Heimilisritið - 01.10.1953, Page 45

Heimilisritið - 01.10.1953, Page 45
unnin bugur á þessum erfiðleik- um, og sá tími mun áreiðanlega koma, að litið verður á ástæður og afstöðu nútímans til fæSingar- deyfinga, sömu augum og við lít- um á hinar frumstæðu skurð- lækningaaðferðir áður en deyf- ingar komu til sögunnár. Sú uppgötvun að deyfa á und- an skurðaSgerðum, var fyrst reynd meS ether árið 1846. Hún fólst ekki fyrst og fremst í notkun nýrra lyfja, heldur í nýrri notk- unaraðferð deyfilyfja. Sjúkling- urinn andar lyfinu að sér í loft- kenndu ástandi, og í því hafa þau sérstöðu. Ekki er hægt aS hafa nein áhrif á verkun lyfs, sem þeg- ar er komið inn í líkamann. Verk- un þess dvínar einungis um leið og það síast smám saman úr lík- amanum á mörgum klukkustund- um, eSa jafnvel dögum. OSru máli gegnir með lofttegundir, sem notaðar eru til deyfinga. Þær hafa ekki full áhrif nema meðan innöndun fer fram. Þeg- ar hún hættir, missa þær fljótlega áhrifamátt sinn við útöndunina og er þannig hægt að hafa ná- kvæma stjórn á verkun þeirra. Hin deyfandi áhrif eiturefnanna, svo sem ópíums, hamps og man- draka, hafa þekkzt frá fornu fari, eins og síðar verður nánar getiS, en þessi lyf verða ekki notuð meS góðum árangri sem deyfilyf. Þau deyfa sársauka, en þau hafa einn- ig lamandi áhrif á starfsemi hjart- ans og öndunarfæranna, og geta verið banvæn, ef þau eru tekin í of stórum skömmtum. Þá er það einnig að athuga, að sársauki hef- ur að nokkru leyti gagnverkandi áhrif á eiturlyf, þannig, aS ef þau eru gefin í nægilega stórum skömmtum til aS eyða sársauka við skurSaðgerð, geta þau valdið eitrun, þegar aðgerðinni er lokið og sársaukans gætir ekki lengur., Fyrr á tímum voru slík lyf stund- um notuð við uppskurði, en þeg- ar þau voru gefin í skömmtum, sem ekki voru stærri en óhætt mætti teljast, þá gerðu þau varla betur en draga úr sárustu kvöl- inni. Eiturlyf veittu ekki reglu- lega deyfingu, og fyrr á tímum voru þau notuð eins og nú — til þess að draga úr þjáningum vegna sára eða kvalafullra sjúk- dóma, og veita sjúklingnum þann- ig nokkra hvíld. Þessi kvaladeyfing með svefn- lyfjum, var jafnvel þekkt meðal frumstæðra þjóða, sem og á elztu menningartímum. Helena hellti ,,nepenthe“ í bikar Ödysseifs, og í Talmud Gyðinga er minnzt á eiturlyf, kallað „samme de shita“. Þá má nefna ,,bhang“ í Þúsund og einni nótt, og ,,syfju- sýrópið" á dögum Shakespeares. Öpíum og indverskur hampur, OKTÓBER, 1953 43

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.