Heimilisritið - 01.11.1955, Side 57
bera í sér alla ævi.
Og hver hefur ekki séð eða les-
ið um furðulegustu tilburði
kvenna til að fegra sig. — Hjá
Ubandi-konum í Afríku eru var-
ir þeirra, allt frá fæðingu, vafðar
utan um tréplötur og teygðar svo
að þegar þær eru komnar á gift-
ingaraldur, eru varir þeirra
orðnar eins og tvær pönnukök-
ur, sem sveiflað er 1 vindi.
Hégómi . . . allt er hégómi. . . .
Allt er þetta breytilegt frá
einu þjóðfélagi til annars og
mjög er það margbreytilegt,
hvað menn telja kynþokka. Eins
er með siðina við að bera sig
eftir kvenmanni. Meðal vest-
rænna þjóða er þetta mjög flók-
ið og tekur langan tíma með „til-
hugalífi“ og „biðilsbuxum“, en
á Marshalleyjum er ekki verið
að dunda neitt. Þar nægir að
karlmaðurinn ranghvolfi augun-
um og nefni kynfæri konunnar
á kæruleysislegan hátt. Ef stúlk-
an er samþykk segir hún já,
annars nei. Þar er ekki vérið að
þjarka um neitt eða eyða tím-
anum né hafa nokkuð fyrir hlut-
unum. Þess má geta, að skilnað-
ur er svo að segja óþekkt hug-
tak á Marshalleyjum.
Hjá sumum kynstofnum, eins
og til dæmis Lepchas-ættflokkn-
um í Himalayafjöllum, getur
hvort kynið sem vill verið á
„biðilsbuxunum“ ef svo mætti
að orði komast. Fer það allt eftir
því hvort er áhugasamara og
ákveðnara. Hjá Kwoma-ætt-
flokknum á Nýju-Guineu —
þessum grimmu stríðsmönnum
og hausaveiðurum, eru karl-
mennirnir í raun og veru hrædd-
ir við að bera sig eftir kven-
manni að fyrra bragði. Ef að
stúlka vill ná sér 1 pilt þar, verð-
ur hún að vera ákveðin og draga
karlmanninn inn í kofann sinn.
Gestir hjá ættflokknum þykjast
þó hafa tekið eftir þyí, að pilt-
aitnir berjist ekki mikið gegn
stúlkunum þegar svona stendur
á.
Samt eru siðir Nail-ættflokks-
ins, er býr í Atlasfjöllum í Alsír,
undarlegri en á nokkrum öðrum
stað. Þar er sá háttur hafður á,
að þegar stúlka er orðin gjaf-
vaxta og hefur fengið fullan
kynþokka, fer hún til næstu
ættkvísla og selur þar blíðu sína,
hverjum sem hafa vill. Þegar
hún er orðin tvítug hefur hún
unnið sér inn nógu mikið fé til
þess að kaupa sér eigimann. Það
eru konurnar, sem stjórna öllu
í ættflokknum og stúlkur mega
kjósa sér hvaða karlmann, sem
er, svo framarlega sem hann er
ógiftur. Ef ógiftur karlmaður
neitar að giftast stúlku, er hann
hálshöggvinn.
NÓVEMBER, 1955
55