Heimilisritið - 01.11.1949, Blaðsíða 36
Greer Garson
Dorothy Lamour Paulette Goddard Elizabeth Taylor
komu frá honum. Orðrómur er á kreiki
um samdrátt milli hans og Ingrid, enda
herma fréttir, að hún sé að skilja við mann
sinn.
★
Vesalings Judy htla Garland! Nú eru
þau skilin, hún og leikstjórinn Vincente
Minelli. Jafnframt því hefur hún verið
lieilsutæp og það svo mjög, að tekinn var
sá kostur að láta hana hætta að leika
í kvikmynd, sem hún var byrjuð í, á móti
Fred Astaire, en Ginger Rogers fengið h!ut-
verk hennar.
Ymsir halda því fram, að heilsubrestur
hennar stafi af eiturlyfjanotkun, en aðrir,
sem þekkja hana vel, taka því fjarri. Að
vísu er viðurkennt, að hún hafi tekið allt
af mikið inn af svefnlyfjum, en að auk
þess sé hún i rauninni of veikbyggð, lík-
amlega og sálarlega, til þess að vera fær
um að standa i öl!u því, sem Holly-ivood
hefur lagt henni á herðar.
Frá því um fermingu hefur Judy leikið
í fjölda kvikmynda og jafnan liaft með
höudum stór og erfið skemmtihlutverk
með dans og söng. Aður en byrjað var á
hverri mytid var hún eirðarlaus og á-
líyKgjuful) yfir þvi, hvernig takast myndi
að leysa hlutverkið af hendi. Hún átti þá
afar erfitt með svefn. Og í hvért skipti,
sem hún átti að koma á sviðið, titraði
liún af kviða og taugaspenningu.
Hún er nú 26 ára gömul og hefur tví-
vtgis ttrðiö aið standa í skilnaðarmálum.
I>að er ekki von, að svo viðkvæm sál sem
hennar þoli þetta allt til lengdar. Líklega
fær hún nú að hvíla sig um tíma og von-
andi verður ekki langt að bíða þess að
hún nái sér að fullu aftur.
★
Það er algengt, að leikdísirnar í Ilolly-
wood séu mjög undirgefnar manni sínum
í hjónabandinu — að minnsta kosti á
meðan það varir. Svo er t. d. með hjóna-
band systranna Olivia de Havilland og
Joan Fontaine, sem báðar eru giftar kvik-
myndaframleiðendum. Olivia, sem nú er
gift Marcus Goodrich, var lengi búin að
vera ógift, og eftir giftinguna fór hún að
grenna sig, hún hætti að reykja o. s. frv.
o. s. frv. „af því að maðurinn minn vill
það‘, eins og hún sagði. Og svo bætti hún
við: „Það er svo dásamalegt, að hafa loks-
ins einhvern til að halla sér að“. — I>au
hafa nýlega eignast erfingja.
★
I>á eru þau gift, Rita Hayworth og ind-
verski furstaerfinginn Aly Khan. Spanska
dansmærin, sem varð filmstjarna er nú
gift einhverjum auðugasta manni heimsins,
hætt að leika og getur nú veitt sér þvi
nær allan þann munað, sem hún girnist.
★
Robert Mitchum sat að sjálfsögðu af sér
dóminn, sem hann fékk fyrir eiturl.vfja-
notkun, og hefur síðan leikið í kvikmynd,
sem heitir „The Big Steal“. Augu allra í
Holly'wood hvíla á honum. Þetta leiða mál
34
HEIMILISRITIÐ