Heimilisritið - 01.11.1949, Side 43
þessi lögfræðingur ekki hringt!
Margit kemur hingað klukkan
sex. Eg verð að tala við hann
áður. Óvissan gerir mig brjálað-
an. Ef til vill er ég orðinn brjál-
aður.
Síðast liðin nótt var hræðileg.
Eg fékk martröð, vonda drauma,
drauma, þar sem ég sá Finn allt-
af fyrir mér.
Hann leit illa út í veizlunni.
Hann virtist hafa þrautir. Mar-
git sagði mér, að hann hefði
fengið hjartakast aftur.
Allt vínið, sem ég hafði
drukkið, hafði þau áhrif á mig,
að ég var alls ekki með sjálfum
mér, og til þess að' hressa mig
upp drakk ég ennþá meira, sem
gerði aðeins illt verra. Þegar
Margit kom og sagði, að Finni
hefi orðið illt og það hefði verið
farið með hann inn í svefnher-
bergið, hafði ég enga meðaumk-
un með honum, ég naut þess
fremur. Til allrar hamingju deyr
hann núna, hugsaði ég. Hjarta
mitt hoppaði af fögnuði. Minn
tími var kominn. Minn tími og
Margitar.
Margit bað um vatnsglas og
nokkra dropa af svefnlyfi. Nú
var tíminn kominn. Fyrir þá,
sem elskast, er engin hindrun of
mikil. Ég náði í svefnlyfið í með-
alaskápnum og hellti svo miklu
í glasið, að nægt hefði til þess
að drepa fimm menn. Kaldur og
rólegur gerði ég það. Nú byrjar
lífið, hugsaði ég.
A leiðinni inn í svefnherberg-
ið vaknaði samvizka mín. Hvað
ertu að gera? Ætlarðu að verða
morðingi? Ég hellti vatninu í
vaskinn, tók annað glas og fékk
hlargit það ásamt svefnlyfinu.
Eftir að ég hafði fengið mér
stóran sjúss, varð ég rólegur.
„Við förum heim núna“, sagði
Margit eftir klukkustund. „Ég
tek svefnlyfið með mér. Hringdu
til mín á morgun“.
Nú hringir aftur. „Munið eft-
ir að borga símareikninginn yð-
ar, það er síðasti gjalddagi á
morgun“, heyrist í heyrnartól-
inu. Hvað kemur mér við síma-
reikningurinn í dag, þegar svona
mikið er í húfi?
Margit hringdi til mín snemma
í morgun. Ég var ekki farinn til
skrifstofunnar. Hún sagði:
„Finnur er dáinn. I morgun,
þegar ég vaknaði, lá hann dáinn
við hliðina á mér. Glasið með
svefnlyfinu var tómt á gólfinu“.
Mér lá við yfirliði. Það leið
dálítil stund, þangað til ég jafn-
aði mig og gat spurt: „Er hann
dáinn? Hvernig dó hann? Er það
sjálfsmorð'?"
„Já, hann hefur fyrr talað um
að fremja sjálfsmorð. Kvalirnar
voru orðnar óbærilegar, og verzl-
unin gekk alltaf ver og ver. Nú
er hann frjáls, og það er ég líka“.
HEÍMILISRITIÐ
41