Heimilisritið - 01.10.1953, Page 26
merki og fór inn í öll húsin, einn-
ig til þeirra. Eg fór upp nokkur
þrep í sólbyrgið, og þar, milli
vafningsjurtanna, sat hann.
Eg bað hann að kaupa merki,
og hann sneri sér við, er hann
heyrði rödd nn'na, og tók pen-
ing upp úr vasa sínum og rétti
mér.
Eg sá framan í' hann, og ég
hefði getað æpt, svo ljótur var
hann. Undarlegt lirossandlit og
litlaust hár. En skrokkurinn var
þreklegur og vel vaxinn.
Ég hugsaði: ..Guði sé lof, að
hann er blindur“.
Hann sá ekki svipinn á mér.
Og vonandi hefur röddin ekki
komið upp um mig.
Ég minntist orða vinar okk-
ar, ritstjórans: „Þegar þið hafið
séð hann, munuð þið spyrja
margs, sem ég get eklvi svarað".
Hvert var svarið við þessu
hjónabandi?
Þegar ég kom heim, grét ég.
Lagskona mín reyndi að hugga
mig. Mundu, að sál hans og
luigsanir eru fagrar, þó andlitið
sé Ijótt. Og luin náði í blöðin
með ljóðum ATobis og las þau
upphátt fvrir mig.
En stöðugt varð mér á að
hugsa um hrosshausinn, og ég
hélt áfram að endurtaka: „Vesa-
lings bláa fegurð. Hvernig gaztu
gifzt honum“.
24
„Gleymdu ekki“, sagði lags-
kona mín, „að næst, þegar við
hittum hana, megum við ekki
láta í ljós neina undrun. Það
myndi særa hana. Nú veit hún,
að þú hefur séð hann“.
Þess vegna brostum við glað-
lega til þeirrar bláklæddu, næst
er við sáum hana. Og ef til \ i 11
var það þess vegna, að hún kom
til okkar, þegar síminn hennar
var bilaður, og hún þurfti að
hringja til læknis.
Við gerðúm allt til að halda í
hana, en hún vildi fara.
„Maðurinn minn er veikur",
sagði hún, „og ég verð að flýta
mér heim“.
Hún varð þó að bragða á vín-
inu, sem við höfðum bruggað.
Og þar eð hún gat ekki vitað,
að við vissum það þegar, sagði
luin okkur, að maður sinn væri
Nobis, og spurði, hvort við
könnuðumst við kvæði hans.
Við vorum ánægðar að geta
sagt, að við værum afar hrifnar
af þeim og klipptum þau út úr
blaðinu. Við sýndum henni bók-
ina með úrklippunum, og hún
roðnaði af gleði.
„Ég hef líka heilsað upp á
manninn yðar og selt honum
gigtarmerki“, sagði ég brosandi,
eins og allt væri í stakasta lagi.
„’Maðurinn minn er blindur“,
sagði hún. Og um leið og hún
HEIMILISRITIÐ