Heimilisritið - 01.10.1953, Side 19

Heimilisritið - 01.10.1953, Side 19
Nú ert þú þegar fær um að halda að minnsta kosti tíu, tólf góðar ræður — ræður, sem eng- inn annar í heiminum gæti hald- ið. af því enginn annar hefur reynt nákvæmlega það sama og þú. Hver eru þessi umræðuefni ? Ég veit það ekki. En þú veizt það. Gakktu því með blað á þér í fáeinar vikur og skrifaðu niður, jainóðum og þér kemur í hug, öll þau umræðuefni, sem þú ert til- búinn að tala um vegna reynslu þinnar — efni eins og ,,það, sem mig hefur mest skort í lífinu", „Mesta metnaðarmál mitt“, og ,,Hvers vegna mér féll vel (eða illa) við skólann“. Þú munt verða hissa á hversu fljótt þessi listi lengist. Að tala um eigin reynslu er skiljanlega fljótasta leiðin til að öðlast hugrekki og sjálfstraust. En seinna langar þig að tala um önn- ur efni. Hvaða efni ? Og hvar getur þú fundið þau ? Alls staðar. Eg bað einu sinni hóp af nem- endum að hripa niður sérhvert ræðuefni, sem þeim dytti í hug á einni viku. Einn sá dúfu á göt- unni. Það gaf honum hugimynd. Hann eyddi nokkrum kvöldum í bókasafni, og hélt síðan ræðu um dúfur, ógleymanlega ræðu. En verðlaunin hlaut maður, sem sá veggjalús skríða á flibba manns eins í strætisvagni. Hann fór í bókasafnið, aflaði sér merki- legra upplýsinga um veggjalýs og hélt ræðu, sem ég man enn eftir 15 ár. Hvers vegna gengur þú ekki með slíka vasabók ? Ef þú mætir ókurteisi, skrifar þú hjá þér ,,Um ókurteisi.“ Reynið síðan að finna bezta dæmið um ókurteisi í fram- komu. Segið okkur frá því, og komið með uppástungu um, hvað eigi að gera við því. Þar með hef- ur þú haldið ræðu. Reynið ekki að tala um einhver heimssöguleg efni eins og ,,At- ómsprengjan'*. Takið heldur eitt- hvað blátt áfram — það má vera næstum hvað sem er, svo fremi hugmyndin grípi þig — í stað þess að þú grípur hugmyndina. Þegar þú ert einu sinni byrjaður að svipast um eftir ræðuefni, finnur þú það allstaðar — heima, í skrifstofunni, á götunni. Hér eru sjö reglur, sem munu koma að miklu liði við að undir- búa ræður þínar: /. Sk.rija8u ekhi rœðurnar. Af hverju ? Af því að, ef þú gerir það, notar þú ritmál í stað látlauss talmáls, og þegar þú stendur upp, verður þú sennilega með allan hugann við að rembast við að muna það, sem þú skrif- aðir. Það kemur í veg fyrir, að þú talir eðlilega og fjörlega. OKTÓBER, 1953 17

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.