Heimilisritið - 01.11.1955, Blaðsíða 10
H ér er annar kafli úr bókinni ,,UNDUR LlFSINS“,
skrifaður af E. N. F allazie.
III. hluti
Þjóðflokkar mannkynsins
Mongólsk blöndun
Það er sannað, að þetta eldra-
steinaldarfólk ruddist inn í Or-
doseyðimörk í Mið-Kína og til
héraðanna umhverfis Peking í
Norður-Kína. Það var líka ein
bylgja þessa fólks, sem fyrst
komst til Ameríku, þó ef til vill
ekki fyrr en á nýju steinöld. Á
meðan hafði átt sér stað mon-
gólsk blöndun, eins og sést á
greinilega mongólskum blæ í
andlitsdráttum þeirra amerísku
Indíána, sem taldir eru komnir
af síðari þjóðflutningabylgju til
meginlandsins. Til vesturs er
hægt að greina mongólsk áhrif
alla leið til Lapplands. Finnar
sýna aftur á móti frábrugðinn
þátt þjóðflutninga frá Asíu,
kominn til Finnlands úr suðri og
merki finnast um meðal íbúanna
á víð og dreif alla leið til Ung-
verjalands að meðtöldum hluta
af íbúum þess. í suðurhluta
Asíu, hefur mongólsk blöndun
látið eftir sig merki meðfram
öllum norðurlandamærum Ind-
lands, í Birma og í Austur-Ind-
landi. í Suðaustur-Asíu eru áhrif
hennar einkum ljós og þaðan
dreifðust þau út um Kyrrahafið.
Sunnan fjallgarðanna miklu
rakst stutthöfðakynið á fólk,
sem var að langmestu leyti af
brúna Miðjarðarhafskyninu. Til
að gera grein fyrir staðbundnum
afbrigðum þessa kyns, og þá
gerð, sem til varð með útbreiðslu
þess til Kyrrahafsins, má í stór-
um dráttum byggja upp kyn-
flokkasögu Suður-Asíu á eftir-
farandi hátt.
Fyrstu þjóðflutningamir
Það er ástæða til að halda að
8
HEIMILISRITIÐ