Heimilisritið - 01.10.1953, Side 20
2. Lœrðu aldrei rœÖu orÖrétt
utanað.
Ef þú gerir það, ertu næstum
viss með að gleyma henni, og
áheyrendurnir verða fegnir, því
engan langar til að hlusta á nið-
ursoðna ræðu. Jafnvel þó þú
gleymir henni ekki, verður svip-
ur þinn fjarrænn og röddin sömu-
leiðis. Ef þú ert hræddur um að
gleyma því, sem þú ætlar að
segja, þá skrifaðu niður nokkra
punkta á blað og haltu á því í
lófanum og líttu öðru hvoru á
það.
3. Kryddaðu rœðuna með lýs-
andi dœmum.
Langauðveldasta leiðin til að
gera ræðu áheyrilega er að nota
dæmisögur. Fyrir nokkrum árum
hélt þingmaður hvassyrta ræðu
og ásakaði stjórnina fyrir að eyða
fé í að gefa út gagnslausa bækl-
inga. Hann tók sem dæcni bækl-
ing ,,Um ástalíf frosksins“. Eg
myndi ekki minnast þessarar
ræðu, nema vegna þessa sérstaka
dæmis.
4. Hafðu til reiðu fjörutíu sinn-
um meira efni í rœðuna, en þú
þarft að nota.
Ida heitin Tarbell, ein af
fremstu ævisöguriturum Ameríku,
sagði mér, að fyrir nokkrum ár-
um, er hún var stödd í London,
hafi hún fengið skeyti frá merku
amerísku tímariti um að skrifa
tveggja síðna grein um sæsímann
yfir Atlantshaf. Ungfrú Tarbell
átti tal við ritsímastjórann í Lond-
on og fékk raunar allar upplýs-
ingar, sem hún þurfti til að semja
500 orða grein. En hún lét sér það
ekki nægja.
Hún fór í British Museum og
las greinar og bækur um sæsím-
ann, og ævisögu Cyrus Field,
mannsins, sem lagði símann. Hún
skoðaði sýnishorn og minjagripi
um símlagninguna í British Mus-
eum, heimsótti síðan verksmiðju
í úthverfi London til að sjá hvern-
ig sæsími væri búinn til.
,,Þegar ég loksins skrifaði þess-
ar tvær síður,“ sagði ungfrú Tar-
bell, ,,hafði ég nóg efni í litla
bók. En þetta rnikla efni, sem ég
hafði yfir að ráða og notaði ekki,
gerði mér fært að skrifa af sjálfs-
trausti og áhuga, skýrt og skorin-
ort.
Ida Tarbell hafði lært af langri
reynslu, að hún varð að hafa fvr-
ir að öðlast rétt til að skrifa þó
ekki væri nema 500 orða grein.
Sama reglan gildir um ræðu-
mennsku. Aflaðu þér eins konar
sérþekkingar á efninu. Temdu
þér þá gullnu reglu að heyja þér
varaforða.
5. Æfðu rœðu þína í umrœðum
við vini þína.
Will Rogers undirbjó hinar
frægu sunnudagskvöldræður sín-
18
HEIMILISRITIÐ