð, en góð og þau
liöfðu fengið hana fyrir lítið.
Þegar hann setti hana aftur í
samband kom smellur og Nancy
fékk straum í sig.
„Æ“, stundi hún. „Nú verður
að koma henni í viðgerð aftur“.
„Þetta skal ég laga“, sagði
Joel og tók skrúfjárn. Hann fann
leiðslu, sem hafði losnað, og eft-
ir andartak var ryksugan farin
að mala eins og köttur.
„Mikið ertu duglegur“, sagði
Nancy.
„Þetta var ekki neitt“, sagði
hann kæruleysislega, en þó upp
með sér. „En það getur komið
sér vel að hafa lagtækan mann
á heimilinu“.
Joel tók að sér baðherbergið
og eldhúsið'. Hann var mesta
snyrtimenni og upp með sér
af heimilinu þeirra, og þess-
vegna vandaði hann sig. Jafn-
framt braut hann heilann um á-
stæðuna til óánægju Nancy.
Hann vissi að hún var ekki ó-
sanngjörn eða duttlungafull
eins og flest kvenfólk annað, svo
að einhver hlaut ástæðan að
vera. Rétt á eftir kom hún.
„En livað þú ert góður að
hjálpa mér, jafnvel þó þú vinn-
ir alla vikuna í bankanum. En
hvað' þetta er vel gert hjá þér!
Flestir karlmenn myndu telja
])etta kvenmannsverk og láta
konurnar einar um það“.
„Hum“. Hann gerði lítið úr
því. „Þú vinnur nú líka alla
vikuna. Auk þess er þetta mitt
heimili ekki síður en þitt, og ég
vil helzt að allt sé hreint og
þokkalegt“.
„Já, en það eru ekki margir
karlmenn, sem líta svona á það“.
„Áður en við giftum okkur
fundust mér líka öll svona störf
ósamboðin mér“, sagði liann.
„En nú veit ég, að það er hægt
að sýna karlmennsku með öð'ru
móti en að láta konuna sína
skúra gólf“.
„Já, þú ert góður! Og nú ætla
ég að fá mér bað“.
HEIMILISRITIÐ
19