Heimilisritið - 01.11.1949, Side 46

Heimilisritið - 01.11.1949, Side 46
Mona er hið mesta tryggða- tröll. Við vorum mjög hamingju- söm. Svo hamingjusamur var ég, að umhugsunin um peninga- pakkana lét mig í friði annað slagið. En svo komu draumarnir um þá, eða martröð' réttara sagt. Eg þorði ekki að segja Monu frá þessu. Hún er svo góð og laus við ágirnd. Hún hefði veikst ef hún hefði komist að því, hve illa mér leið vegna þessara pen- inga. Ég varð oft andvaka um nætur. Mona spurði mig ekki hverju það sætti. Hún horfði á mig bláum, fögrum ástaraug- augum. I sál hennar urðu ekki svik né lýgi, eða annað ljótt, fundið. Svo kom ég dag nokkurn að máli við Monu og kvaðst hafa í hyggju að fara að heiman um tíma. Mona horfði forviða á mig og mælti: „Ertu orðinn leiður á mér, Mac?“ „Nei, Mona. Það sver ég“, svaraði ég. Eg sagði henni ekki að ég hefði ráðist á skip, sem átti að sigla til Honolulu. Ég sagði henni heldur ekki, að ég færi þessa ferð til þess að leita að peningum, sem fólgnir væru í jörð. Ég gat ekki komið mér að því að segja Monu frá þessu. ÉG VAR kominn til Corregi- dor. Omurlegar endurminning- ar komu upp í hugann. Þarna er staðurinn, sem kapteinninn féll á. Hann dó með hughreystandi orð á vörum. Þarna er brúin, sem við urðum að yfirgefa, þó að fimmtíu helsærðir félagar lægju þar. Og þarna er merki- stöngin. Tuttugu metrum nær ökrun- um áttu peningarnir að vera fólgnir. Svo var steinninn. Jú. Þarna voru nokkrir mosavaxnir steinar. Og dálítinn spöl frá þeim var risavaxið Eucalyptustré. Það var eins og köldu vatni væri skvett á mig. Tréð var olt- ið um koll. Sprengja hafði hitt það. Og svæðið umhverfis það var allt tætt í sundur. Ég hafði falið litla reku undir jakkanum. Ég fór að naoka og grafa. Stundum notaði ég berar hendurnar. Ég litaðist um. Eng- inn maður var sjáanlegur. Dauður maður lá undir trénu. Vitanlega óþekkjaniegur. En ég fann merkið á hermannabúningi hans. Þetta var Jim Rogers fé- lagi Sarrows. Hvað hafði Rogers verið að gera þarna? Vafalaust ætlað að sækja peningana og féfletta Sarrow. En sprengja hafði drep- 44 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.