Heimilisritið - 01.01.1949, Side 52

Heimilisritið - 01.01.1949, Side 52
ur“, sagði hún brosandi. „Ég skal skýra þetta“. Þjónninn var farinn fram í eldhús, og ég settist við' hlið hinnar fegurstu allra fagurra kvenna og vissi hvorki í þennan heim né annan. „Vinur“, hóf hún máls. „Fyrir viku sinnaðist okkur, mannin- um mínum og mér, og hann fór frá mér öskuvondur. I viku hef- ur því legið illa á mér, en nú er ég aftur orðin kát. Nú veit ég að maðurinn minn muni koma aftur til mín. Hann er svo ægi- lega afbrýðisamur, hann .....“ „Maðurinn yðar?“ hrópaði ég steinhissa. „Já, hann Enríco. Ég þekki það frá fyrri tíð, að ef liann sér mig með jafn fínum manni og yður, tekur hann aftur að' brenna af ást til nnn. Ég vildi óska......“ „Enrico, maðurinn vðar“, stamaði ég, • „hann — er hann .....?“ „Já, hann er þjónn hérna“ Það hefur alla tíð verið helzti kostur minn, að ég er fljótur að taka ákvarðanir. „Sælar“, sagði ég. Og ég fór leiðar minnar'. Ég var kominn yfir torgið og í þann veginn að ganga inn um gistihússdyrnar, þá heyrði ég að kvenmaður kallaði eitthvað fyr- ir aftan mig. Eg leit við og sá, að Michaela hin fagra kom hlaupandi á eftir mér. „Vinur!“ kallaði hún. „Bíðið! Bíðið!“ Og þegar hún var komin til mín greip hún í handlegginn á mér. „Enrico bað mig skila kveðju til yðar og því með, að þér hafið í flýtinum gleymt að greiða reikninginn“, hvíslaði hún og fékk mér þvældan pappírsmiða. Á honum stóð: „Ein kampavínsflaska: 20 pesetar“. Ég sagði ljótt, en borgaði. ENDIH Pólitík. Einar OlReirsson og Stefán Jóhann Stefánsson voru eitt sinn á sama máli um frumvarp eitt. sem fram kom á Alþingi. „Þetta er eiginlega merkilegt“, sagði annar |>eirrn . Þetta en vist i f.vrsta skipti sem við liöfuni verið sammála á þingi". „Já“, svaraði hinn. „mér datt einmitt það sama í hug. Og ég er nú farinn að fá sterkan grun um, að mín skoðun á málinu sé að líkindum alveg röng“. 50í HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.