Heimilisritið - 01.11.1949, Page 64
BRIDGE
S: D 9 2
H: D G 5
T: K D G
L: Á 9 7 4
S: Á K 8 5
II: 9 3
T: 7 6 3 2
L: G 8 3
S: G 7 ö 4 3
II: G 2
T: 10 8 5 4
L: D 2
S: 10
H: Á K 10 8 7 4
T: Á 9
L: K 10 6 5
Hvernig . fer Suður að því að vinna G
hjörtu, ef Vestur spilar út spaða kóng og
síðan tígli?
SPURNINGAGÁTUR
1. Hver er sá sem smýgur í gegnum
gluggarúðuna, án þess að brjóta hana?
2. Hvað þarf margar skófjaðrir í hest,
sem er vel járnaður?
3. Hver er sá hellir, sem hefur hvíta
gadda bæði úr lofti og gólfi?
4. Hvað er það, sem sumir hafa, en aðrir
geta ekki án verið, var áður jurt. en
er nú duft og geymist í gulli, silfri,
horni, tré eða gleri, eftir vild og efn-
um?
ð. Hver gengur alltaf á höfðinu?
REIKNINGSÞRAUT
Maður nokkur keypti epli og hnetur,
jafnmargt af hvoru, handa börnunum sin-
um. Ilann gaf hverju barni 12 epli og átti
þá 48 eftir, og af hnetunum gaf liann
hverju barni 15 og átti þá 15 eftir. Hversu
mikið keypti hann af hvorri tegund og
hversu mörg voru börnin?
GÁTA
Hvað er það sem er fullt, þegar það
er á hvolfi, en tómt, þegar það stendur
upp í loft?
HVAÐ ER RÉTT?
1. Neanderthalmaðurinn er þekktur frá:
Þýzka ríkisþinginu. Sþánarstríðinu.
Þróunarsögunni. Olympiuleikunum.
2. Hinn tryggi förunautur Don Quixotes
var:
Cervantes. Sanclro Panza. St. Georg.
Batseba. Faust.
3. Ein aðalpersónan í skáldsögunni Skytt-
urnar eftir Alexander Dumas, var:
D’Annunzio. Oliver Twist. Nana.
Valjean. D’Artagnan. Hrói höttur.
4. Fornafn Thorvaldsens myndhöggvara
var:
Gottskálk. Erik. Bertel. Bernard. Ger-
hard. Therkel.
5. Stanley var:
Forseti Bandaríkjanna. Kvikmynda-
leikari. Landkönnuður. Enskt leikrita-
skáld.
Svör á bls. 61).
62
HEIMILISRITIÐ