Heimilisritið - 01.10.1953, Qupperneq 34
Yfir 100 bækur í verðlaun
10 ára afmælisgetraunir Heimi/isritsins
Tíu bækur verða veittar í verðlaun á mánuði allt þetta ár. í hverju hefti
mun birtast kafli úr skáldverki eftir þekkt íslenzkt skáld, og er vandinn ein-
ungis sá að þekkja verkið og höfundinn. Nöfn bóka þeirra, sem til greina
koma í verðlaun, eru birt aftan á kápunni, og þarf hver og einn þátttakandi
að tilgreina, hvaða bók hann kýs.
Lausn á eftirfarandi getraun þarf að hafa borizt fyrir 15. nóvemlDer
því þá verður dregið um, hverjir verðlaun hljóta af þeim, sem sent hafa
réttar lausnir.
Úr hvaða kvæði og eftir hvaða skáld er eftirfarandi vísa?
Fölna grös, en blikna blóm,
af björkum laufin detta.
Dauðalegum dynur róm
dröfn við fjarðarkletta.
Lausn á getraun ágúst-heftisins: Vísan er úr kvæðinu „Betlikerlingin"
eftir Gest Pálsson. — Verðlaun hlutu þessir (kosin bók tilgreind innan
sviga); 1. Lilja G. Eiríksdóttir, Langholtsv. 152, Rv. (Klukkan kallar),
2. Sigurjón Þorsteinsson, Reykjum, Hrútaf. (Maður og kona), 3. Stelia
Ögmundsdóttir, Vík, Mýrd. (Klukkan kallar), 4. Heiðdís Norðfjörð, Ægis-
götu 25, Ak. (Félagi kona), 5. Kristín Sigurbjörnsdóttir, Brekkug. 1, Ólafsf.
(Maður og kona), 6. Sæmundur Ingólfsson, Langholtsv. 53, Rv. (Klukkan
kallar), 7. Gíslína Jónsdóttir, Ytri-Bakka, Hjalteyri (Fýkur yfir hæðir),
8. Anna Þorvaldsdóttir, Stykkishólmi (Maður og kona), 9. Vilborg J. Guð-
mundsdóttir, Nökkvavogi 15, Rv. (Marta Oulie), 10. Steinunn Guðmunds-
dóttir, Grundarstíg 4, Rv. (Klukkan kallar). — Bækurnar verða póstsendar.
Seðill þessi eða afrit af honum sendist HEIMILISRITINU, Garðastræti 17,
Rvík fyrir 15. nóv. n.k. (Frímerki: kr. 1.25 utanbæjar. kr. 0.75 innanbæjar).
Nafn kvæðis og höfundar: ........................................
Kosin bók (sbr. 4 kápusíðu):
Sendandi: