Heimilisritið - 01.11.1955, Qupperneq 11
fyrstu þjóðflutningarnir — og á
það jafnt við Afríku og Evrópu
sem Asíu — hafi hlotið að hefj-
ast frá miðstöð einhvers staðar
í norðvestur frá Indlandi, ef til
vill í suðurhluta Pamírhéraðs
eða rétt fyrir sunnan það.
Ef þessu er svo varið, enda þó
munur hljóti að hafa verið á
hinum einstöku þjóðflutninga-
bylgjum er þær hófust, munur,
sem þróaðist á hverju tímabili
milli þjóðflutninganna, hafa
helztu líkamleg séreinkenni
hinna ýmsu frumkynja, eða að-
alkynstofna eins og þeir eru nú
til dags, hlotið að þróast eftir að
þeir voru seztir að, eða voru
komnir vel á veg til þeirra meg-
inlandshéraða, sem þeir byggja
nú. Til dæmis: Dökki hörunds-
liturinn, þykkar varir, ullar-
kennt hár og hin breiðu nef negr-
anna eru allt einkenni samhæfð
hitabeltinu, en hefðu ekki þró-
azt í f jallahéruðum Mið-Asíu.
Austur-Negrar
Þess sjást merki í Asíu, eins
•og Mið-Afríku, að dvergmenn
voru ein fyrsta þjóðflutninga-
bylgjan, ef ekki sú fyrsta. Það
getur raunar verið, að einhvern
tíma hafi verið óslitið belti
dvergmannategunda frá Vestur-
Afríku þvert yfir til Nýju-Gui-
neu. í Asíu eru þeir nú aðeins
Ættarhöfðingi í New Hebrides
Ættarhöfðingi Nambi-ættkvíslarinn-
ar, sem lengi voru hausaveiðarar á
einni af eyjunum í New Hebrides.
Þessi eyjaklasi er í Vestur-Kyrrahafi
og telur um 60.000 innfæddra manna.
eftirlifandi á Andamaneyjum,
Malakkaskaga, Filippseyjum og
Sumatra. Töluverðar leyfar eru
enn eftirlifandi á Nýju-Guineu.
Hér var líka, eins og í Afríku,
þjóðflutningabylgja af þjóð-
flokkum, sem þróuðust í negra-
gerð. Núna má sjá þá í hinum
dökku, hrokkinhærðu íbúum
Nýju Guineu, Papúunum og
nokkuð afbrigðilega í dökkum,
innfæddum íbúum.
Þetta fólk er stundum kallað
Austur-Negrar, þó neflögun þess
og önnur einkenni séu frábrugð-
in Afríku-Negra. Þetta getur
stafað af ólíku umhverfi, eða af
NÓVEMBER, 1955
9