Heimilisritið - 01.10.1953, Qupperneq 41
Illir andar, lyf og læknar
-------------------------------------
Framhald hinnar merku og fróðlegu
bókar dr. med. HoWards W. Hagg-
ards um þróun lœknauísindanna.
Önnur og ennþá fjarstæðu-
kenndari ástæða var gefin fyrir
þessum dánartölumismun. ,,Það
var látið í veðri vaka, að ástæð-
an til hinnar háu dánartölu væri
sú, að sjúklingarnir væru ógift-
ar konur úr aumustu stéttum
þjóðfélagsins, aldar upp við
skort og eymd samfara stöðugum
áhyggjum og vonleysi. Ef þetta
hefði verið ástæðan, hefði dán-
artalan í Annarri deild átt að vera
jafnhá, þar sem báðar deildir
önnuðust samskonar sjúklinga.
Hin hærri dánartala Fyrstu deild-
ar var skýrð með því, að blygð-
un þessara vesalings kvenna væri
ofboðið með því að láta þær fæða
í viðurvist karlmanna. Vissulega
þjáðust flestir sjúklingar Fyrstu
deildar af hræðslu, en þær voru
ekki margar, sem þjáðust vegna
særðrar blygðunarsemi. Vissu-
lega ber það vott því hugsunar-
leysi, sem var ríkjandi í öllum
umræðum um orsök barnsfara-
sóttarinnar, þegar því fólki, sem
í öðru orðinu er kallað úrkast
þjóðfélagsins, er í hinu borin á
brýn einhver yfirmáta blygðunar-
semi, sem efri stéttir þjóðfélags-
ins geta ekki einu sinni hrósað sér
af. Meðal efri stéttanna er það
tíðkað, að læknar annist fæðing-
arhjálp, en sjúklingar þeirra
deyja ekki af barnsfarasótt, sem
stafi af særðri blygðun, í sama
mæli eins og gefið er í skyn um
sjúklinga fæðingarstofnananna,
en þeim er þó oft lýst í rökræð-
um um þessi mál sem hinum ó-
vönduðustu og umhirðulausustu
þegnum þjóðfélagsins."
Semmelweis fikrar sig áfram og
útilokar óheppilega loftræstingu,
óhreinan þvott og rangt mataræði
sem orsakir sóttarinnar, þar sem
þessu er eins háttað í báðum
deildutm. En jafnframt því, sem
hann vísar þessum möguleikum
frá, veit hann, að hin raunveru-
lega ástæða lá hulin innan veggja
sjúkrahússins. Sú staðreynd var
sönnuð með því, að konur, sem
OKTÓBER, 1953
39